Hvernig þau náðu bata frá geðsjúkdómum

Átta ein­stak­lingar sem hafa veikst á geði segja frá því hvernig þeir þurftu að yfir­stíga for­dóma sam­fé­lags­ins til þess að leita sér aðstoðar, hvernig þeir hefðu viljað hafa aðgang að skóla­sál­fræð­ing og hvernig geð­heil­brigð­is­kerfið reynd­ist þeim í raun. Ein er hrædd um að ef hún hefði ekki fengið stuðn­ing Hug­arafls hefði hún svipt sig lífi, líkt og sonur hennar gerði.

Hvernig þau náðu bata frá geðsjúkdómum

Árni Steingrímsson

Lengi að yfirstíga fordóma

Hvenær og hvernig átt­aðir þú þig á því að þú þurftir á hjálp að halda?

Er ég veikt­ist á sínum tíma tók það mig langan tíma að við­ur­kenna fyrir sjálfum mér og öðrum að ég þyrfti á hjálp að halda vegna þeirra gíf­ur­legu for­dóma og nei­kvæðni sem ég mætti í mínu nærum­hverfi gegn geð­sjúk­dómum. Þegar það loks­ins gerð­ist, árið 1986, var ég langt leiddur af kvíða og þung­lyndi og fékk hjálp fyrst hjá heim­il­is­lækni, sem vís­aði mér til við­tals hjá geð­lækni, sem var ákaf­lega nei­kvæð upp­lifun og liðu margir mán­uðir þar til ég fékkst til að mæta aftur til við­tals, og þá hjá öðrum geð­lækni. Ég átt­aði mig á því, á þessum tíma­punkti, að ef ég leit­aði ekki hjálpar þá, yrði stutt í sjálfs­víg.

„Fyrsta við­tal­inu við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu