„Kuldinn er besti vinur minn“

„Ísmað­ur­inn“ Wim Hof hefur storkað öllum hug­myndum sem við höfum um manns­lík­amann með ótrú­legu þoli fyrir kulda. Sölvi Tryggva­son hitti Wim og próf­aði aðferðir hans.

Kuldinn er mis­kunn­ar­laus, en rétt­látur,“ segir Ísmað­ur­inn Wim Hof, sem slegið hefur öll heims­met í kulda­þoli. Þessi 56 ára gamli Hol­lend­ingur hefur meðal ann­ars hlaupið heilt mara­þon á stutt­buxum í tæp­lega 20 gráðu frosti, gengið upp í nærri 7 þús­und metra hæð í hlíðum Mount Everest í sömu klæðum og árið 2010 var hann umvaf­inn ís í nærri tvær klukku­stundir við aðstæður sem fæstir myndu þola í meira en eina til tvær mín­útur. Hann hefur með öðrum orðum storkað öllum hefð­bundnum lög­málum lækn­is­fræð­innar og vís­inda­menn reyna nú að skilja hvernig á því stendur.

Aðferðirnar prófaðar

Ég er ekki fyrr sestur á móti þessum stór­merki­lega manni en hann byrjar að leiða mig í gegnum önd­unaræf­ingar, sem hann full­yrðir að keyri ónæm­is­kerfið í fimmta gír, rífi upp adrena­lín og lækki sýru­stig í lík­am­anum. Það er eins og við mann­inn mælt. Eftir aðeins nokkrar mín­útur með Ísmann­inum get ég haldið niðri and­anum í rúm­lega eina og hálfa mín­útu án mik­ils erf­iðis. 

„Þetta er ástæðan fyrir því að ég vil ekki byrja við­talið fyrr en þú ert búinn að fá smjör­þef­inn af því sem ég er að gera. Þú verður að upp­lifa aðferð­irnar til að trúa því að ég sé ekki bara að bulla eitt­hvað út í loftið,“ segir Wim og horfir á mig alvar­legum en góð­lát­legum augum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár