Mynd: Shutterstock

„Öræfin eru á alla mælikvarða verðmætari villt en virkjuð“

„Halda þau enn að stór­iðja, fisk­veiðar og land­bún­aður séu einu bjarg­ráð þjóð­ar­innar? Eru þau svona miklar gungur að þau geta ekki staðið í lapp­irnar gegn freka karl­inum?“ Stundin birtir erindi frá hátíð til verndar hálend­inu.

Para­dís­armissir, hátíð til verndar hálend­inu, var haldin síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld. Hátíðin var haldin á vegum nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og ferða­fé­laga til þess að vekja athygli á fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum á hálendi Íslands. 

„Sótt hefur verið inn á hálendið í auknum mæli á und­an­förnum ára­tugum og víð­ernin fara ört minnk­andi. Vaxandi þrýst­ingur er á að raska hálend­inu enn frekar með virkj­unum, upp­byggðum vegum og raf­línum. Tillögur eru um að leggja upp­byggðan veg um Kjöl og háspennu­línu og upp­byggðan veg yfir Sprengisand. Þá und­ir­búa orku­fyr­ir­tækin að reisa að minnsta kosti fimmtán nýjar virkj­anir eða uppi­stöðu­lón á hálend­inu, þar af eru fjórar fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir á svæðum sem nú eru í vernd­ar­flokki í verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda," segir á vef­síðu fram­taks­ins, Hjarta lands­ins.

Hús­fyllir var á hátíð­inni en við birtum ræður sem fluttar voru þetta kvöld, þar sem fólk var meðal ann­ars hvatt til þess að leggj­ast fyrir jarð­ýt­urnar, vogi þær sér upp á Sprengisand.

Stundin birtir hér ræð­urnar sem fluttar voru á hátíð­inni.

Malbikaðar hraðbrautir á hálendinu

15 nýjar virkj­anir áform­aðar á hálendi Íslands með til­heyr­andi lág­lendi­svæð­ingu hálend­is­ins með gisti­húsum og vega­sjoppum

 Guðmundur Ingi Guð­brands­son, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar:

„Hvers vegna er blásið til bar­áttufundar núna? Jú, vegna þess að sjaldan hefur verið jafn­mikil nauð­syn á sam­stöðu um vernd hálend­is­ins og á næstu miss­erum. Það er komið að ögur­stundu.

Ögur­stund er magn­þrungið orð. Er þessi drama­tík mín ein­vörð­ungu vegna þess að ég er fæddur drama­drottn­ing, sem ég fús­lega við­ur­kenni, eða hangir fleira á spýt­unni?

Skoðum það nánar.

Landsnet hyggst reisa stóra og áber­andi háspennu­línu í lofti þvert yfir Sprengisand, ekki ólíka þeim sem við sjáum á Hell­is­heið­inni. Sprengisands­lína myndi kljúfa hálendið í herðar niður.

Og Orku­fyr­ir­tækin vilja:

  • Virkja Jök­ulsárnar í Skaga­firði með óbæt­an­legu tjóni fyrir flúða­sigl­ingar og víð­feðm­ustu flæði­engi lands­ins og jafn­vel Norð­ur­land­anna.
  • Tvær vikj­anir í Skjálf­anda­fljóti með uppi­stöðu­lónum hátt upp á hálend­inu og nei­kvæðum áhrifum á ein­staka fossa eins og Ald­eyj­ar­foss.
  • Virkja jarð­hita­svæðið við Fremri­námar á ósnortnu land­svæði við Ket­ildyngju, milli Mývatns og Herðu­breið­ar­fjalla.
  • Virkja jarð­varma við Hágöngur í and­dyri Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.
  • Virkja við Skrokköldu á Sprengisands­leið.
  • Virkja við Norð­linga­öldu í jaðri Þjórs­ár­vera og eyði­leggja víð­erni vestan Þjórsár og foss­ana, þá bræður Dynk, Gljúf­ur­leit­ar­foss og Kjálfa­vers­foss.
  • Reisa Bjalla­virkjun og Tungna­ár­lón á óbyggðum víð­ernum milli Friðlands að Fjalla­baki og Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.
  • Virkja Hólmsá við Ein­hyrn­ing eða við Atley og Skaftá við Búland.
  • Reisa þrjár virkj­anir á vatna­sviði Hvítár: Haga­vatns­virkjun við Lang­jökul á frá­bæru úti­vist­ar­svæði, í Stóru-Laxá og við Búð­ar­tungu 5 km ofan Gullfoss.
  • Þá eru uppi hug­myndir um vind­myllur á tveimur stöðum.

Samtals eru þetta um 15 nýjar virkj­anir á hálendi Íslands.

Og þetta er ekki alveg búið...

Því virkj­unum fylgja nýjar, upp­byggðar og helst mal­bik­aðar hrað­brautir á hálend­inu, og í kjöl­farið lág­lendi­svæð­ing hálend­is­ins með gisit­húsum og vega­sjoppum. Skyn­sam­leg ákvörðun Vega­gerð­ar­innar í gær um að fresta umhverf­is­mati nýs Sprengisands­vegar um sinn er þó áfanga­sigur okkar allra.

Kæru gestir!

„Gleymum því ekki að eng­inn hefur greint frá því í hvað eigi að nota þessa orku.“

Gleymum því ekki að fjórar af þessum virkj­ana­hug­myndum eru í vernd­ar­flokki ramma­á­ætl­unar! Ég sem hélt í sak­leysi mínu að vernd­ar­flokkur þýddi vernd!

Gleymum því ekki að eng­inn hefur greint frá því í hvað eigi að nota þessa orku.

Gleymum því ekki að nú þegar hefur fjöl­mörgum svæðum á hálend­inu verið fórnað. Getum við sam­þykkt að skipta köku á milli verndar- og orku­nýt­ingar sem þegar er hálf? Svar mitt er

NEI!

Góðir gestir!

Þið munuð heyra hér á eftir hvers virði hálendið er. Þessar fram­kvæmdir ógna því virði. Þannig að ég spyr: „Hvaða fram­tíð viljum við sjá fyrir hálendi Íslands?“

Þessa hérna sem ég hef hér að framan lýst?

Eða þessa hér þar sem við tryggjum var­an­lega vernd hálendis Íslands?

ÞETTA ERU VALKOSTIRNIR! Svell­kaldur raun­veru­leik­inn.

Ég legg til að við nálg­umst vernd hálend­is­ins með jákvæðni og berj­umst fyrir okkar sýn, gerum hana að raun­veru­legum, áþreif­an­legum val­kosti sem getur hrifið fólk með okkur á vernd­ar­vagn­inn.

Að lokum geri ég orð Guð­mundar Páls Ólafs­sonar heit­ins að okkar allra: „Á meðan er okkar sæng upp reidd: Að verja hálendið, sjálft hjarta lands­ins, með ráð og dáð, sem sverð þess og skjöldur. Og ann­að­hvort verjum við það núna eða aldrei. Í húfi er æran, þín og mín; heiður allra Íslend­inga.“

Látum þennan fund marka endi Para­dís­armissis og upp­haf Para­dís­ar­heimtar.“

Aldeyjarfoss
Ald­eyj­ar­foss

Enginn selur sjálfviljugur úr sér hjartað

Við Íslend­ingar erum ekki lengur blás­nautt fólk, við erum rík þjóð.

Snorri Bald­urs­son, líf­fræð­ingur og hand­hafi íslensku bók­mennta­verð­laun­ana fyrir bók­ina Lífríki Íslands:

„Ég var beð­inn að koma með fræði­lega vídd inn á þennan fund og reyni að byrja þannig.... en tala þó ekki síður frá hjart­anu, enda er vernd hálend­is­ins hjart­ans mál ekki síður en höf­uðs­ins.

Landslag er afurð and­stæðra afla sem hlaða upp ann­ars vegar og rífa niður hins vegar. Eld­virknin hefur byggt upp landið og ísald­ar­jök­ullin er það meg­in­afl sem hefur rofið það og mótað. Þótt þessi öfl hafi verið mik­il­virk­ust á ísöld hafa þau síður en svo látið af störfum. Enn eru meg­in­eld­stövar í óða önn að hlaða upp gíga og hraun og enn eru jöklar og jök­ulár að puða við að rjúfa, slétta og jafna... að ógleymdum vind­inum.

Mið­há­lendi Íslands er eld­brunnin háslétta þakin hraun­breiðum, vikrum og svörtum söndum. Upp úr slétt­unni rísa blá­hvítar jök­ul­breiður, grænir móbergs­hryggir, form­fögur eld­fjöll, dyngjur og stapar. Á stöku stað eru upp­sprettu­lindir, gróð­ur­vinjar og lit­skrúðug háhita­svæði, og til jaðr­anna sam­felldar grónar heiðar með fiski­vötnum þar sem himbrimi og hávella syngja. “Nóttlaus vor­ald­ar­ver­öld þar sem víð­sýnið skín” kvað Stephan G. og fang­aði í einni setn­ingu töfra öræf­anna og íslenska sum­ars­ins.”

„Hvergi í heim­inum sé unnt að finna á afmörk­uðu svæði jafn fjöl­breyti­leg ummerki um átök jökla og eld­virkni og á hálendi Íslands.“

Virtustu jarð­vís­inda­menn okkar hafa kom­ist að þeirri skýru nið­ur­stöðu að hvergi í heim­inum sé unnt að finna á afmörk­uðu svæði jafn fjöl­breyti­leg ummerki um átök jökla og eld­virkni og á hálendi Íslands. Og jarð­mynd­anir sem þar er að finna hafa hjálpað fræði­mönnum að skýra sam­bæri­leg fyr­ir­bæri á plánet­unni Mars; hrauntraðir, ham­fara­hlaups­far­vegi, gervi­gíga­þyrp­ingar. Líf sem upp­götvast í Skaft­ár­kötlum undir Vatna­jökli leiðir óðar hug­ann að því hvort sam­bæri­legt líf sé að finna undir íshell­unni á Evrópu fylgitungli Júpíters.

Semsagt, hvergi er sköpun Jarð­ar­innar og starf­semi mót­un­arafla hennar, jarð­elds, jökla, vatns, vinds og lífs sýni­legri en á hálendi Íslands. Þar fer fram stöðug sýni­kennsla í land­mótun og næmar mann­eskjur skynja þar vel þennan frum­kraft sköp­un­ar­innar. Það eru ekki margir staðir á jörð­inni sem búa yfir sam­bæri­legum töfrum og eru jafn aðgengi­legir. Lund­ún­ar­búi getur á einum degi kom­ist úr skarkala stór­borg­ar­innar aftur til upp­hafs­ins! Og fyrir okkur, íbúa þessa lands, tekur það aðeins einn til tvo tíma.

Æ fleiri ferða­menn, inn­lendir og erlendir, eru að upp­götva þessa stað­reynd. Árið 1969 þegar Búr­fells­virkjun var vígð og mark­aði upp­haf stór­iðju­stefn­unnar, komu hingar 44.000 erlendir ferða­menn. Á síð­asta ári voru þeir rétt um ein milljón og skil­uðu um 300 millj­örðum í gjald­eyr­is­tekjur, meir en nokkur önnur atvinnu­grein. Fjórir af hverjum fimm þess­ara ferða­manna, 800.000 manns, sögð­ust koma hingað fyrst og fremst vegna ein­stæðrar nátt­úru lands­ins.

Öræfin okkar, hálendi Íslands, er þess vegna ein­stök ger­semi fyrir okkur íbúa þessa lands og alls heims­ins, langstærsta óbyggða víð­erni Evrópu sunnan heim­skauts­baugs og einn allra dýr­mæt­asti arfur þjóð­ar­innar til langs tíma litið. Þetta blásna, eld­brunna hjarta lands­ins hefur aldrei verið byggt – að und­an­skildum örfáum úti­leg­u­mönnum – en það býr samt í okkur öllum. Öræfin búa í hjörtum okkar og sinni, hug­ar­heimi, sögum, menn­ingu og listum. Þau eru hluti af okkur alveg eins og sagan og tungan. Hvar væru íslensku ævin­týrin, úti­legu­manna­sög­urnar, hroll­vekj­urnar án óbyggð­anna?.... “Enn er þó reymt á Kili”..... Eða kvæðin og vís­urnar sem allir þekkja: “Ríðum og ríðum”, “Yfir kald­ann eyðisand”, ”Óbyggð­irnar kalla” og „kyrja þar dimman kvæða­són Kverk­fjalla­vættir reiðar“. Örnefni eins og Ódáða­hraun, Sprengi­sandur, Eiríks­jök­ull, Hvanna­lindir og Von­ar­skarð springa út í hugum okkar í lit­ríkum sögum og sýnum. Öræfin eru nátt­úru­arfur Íslend­inga, Kon­ungs­bók nátt­úr­unnar.

„Öræfin búa í hjörtum okkar og sinni, hug­ar­heimi, sögum, menn­ingu og listum. Þau eru hluti af okkur.“

Önnur kon­ungs­bók, Kon­ungs­bók eddu­kvæða, er með orðum Arnaldar Ind­riða­sonar „tötrum klædd bók­ar­drusla... en … þótt við ættum aðeins hana eina værum við rík að bók­menntum og hefðum lagt stóran skerf til heims­menn­ing­ar­innar.“ Hvað er hálendið annað en Kon­ungs­bók íslenskrar nátt­úru? Þótt við ættum það eitt, villt og dulúð­ugt, værum við rík að nátt­úru­gæðum. Að spilla því meir en orðið er fyrir svo­kallað raf­orku­ör­yggi eða örfá mega­vött til við­bótar er ekk­ert annað en glæpur gegn nátt­úr­unni og íslenskri þjóð­ar­sál. Væri atvinnu­vega­nefnd Alþingis til í að selja Kon­ungs­bók eddu­kvæða bær­ist í hana gott til­boð, svo sem eins og tveir millj­arðar?

Blás­nautt alþýðu­fólk hér áður fyrr not­aði skinn­hand­rit í skó­leppa og reyndi jafn­vel að leggja þau sér til munns í hall­ærum. Fátæk­lingar úti í heimi selja úr sér annað nýrað til að fram­fleyta fjöl­skyldum sínum, vegna þess að það er eina úrræðið sem eftir er. En eng­inn selur sjálf­vilj­ugur úr sér hjartað og við Íslend­ingar erum ekki lengur blás­nautt fólk, við erum rík þjóð.

Í mínu ung­dæmi þótti það ekki bera vott um mikil búhygg­indi – frekar heimsku og búskussa­hátt – að eta útsæði næsta árs. Samt eru sterk öfl í þessu þjóð­fé­lagi ennþá til sem vilja eta þetta útsæði fram­tíð­ar­innar, þennan óend­an­lega dýr­mæta nátt­úru- og menn­ing­ar­arf okkar. Jök­ul­fljótin og háhita­svæðin fara ekk­ert á næst­unni þótt þau fái að renna og blása óáreitt. Þau mala okkur gull óhamin. Öræfin okkar eru á alla mæli­kvarða verð­mæt­ari villt en virkjuð.

„Jökulfljótin og háhita­svæðin fara ekk­ert á næst­unni þótt þau fái að renna og blása óáreitt. Þau mala okkur gull óhamin.“

Ég klóra mér oft í koll­inum yfir okkar ágætu ráða­mönnum, körlum og konum til hægri og vinstri. Eru þau svona ríg­föst í fjötra hug­ar­fars síð­ustu aldar að þau skynji ekki tíð­ar­and­ann? Halda þau enn að stór­iðja, fisk­veiðar og land­bún­aður séu einu bjarg­ráð þjóð­ar­innar? Eru þau svona miklar gungur að þau geta ekki staðið í lapp­irnar gegn freka karl­inum sem á og rekur Skrokköldu hf eða Haga­vatns­virkjun ehf? Ráða eig­in­hags­munir för? Hvað veldur?

Ég hef ekki svar við því, kæru áheyr­endur, en veit þó að við getum ekki treyst á skyndi­lega hug­ar­fars­breyt­ingu stjórn­mála­manna. Við verðum sjálf, með órofa sam­stöðu, að tryggja vernd hálend­is­ins. Til þess þurfum við að láta finna fyrir okkur. Við þurfum að tala við vini og vanda­menn, senda bréf og pósta, skrifa greinar, birta myndir, láta til okkar taka á sam­fé­lags­miðlum. Við þurfum að nýta sam­bönd okkar í útlöndum, standa á Aust­ur­velli og óhlýðn­ast þegar þess þarf. Og við þurfum umfram allt að vera albúin að leggj­ast fyrir jarð­ýt­urnar, vogi þær sér upp á Sprengisand.“

Kerlingafjöll
Kerl­inga­fjöll

Töfrar fjallanna bíða eftir sínu skáldi

Þessi ósnortnu, óefn­is­legu, og ólýs­an­legu verð­mæti mið­há­lend­is­ins sem við þurfum að standa vörð um.

Steinar Kaldal, verk­efna­stjóri hálendis­verk­efnis Land­verndar og Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands:

„Í viða­mik­illi könnun á meðal Norð­ur­landa­þjóð­anna voru Íslend­ingar meðal ann­ars beðnir um að nefna helsta tákn þjóðar sinnar.

Íslensk tunga, saga og menn­ing voru nefnd af mörgum. En það sem flestir nefndu var íslenskt lands­lag.

Lands­lagið liggur djúpt í vit­und okkar og óvíða hefur það meiri áhrif á okkur en á víð­ernum mið­há­lend­is­ins.

Að lýsa áhrif­unum og feg­urð­inni sem þar ber fyrir augu er hins vegar ekki ein­falt. Lista­mað­ur­inn Guð­mundur Ein­ars­son frá Miðdal, sem var einn frum­kvöðla hálend­is­ferða hér á landi, orðar þetta vel í bók sinni Fjalla­menn, sem gefin var út árið 1946.

„Það er að sínu leyti eins erfitt að lýsa útsýni af fjöllum eins og að lýsa sjón­ar­hæð fugls­ins, og að ætla sér að mála sól­ina.“

Stand­andi á hæsta tindi Kerl­ing­ar­fjalla, Snækolli, með útsýni yfir ósnortin víð­ernin, lýsir hann því sem kemur upp í hug­ann og skrifar: Það er að sínu leyti eins erfitt að lýsa útsýni af fjöllum eins og að lýsa sjón­ar­hæð fugls­ins, og að ætla sér að mála sól­ina.

Hljóð­falli brims­ins, vor­þyt­inum í gras­inu og norð­ur­ljósa­dansi vetr­ar­ins hefur verið lýst meist­ar­lega á öllum öldum. En töfrar fjall­anna bíða eftir sínu skáldi.

Það er margt til í þessu hjá Guðmundi Ein­ars­syni.

Og það eru þessi ósnortnu, óefn­is­legu, og oft á tíðum ólýs­an­legu verð­mæti mið­há­lend­is­ins, sem við þurfum að standa vörð um.“

Kjölur
Kjölur

Kaupmáttur aukist með heróínsprautu í hagkerfið

Ef allir jarð­ar­búar myndu nota jafn­mkið af auð­lindum og við íslend­ingar þá þyrfti að minnsta kosti ell­efu jarðir til við­bótar.

Kristín Helga Gunn­ars­dóttir, rit­höf­undur, leið­sögu­maður og nátt­úru­vernd­ar­sinni:

„„Leikur öræfa­andi,

Hvísla ein­veru­hljóð,

breið­ist hátign­ar­hjúpur

yfir heið­anna slóð.

O'n af forn­helgum fjöllum

þrumar for­laga­mál.

Á þeim afskekktu stöðvum

ríkir ómæl­is­sál.”

Þannig fang­aði Jóhannes úr Kötlum öræfa­and­ann - gald­ur­inn sem býr í auðn­inni og kyrrð­inni.

Og við spyrjum okkur: Hvers virði er þetta? Getum við búið til gjald­skrá? Hvað borgum við fyrir að sjá og upp­lifa? Er verð­miði? Hvaða rekstr­ar­for­sendur má leggja til grund­vallar hér

Hag­fræði­leg við­mið, hag­ræn gildi, hag­vöxtur, arð­semi fjár­magns, fram­leiðni hag­kerfa, krafa um stöðugan vöxt, einka­neysla og kaup­mátt­ar­aukn­ing. Hér eru aðeins örfá af ótal hand­ó­nýtum hug­tökum sem byggja á ónýtu kerfi for­tíðar. Kerfi sem við rog­umst með og felur í sér tor­tím­ingu jarðar, afát, ofneyslu, ágang, græðgi og sóun sem bitnar fyrst og síð­ast á heim­il­inu okkar, plánetu jörð. Bitnar á nærum­hverf­inu, land­inu og sveit­inni okkar, bak­garð­inum og okkur sjálfum, en mest þó á afkom­endum okkar um ókomna tíð.

„Kerfi sem við rog­umst með og felur í sér tor­tím­ingu jarðar, afát, ofneyslu, ágang, græðgi og sóun sem bitnar fyrst og síð­ast á heim­il­inu okkar, plánetu jörð.“

Og í stað þess að sjá sjúk­dóms­ein­kennin, hlusta á hjart­slátt jarðar, fylgj­ast með óstöð­ugu línu­riti ,höldum við ótrauð áfram. Við sláum okkur á lær í veislum yfir því að ef allir jarð­ar­búar myndu nota jafn­mkið af auð­lindum og við íslend­ingar, og gera sömu neyslu­kröfur og við, þá þyrfti að minnsta kosti ell­efu jarðir til við­bótar.

En við hljótum að læra og lifa í batn­andi heimi. Eða eins og Birtíngur sagði - „Allt er gott, allt gengur vel. Allt gengur hið besta sem má.“

Afhverju búum við þá við rík­is­stjórn sem starfar eftir hug­mynda­fræði lið­innar aldar? Ráðamenn sem kasta fjöreggjum á milli bið­flokka og nýt­ing­ar­flokka - eins og óðar tröllskessur? Afhverju höfum við verið slegin ára­tugi aftur í tím­ann í hug­ar­fari, við­horfum, stefnu og fram­tíð­ar­sýn?

Eitt er þó öðru­vísi í dag en um miðja síð­ustu öld. Við erum fleiri sem spyrnum við fótum. Við, nátt­úru­fólkið, erum ekki lít­ill hópur sér­vitr­inga sem auð­velt er að hundsa og hæð­ast að. Nei, við erum fjölda­hreyf­ing. Það er vit­und­ar­vakn­ing. Hún er ekki bara á Íslandi heldur út um alla ver­öld. Við erum mörg og okkur fjölgar mjög hratt.

Því miður líka vegna þess hve víða blikur eru á lofti. ,,Fyrst láta þeir eins og við séum ekki til. Svo hlæja þeir að okkur. Því næst berj­ast þeir við okkur og svo sigrum við,”sagði Mahatma Gandhi. Þau orð eru okkar leið­ar­ljós. Þannig verður maður að sjá þetta ferli sem við erum í. Þetta er bar­átta fyrir fram­tíð­ina. Orrustan um Ísland, liður í stærri bar­áttu fyrir líf­væn­legri ver­öld.

Þannig vitum við öll að í fram­tíð­inni mun hver ein­asta ákvörðun sem stjórn­mála­menn standa frammi fyrir verða tekin ein­göngu með til­liti til umhverfis og nátt­úru- aðeins með hlið­sjón af því hvað það gerir fyrir jörð­ina, landið, sveit­ina og bak­garð­inn. Við erum á þessum kross­götum núna og aðstæður þvinga valda­menn ver­aldar á næst­unni til að velja þessa stefnu. Því fyrr sem þeir átta sig, því betra.

Og hvar er betra að skapa fyr­ir­mynd­ina en á Íslandi? Við erum fámenn. Við búum við land­fræði­lega ein­angrun en erum líka mið­svæðis í ver­öld­inni. Við náum svo auð­veld­lega athygli þegar við hrópum hátt – hvort sem við skandalíserum eða gerum eitt­hvað snið­ugt. Við höfum hér mögnuð tæki­færi til að búa til nýja fram­tíð­ar­sýn fyrir ver­öld­ina til að lifa eftir. Þar er afkomu­tæki­færi fyrir okkur svo aðrar þjóðir megi læra af, skoða og nýta sér. Við gætum leitt umræð­una á heims­vísu, umræð­una um það hvernig mann­skepnan getur lifað af í heim­inum með sem minnstri áníðslu. Það hlýtur alltaf að vera hið end­an­lega mark­mið.

 Enda­laust þarf að skoða nýja virkj­ana­kosti, end­ur­skoða og end­ur­flokka ár og sprænur, öræfi og eyði­land. 

En allt stefnir að stækkun og fram­farir ganga út á að finna ný þol­mörk og kom­ast þangað. Enda­laust þarf að skoða nýja virkj­ana­kosti, end­ur­skoða og end­ur­flokka ár og sprænur, öræfi og eyði­land. Það er ekki síst svo verk­takar hafi risa­verk­efni til að keyra áfram dýran tækja­búnað og mann­afla sem krefst öfl­ugra skyndi­úr­ræða, svo kaup­máttur auk­ist með heróín­sprautu í hag­kerfið.

