Stofnar Þjóðarflokkinn til að spara í hjálp til flóttamanna og halda í venjur

Bóndi og húð­flúr­ari í Borg­ar­firð­inum vinnur að stofnun Þjóð­ar­flokks til að berj­ast gegn erlendum áhrifum og útgjöldum til hjálpar flótta­mönnum. Segir gamla fólkið svelta. Allt að 330 þús­und eru látnir í Sýrlandi.

Stofnar Þjóðarflokkinn til að spara í hjálp til flóttamanna og halda í venjur
Stofn­andi Þjóð­ar­flokks­ins Sverrir Þór Ein­ars­son bóndi hefur enn sem komið er aðeins stofnað flokk sinn á Facbook. Mynd: Facebook

53 ára gam­all bóndi og húð­flúr­ari í Borg­ar­firði er að mynda stjórn­mála­sam­tök til þess að berj­ast gegn inn­flytj­endum.

Maðurinn, Sverrir Þór Ein­ars­son, er einn þeirra sem er ósáttur við að fjár­magn sé sett í að hjálpa flótta­mönnum, á meðan mögu­legt er að verja sömu fjár­munum í að hjálpa Íslend­ingum.

„Stefna flokks­ins í mál­efnum inn­flytj­anda og flótta­fólks er ein­föld. Meðan þjóðin hefur ekki efni á að borga lög­reglu­mönnum, heil­brigð­is­starfs­fólki og kenn­urum mann­sæm­andi laun svo ekki sé talað um öryrkja og gamla fólkið okkar sem lifir við sult og hefur ekki efni á læknis þjón­ustu, ein­stæðar mæður við sult­ar­mörk, þá höfum við ekki efni á að moka pen­ingum í flótta­menn,“ segir Sverrir á Facebook-síðu flokks­ins.

Sverrir Þór Einarsson
Sverrir Þór Ein­ars­son Einnig þekktur sem Sveddi tattú.

Rík­is­stjórnin ákvað í síð­asta mán­uði að leggja til við Alþingi að varið yrði einum millj­arði á ári næstu tvö árin til fjár­stuðn­ings við alþjóða­stofn­anir og hjálp­ar­sam­tök, mót­töku flótta­fólks og hæl­is­leit­enda á Íslandi og aðgerða til að hraða afgreiðslu hæl­is­um­sókna á Íslandi.

Mannfall hátt í íbúafjölda Íslands

Sverrir Þór segir flokk sinn hins vegar munu berj­ast gegn þess­ari hjálp og svo fjölgun inn­flytj­enda. „Við viljum stífar tak­mark­anir við inn­fluttn­ingi flótta­manna þar til við höfum efni á að gera mann­sæm­andi við gamla fólkið, öryrkja, ein­stæðar mæður og reka almenni­lega heil­brigð­is­þjón­ustu. Hugsum fyrst um okkar bág­stöddu Íslend­inga áður en við ausum fjár­magni í útlend­inga,“ segir á Facebook-síðu flokks­ins.

Talið er að 130 til 330 þús­und manns hafi lát­ist í borg­ara­stríð­inu í Sýrlandi, eftir því hvaða heim­ildir er stuðst við. Síðari talan jafn­gildir íbúa­fjölda Íslands. Auk þess hafa um 2.500 flótta­menn drukknað á leið­inni til Evrópu. Það jafn­gildir tæp­lega 40% af íbúum sveit­ar­fé­lags­ins Akraness, þar sem stofn­andi Þjóð­ar­flokks­ins býr. 

„Halda fast í íslensk gildi og venjur“

Einnig vill  Sverrir vinna gegn menn­ing­ar­legum áhrifum af inn­flytj­endum og halda þess í stað fast í íslenska menn­ingu. „Við viljum halda fast í íslensk gildi og venjur og forð­ast að hér spretti upp gettó múslíma eða ann­ara útlendra hópa.“

Slagorð flokks­ins virð­ist vera „segjum nei við fót­festu íslams á Íslandi“.

Sjálfur kynnir Sverrir sig á Facebook-síð­unni sem aðil­ann að baki flokknum.

„Ég heiti Sverrir Þór Ein­ars­son og er bóndi, bif­véla­virki og mynd­lista­maður. Ég bý uppí Borg­ar­firði á Höfn undir Hafn­ar­fjalli og starfa líka í Reykja­vík fimm daga í viku í stúdío Skinn­list Braut­ar­holti 16.“

Sverrir Þór hefur einnig verið þekktur undir nafn­inu Sveddi tattú, en hann er meðal ann­ars fyrr­ver­andi með­limur í vél­hjóla­sam­tök­unum Fáfni, sem gekk til liðs við Hell's Angels.

Ekki náð­ist í Sverri Þór í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár