Mynd: Heiða Helgadóttir

Maðurinn margbreytilegur í einsleitni sinni

Við kíktum í kaffi til Stein­unnar Þór­ar­ins­dóttur mynd­list­ar­konu á Fram­nes­veg­inn, á vinnu­stofu hennar á Sól­vall­ar­göt­unni og á nýj­ustu sýn­ingu hennar, Mósaík, í list­hús­inu Tveir hrafnar.

Mikið er um að vera á Fram­nes­veg­inum þegar blaða­mann og ljós­mynd­ara ber að garði. Búið er að breiða plast yfir hús­gögn í stof­unni og taka myndir og lista­verk niður af veggjum. Ung kona í hvítum vinnugalla setur máln­ing­ar­lím­band á gólf­lista á meðan sam­starfs­maður hennar sparslar veggi. Það er verið að mála allt húsið. 

Við fáum okkur sæti inni í eld­húsi þar sem Steinunn býður upp á nýlagað kaffi og fersk blá­ber. Á eld­hús­borð­inu standa gull­fal­legar og nýskornar, föl­bleikar rósir. Við byrjum á því að tala aðeins um húsið, en það var byggt árið 1902 og hefur verið í eigu fjöl­skyld­unnar í rúm fjör­tíu ár. Töluvert hefur verið unnið að end­ur­bótum í gegnum árin. „Við byggðum til dæmis við húsið árið sem eldri sonur okkar fædd­ist, 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár