Ljósmyndarar á vegum Stundarinnar hafa lagt upp í mörg langtímaverkefni á árinu. Meðal annars hefur verið farið í réttir, fylgt eftir flóttafólki, fylgst með undirbúningi útfarar og fleira.
Sá sem leiðir þig inn í nóttinaRúnar Geirmundsson útfararstjóri starfar við að búa til kveðjustund fyrir aðstandendur látinna. Helsta áskorun Rúnars í því að umgangast aðstandendur hins látna en ekki hinn látna sjálfan.
Mynd: Kristinn Magnússon
Íslenskir múslimar verða fyrir fordómum
Íslenskir múslimarStundin fjallaði um íslenska múslima og hatur sem þeir verða fyrir. Nýrasismi grasserar í lokuðum umræðuhópum. Á meðfylgjandi mynd sést íslenskur múslimi tilbiðja Allah.
Lífið á KvíabryggjuAðstæður í fangelsinu á Kvíabryggju nærri Grundarfirði hafa verið mikið til umræðu á árinu í kjölfar komu þekktra bankamanna í fangelsið. Stundin heimsótti fangelsið síðasta vor.
Fljúgandi börn í VesturbænumMaría Margrét Jóhannsdóttir er með trampólín í stofunni fyrir dætur sínar tvær, Kríu og Natalíu. Stundin kom í innlit á heimili hennar við Sólvallagötu.
Afi og ammaBlaðamaðurinn Jón Bjarki Magnússon skrifaði um afa sinn og ömmu, Trausta Breiðfjörð og Huldu Jónsdóttur, sem eru hátt í hundrað ára Strandamenn.
Fyrir fjárkúgunarmáliðFjölmiðlakonan Hlín Einarsdóttir kom í viðtal hjá Stundinni síðasta vor þar sem hún lýsti meðal annars heilaþvætti Votta Jehóva. Þegar viðtalið birtist hafði hún orðið uppvís að aðild að fjárkúgun á hendur forsætisráðherra.
Hengistóll í stofunniHelga Guðrún Friðriksdóttir hönnuður og Orri Finnbogason búa í lítilli íbúð á Vesturgötunni. Í stofunni er hengistóll, sem sýnir hvernig týpur fólk er. Annars vegar er það fólkið sem fer beint í stólinn og hins vegar þeir sem þora ekki að setjast í hann.
„Ég er partýdvergurinn“Þorgeir Gunnarsson, stundum kallaður Toggi dvergur, sagði frá lífshlaupi sínu í viðtali við Stundina í september. Hann lifði lífinu til fulls og kunni að skemmta sér. Þorgeir lést fyrir nokkrum vikum.
Mynd: Heiða Helgadóttir
Ungt par fer úr landi
LandflutningurinnStundin fylgdi eftir ungu pari sem flutti úr landi til að láta drauma sína rætast. „Ég held að við komum ekkert til baka.“
Ekki forseti„Ef maður er forseti þá er maður ekkert annað,“ sagði Jón Gnarr í viðtali við Stundina, þar sem hann útskýrði hvers vegna hann hefði ákveðið að vinna hjá 365 frekar en að fara í forsetaframboð.
KveðjustundinUngi leikskóladrengurinn Kevi, sem var vísað úr landi með lögreglufylgd, skoðar úrklippubókina frá leikskólanum sínum, sem hann svaf með sér við hlið nóttina áður en lögreglan sótti hann og fjölskyldu hans á heimili þeirra í Barmahlíð. Móðir hans, Xhulia, heldur á bókinni og Klea horfir yfir öxl hennar.
Athugasemdir