Við þurfum að hugsa hlut­ina upp á nýtt. Ekki lappa upp á ónýtt kerfi. Það vantar nýtt kerfi – kerfi sem heitir ekki hag­kerfi. Það orð er ónýtt. Kannski ætti það að heita jarð­kerfi? Og hag­fræð­ingar morg­un­dags­ins væru þá jarð­kerf­is­fræð­ingar sem gæfu út jarð­tölur og könn­uðu jarð­vöxt, og jarð­ræn gildi. Hagkerfi er hannað út frá pen­inga­legu reglu­verki, en jarð­kerfið myndi taka inn allar breyt­urnar. Taka inn þessar breytur sem mann­eskjur vand­ræð­ast með í dag og kalla til­finn­inga­breytur, nátt­úru­barna­skap og fjalla­grasaló­gíg.

Það sem er gott fyrir jörð­ina er gott fyrir okkur. Vð erum eitt. Hættum að tala um mann og nátt­úru. Maður er nátt­úra. Við þurfum ný gildi með fram­tíð jarðar, lands, sveitar, okkar sjálfra og afkom­end­anna að leið­ar­ljósi.

Við erum land­verðir og flytjum fjár­sjóð­inn frá einni kyn­slóð til ann­arrar. Við hverfum sjálf eftir augna­blik og verðum að mold. Við verðum að jörð sem öðrum verður falið að varð­veita svo næstu kyn­slóðir njóti gæða og deili saman.

Við erum land­verðir og vitum að morg­un­dag­ur­inn geymir nýjar upp­finn­ingar sem ganga út á að ganga ekki á - heldur gefa og auka vöxt og við­gang nátt­úru og jarðar.

Við erum róm­verjar norð­urs­ins. Í Róm biðja heima­menn alla að virða og ganga vel um sam­eig­in­legar forn­minjar heims­ins. Þar stinga menn varla niður múr­skeið án þess að ræða mál og skipu­leggja. Við ættum hvergi að mega stinga niður skurð­gröfu­kjafti án þess að taka sam­talið langa um gildi lands og fram­tíðar og jarð­rænnar þró­unnar.

Við erum róm­verjar norð­urs­ins. Í Róm biðja heima­menn alla að virða og ganga vel um sam­eig­in­legar forn­minjar heims­ins.

Við erum fjölda­hreyf­ing og við verðum að stækka hratt því við stöndum vörð um heimsminjar. Þekking er öfl­ug­asta vopnið í bar­átt­unni gegn öfga­öflum. Inn­leiðum umhverfis - og nátt­úru­vernd­ar­fræði í skóla­kerfið frá fyrstu tíð. Tölum saman. Upplýsum og leysum allan okkar sköp­un­ar­kraft úr læð­ingi í þágu nátt­úru- Verum jarð­sýn.

Raf­lín­ur­skógar og upp­hækk­aðar hrað­brautir með vega­sjoppum og til­heyr­andi mann­virkjum á öræfum Íslands er allra síst það sem ferða­mað­ur­inn leitar að, hvort heldur hann er íslenskur eða gestur að utan.

Það vissi Jóhannes úr Kötlum líka þegar hann sagði þetta um öræfin: „Þar er hrein­leik­ans heimur, og þar hverfur allt tál; þar er hliðið til him­ins manns­ins hrjáð­ustu sál Einmitt þess­vegna er þögnin meiri en þrumu­hljóð heit, — marg­falt auð­ugri auðnin en hin algróna sveit.“

Sprengisandur
Sprengi­sandur

Skítt með loftslagsbreytingar og súrnun sjávar

Hverjum er ekki sama um grjót og svarta sanda þegar hörm­ungar minnk­andi hag­vaxtar kalla á umsvif

Þorbjörg Sandra Bakke, Tinna Eiríks­dóttir og Hrönn Guð­munds­dóttir: 

 

Ísland örum skorið

I

Ísland ögrum skorið

skorið í sundur með háspennu­línu

þvert yfir Sprengisand

krass!

Íslands þús­und ár

í uppi­stöðu­lóni

urð og grjót og svartir sandar

allt á kafi

allt á bull­andi kafi

því að lítil þjóð

með stóra drauma

kann sér ekki hóf

 

II

Á Íslandi ríkir sátt um orku­fram­leiðslu

sátt um að tapp‘af Reykja­nes­inu

sátt um að fórna Torfajökli

sátt um að lands­lag sé einskis virði

nema það skili hagn­aði

sátt um Ísland örum skorið

sátt um að nema aldrei staðar

skál í Skjálf­anda­fljóti

skál í Þjórs­ár­verum

skál í hag­vexti

skál!

drekkum okkur full

erfum börnin að þynn­kunni

og að dreggjum deyj­andi lands

 

III

Hverjum er ekki sama um grjót og svarta sanda

þegar hörm­ungar minnk­andi hag­vaxtar

kalla á umsvif, kalla á aðgerðir

kalla á íslensk jök­ul­vötn

að hætta að renna gagns­laus til sjávar

fórna sér fyrir mál­stað­inn

koma svo!

 

IV

Og ál er sko grænn málmur

Bjarni Ben segir það, Orku­stofnun segir það

ál mun bjarga heim­inum og okkur

og hey, við erum öll hlut­laus

hlut­leysið bullar í æðum vor

skítt með lofts­lags­breyt­ingar og súrnun sjávar

við virkjum okkur til sjálf­bærni

fögnum, systur

því enn eru Íslands þús­und ár á útsölu

 

V

Og hey, hlýnun jarðar býður upp á nýja og spenn­andi mögu­leika

í akur­yrkju, ferða­mennsku og skap­andi nið­ur­rifi

Dis­neyland víð­ern­anna

býður í ferða­mannap­artý þús­ald­ar­innar

hálendið, gerum það spenn­andi!

fáum Helga Björns til að segja að það sé sexí

þol­mörk ferða­manna­staða er mýta

og hálendið stórt

rúmar eina, tvær, þrjár Kára­hnjúka­virkj­anir

og túrista á rútum

Því virkj­anir eru líka nátt­úra

stöðv­ar­hús er nátt­úra

stein­dautt Lag­ar­fljót er nátt­úra

– og við hljótum að finna tækni­lega ásætt­an­lega leið til að virkja Gullfoss án þess að túrist­arnir taki eftir:

„pass­aðu þig samt, það er mjög löng röð á kló­settið. Þú mátt ekki missa af rút­unni!“

grípum gæs­ina meðan hún gefst …

og við færum bara gæs­irnar ef þær eru fyrir

þjóðin lepur dauð­ann úr skel

nema álverum fjölgi

árangur áfram, ekk­ert stopp!

 

VI

Nú skal bjarga sökkvandi skipi

göngum með grasið í skónum

á eftir Alcoa

því að allt er vænt sem vel er grænt

þótt grænt sé svart

og sokkið land

og brenni­steins­meng­aður mosi

 

VII

…og hjól atvinnu­lífs­ins snú­ast áfram

og áfram og áfram og áfram

um Íslands þús­und ár

þar til eng­inn man lengur

hvernig víð­erni og eyði­mörk

og ósnortið land

gerði fólk með stóra drauma meyrt í hjart­anu

hjarta lands­ins

horfið undir stein­steypu og mann­virki

gildi þess mælt í doll­urum í árs­reikn­ingi Alcoa

foldin fagra og jök­uls­ins kraftur

BAMM!

 

VIII

Og svo einn dag­inn,

þegar ég er löngu dáin

og við erum öll löngu dáin

og barna­börnin og barna­barna­börnin

og barna­barna­barna­börnin hafa eign­ast sín börn

þá spyr kannski ein­hver

 

„Manstu?

Manstu þegar það voru engar raf­línur?

Manstu þegar það var engin virkjun?

Manstu þegar það var ekk­ert uppi­stöðu­lón?

Hvernig var þetta þá?

var í alvör­unni hægt að sitja í þögn?

var í alvör­unni ekk­ert nema víð­áttan hvert sem litið var?

nei, ég man ekki“

 

IX

En hvað ef við skrifum nýja sögu

nýja Íslend­inga­sögu

um fólk sem horfði fram á veg­inn

og sá betra Ísland með blóm í haga

hjarta lands­ins heil­brigt, slá­andi, óstíflað

urð og grjót og svartir sandar

um Íslands þús­und ár

sagan er okkar

við skrifum hana

áfram, systur!

– kafla­skil 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár