Mynd: Heiða Helgadóttir

„Myrkrið er hluti af mér“

Skáldið Soffía Lára ferð­ast milli ljóss og myrk­urs í lífi sem list. Hún hefur oft reynt að svipta sig lífi. Hún var umlukin óreiðu en á sér drauma um ein­falt líf og skrifar sig eftir leið­inni að því.

Soffía Lára svaf í skáp um dag­inn, vegna þess að hún átti ekki dýnu. Það er þó fram­för frá því í sumar þegar hún var heim­il­is­laus og þræddi göt­urnar með rit­vél í bak­poka. Hún svaf í hengi­rúmi við hafið í mið­næt­ur­sól­inni. Þess á milli reyndi hún að selja ljóða­bæk­urnar sínar á göt­unni og á börum. Hún gefur út ljóðin sjálf. Þau fjalla um leið hennar í myrkr­inu og í ljós­inu.
Soffía Lára situr og segir frá á Hressó. Hún er í kol­svartri loð­kápu með hettu en á loð­inu eru hvítar, til­vilj­ana­kenndar rákir. Hún fann leið­ina til að losa sig við myrkrið.

Skrifin

Þegar Soffía Lára var sautján ára komst hún að þeirri nið­ur­stöðu að hún yrði að gera eitt­hvað. Hún bjó ein í ris­í­búð í Vesturbæ Reykja­víkur ásamt þremur köttum.

„Ég var að lifa líf­inu. Mjög hvers­dags­lega. Ég átti ketti. Vaskaði upp. Keypti í mat­inn. Þá datt mér í hug: Ég verð að gera eitt­hvað við líf mitt. Hvað á ég að gera? Ég er góð í mál­fræði og íslensku og svona, ég skrifa bara bækur. Ég verð bara rit­höf­undur eða ljóð­skáld eða hvað þú vilt kalla það, ég bara skrifa. Ég vissi ekk­ert hvað ég var að gera. Ég hafði aldrei skrifað sögu eða ljóð. En mér datt þetta bara í hug. Hvað á ég að gera? Ég verð að hafa 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár