Friðbjörn Orri aðstoðar Davíð: „Tjái mig ekkert um það“

Félag Frið­björns Orra Ket­ils­sonar keypti lénið david2016.is vegna for­seta­fram­boðs Davíðs Odds­sonar. Frið­björn var rit­stjóri hins umdeilda vefs AMX.is um ára­bil.

Friðbjörn Orri aðstoðar Davíð: „Tjái mig ekkert um það“

Félagið Vef­miðlun ehf, í eigu Frið­björns Orra Ket­ils­sonar og Arthúrs Ólafs­sonar, hefur fest kaup á lén­inu david2016.is. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er Frið­björn Orri lyk­il­maður í kosn­inga­bar­áttu Davíðs sem nú er und­ir­búin.

Sjálfur vill Frið­björn sem minnst tjá sig um aðstoð­ina. Aðspurður hvort hann starfi fyrir fram­boð Davíðs segir Frið­björn: „Ég reyndar tjái mig ekk­ert um það.“

Uppfært kl. 20:30:
Skrán­ingu léns­ins david2016.is var breytt eftir að frétt Stund­ar­innar birt­ist í dag. Er Davíð Oddsson nú sjálfur rétt­hafi þess auk léns­ins xda­vid.is. Vefurinn er kom­inn í loftið. 

Aðsetur í Hádegismóum

Vef­miðlun hefur aðsetur í Hádeg­is­móum 4, en áður var félagið með lög­heim­ili að Hádeg­is­móum 2 þar sem Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og rit­stjórn­ar­skrif­stofur blaðs­ins eru til húsa. 

Frið­björn var um ára­bil einn þekkt­asti frjáls­hyggju­maður lands­ins. Hann er frægastur fyrir að hafa haldið úti vefnum AMX.is um ára­bil þar sem birt­ust harð­orðir pistlar um menn og mál­efni undir nafn­inu „smá­fugl­arnir“. Beindu smá­fugl­arnir aðal­lega spjótum sínum að vinstri­st­jórn­inni, Rík­is­út­varp­inu og álits­gjöfum sem gagn­rýnt höfðu Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Óli Björn Kárason, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Jónas Har­alds­son blaða­maður voru um tíma rit­stjórar AMX.is. Frið­björn tók við kefl­inu árið 2010 og var ábyrgð­ar­maður þeirra umdeildu skrifa sem birt­ust á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár