Mynd: Kristinn Magnússon

Öryggis­menningu okkar er ógnað

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, stendur frammi fyrir fjár­skorti, faraó-maurum, myglu­sveppum, músa­gangi, atgervis­flótta, pláss­leysi og ákæru á starfs­mann fyrir mann­dráp af gáleysi. Þegar við töpum heils­unni verðum við hans verk­efni. Vinnu­staður Páls glímir við líf og dauða á hverjum degi. Hann vill að við hegðum okkur skyn­sam­lega, en trúir því að við eigum stundum erfitt með að ráða við okkur.

Hvers vegna tókstu að þér þessa stöðu?
Ég hóf störf nokkuð óvænt en þurfti ekki að hugsa mig lengi um. Ég hef mik­inn metnað fyrir hönd íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu og Land­spít­ali er þar fremstur í stafni. Við erum að móta spít­ala­þjón­ustu fram­tíð­ar­innar einmitt þessi miss­erin og ég tel að tæki­færi sem þessi komi ekki oft á ævinni.

Hvað viltu segja við lækna sem hafa flutt úr landi til að fá betri laun og vinnu­að­stöðu? Hvers vegna ættu þeir að koma aftur og fá lægri laun fyrir lengri vinnu­tíma?
Lærið og njótið ver­unnar. Ef þið viljið taka þátt í upp­bygg­ing­ar­starfi íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu og setja þannig mark ykkar á fram­tíð­ina höfum við svo sann­ar­lega not fyrir þekk­ingu ykkar og krafta.

Hversu margir læknar hafa til­kynnt að þeir séu hættir við upp­sögn eftir að lækna­verk­fall­inu lauk?
Tíu sögðu form­lega upp og hafa 8 þeirra dregið upp­sagnir sínar til baka.
Sjötíu eldri borg­arar eru nú fastir á Land­spít­al­anum og bíða eftir að kom­ast á hjúkr­un­ar­heim­ili. Komum við, sem sam­fé­lag, nógu vel fram við gamla fólkið?
Rúmlega 40 af þessum 70 dvelj­ast á Vífils­stöðum við ágætan aðbúnað, á meðan beðið er var­an­legs hjúkr­un­ar­rýmis. Um hina gildir það hins vegar að Land­spít­ali er ekki góður staður fyrir fólk sem ekki þarf á þjón­ustu hans að halda. Það á sér­stak­lega við um eldra fólk og eins og rann­sóknir sýna getur slík dvöl bein­línis verið skað­leg. Það er ekki sómi af stöð­unni eins og hún er í dag.

Hvers vegna eru bílar skyld­aðir í árlega ástands­skoðun eftir ákveð­inn aldur en ekki fólk?
Vænt­an­lega af því að fólk lýtur eigin vilja en bílar ekki.

Mætti minnka heil­brigð­is­vanda þjóð­ar­innar með því að haga borg­ar­skipu­lagi öðru­vísi en við gerum í dag?
Allt sem stuðlar að því að auð­velda fólki heil­brigða lifn­að­ar­hætti skiptir máli fyrir heil­brigði þjóð­ar­innar. Ef borg­ar­skipu­lag stuðlar að úti­vist og hreyf­ingu er það afar jákvætt, að sjálf­sögðu.

Telurðu að skatta­lækkun rík­is­stjórn­ar­innar á sykruðum mat­vælum og gos­drykkjum, ásamt hækkun ann­arra mat­væla, muni hafa ein­hver áhrif á heil­brigði þjóð­ar­innar?
Út frá lýð­heilsu­m­ark­miðum hefði ann­ars konar breyt­ing á skatt­kerf­inu verið heppi­legri. Áhrif þess­ara breyt­inga munu koma fram á lengri tíma og erfitt að spá fyrir um þau.

Hvort ertu hlynnt­ari því að leggja 61,5 millj­arða króna í bygg­ingu nýs Land­spít­ala eða í rekstur og tækja­kaup?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár