Mynd: Nanna Rögnvaldar

Mikilvægasta máltíðin?

Morg­un­verður getur verið svo margt. Fyrir suma er það heil mál­tíð, stór og hita­ein­inga­rík – svo sem eins og enskur morgun­verður: egg, beikon, steiktar pylsur og tómatar, bak­aðar baunir, brauð og fleira. ​Fyrir aðra er það morg­un­korn, sykrað eða ósykrað, mjólk, brauð og ostur, ávaxta­safi og fleira. Fyrir enn aðra er það orku­stöng eða hafra­stykki, ávaxta­safi eða þeyt­ingur. Og fyrir marga er það kaffi­­bolli eða alls ekki neitt.

En hefur þetta allt saman áhrif á líðan yfir dag­inn, lík­am­lega og and­lega orku, mat­ar­lyst, heilsu og holda­far? Já, að ein­hverju leyti – en kannski ekki eins mikil og fólk heldur.

Allir kann­ast við fra­s­ann ,,morg­un­verður­­inn er mik­il­væg­asta mál­tíð dags­ins“ og flestir trúa því að þetta sé alveg rétt, hvernig sem þeim gengur svo að til­einka sér hann og borða stað­góða og heilsu­sam­lega mál­tíð á hverjum morgni. En er þetta í raun­inni svo? Er morg­un­verð­ur­inn svona mik­il­vægur? Eru þeir sem sleppa morg­un­verð­inum alveg – eða láta kaffi­bolla eða eitt­hvað slíkt duga – að stofna heils­unni í hættu?

Vissu­lega hefur komið fram í rann­sóknum að fólk sem borðar morg­un­verð á morgn­ana er að jafn­aði hraust­ara og grennra en fólk sem sleppir honum alveg. Það gleym­ist hins vegar að geta þess að í þessum rann­sóknum hefur líka komið fram að fólk sem borðar stað­góðan morg­un­verð lifir gjarna heil­brigð­ara lífi en þeir sem sleppa honum alveg svo að ekki er vel ljóst hvað er orsök og hvað afleið­ing. Er fólk hraust­ara og grennra vegna þess að það borðar morg­un­mat eða er það kannski frekar heilsu­betra vegna þess að það lifir heil­brigð­ara lífi frá morgni til kvölds?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár