Íbúar Calais Hér má sjá fyrrum íbúa Calais sem héldu til í búð­unum fyrir um ári síðan. Óvíst er hvar þeir eru nú nið­ur­komnir. Mynd: Jón Bjarki

Frakkar taka á samstöðuglæpum: Nú er bannað að gefa flóttafólki að borða

Borg­ar­stjóri frönsku borg­ar­innar Calais hefur gefið út til­skipun sem gerir það refsi­vert að gefa flótta­fólki að borða. Frakkar hafa að und­an­förnu sótt fólk til saka fyrir svo­kall­aða sam­stöð­u­glæpi, að aðstoða flótta­fólk með ein­hverjum hætti. Franskur ólífu­bóndi nýlega dæmdur á grund­velli þess­ara laga.

Natacha Bouchart, borg­ar­stjóri frönsku borg­ar­innar Calais, lét nýlega þau orð falla að mat­ar­gjafir til flótta­fólks ógn­uðu hrein­lega öryggi borg­ar­innar. Orð borg­ar­stjór­ans vöktu skilj­an­lega athygli og röt­uðu í helstu fjöl­miðla heims. Bouchart sagði þetta í til­raun sinni til þess að útskýra hvers vegna borg­ar­yf­ir­völd hefðu brugðið á það ráð að leggja blátt bann við því að ein­stak­lingar og sjálf­boða­liða­sam­tök færðu hungr­uðu fólki á svæði nærri borg­inni mat­ar­gjafir.

En þessi til­skipun borg­ar­stjór­ans sprettur ekki upp í ein­hverju tóma­rúmi. Frönsk yfir­völd hafa und­an­farna mán­uði verið að sækja sjálf­boða­liða til saka fyrir svo­kall­aða sam­stöð­u­glæpi, fyrir það að sýna flótta­fólki sam­stöðu og aðstoða það í erf­ið­leikum sínum. Í ítar­legri umfjöllun Al Jazeera um málið er til að mynda greint frá máli landa­fræði­pró­fess­ors­ins Pierre Mannoni sem var sóttur til saka fyrir það eitt að hafa keyrt þremur slös­uðum eritreskum ung­lings­stúlkum á spít­ala.

Franski ólífu­bónd­inn Cédric Herrou var svo í síð­asta mán­uði dæmdur til að greiða 3.000 evrur í sekt fyrir að aðstoða flótta­fólk við að kom­ast til Frakk­lands. Herrou, sem á ólífu­bú­garð í dal sem liggur að landa­mærum Ítalíu, aðstoð­aði flótta­fólk við að kom­ast yfir landa­mærin til Frakk­lands og hýsti það meðal ann­ars á búgarði sínum.

„Ef við þurfum að brjóta lögin til þess að hjálpa fólki þá gerum við það,“ sagði hann meðal ann­ars við stuðn­ings­menn sína á meðan á rétt­ar­höld­unum stóð. „Það er hlut­verk okkar að hjálpa aðstoða fólk við að kom­ast hjá hættum og þessi landa­mæri eru hættan,“ sagði hann og bætti við að gjörðir hans væru ein­fald­lega byggðar á því að verja mann­rétt­indi.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár