Menntun lyk­ill­inn Skref sem stigin eru til að tak­marka aðgengi að símenntun og end­ur­menntun og gera öflun háskóla­mennt­unar dýr­ari eru lík­leg til að hægja á fram­leiðni­þróun og til að ýta undir ójöfnuð, segir Þórólfur. Mynd: Kristinn Magnússon

Lausnin felst í samstöðu grasrótarinnar, aukinni menntun og algjörri hugarfarsbreytingu

Hvernig bregst fólk við þegar atvinnu­ör­yggi minnkar og mis­skipt­ing eykst? Æ fleiri leita í fang sterkra leið­toga sem boða auð­veldar lausnir á meðan þeir egna ólíkum þjóð­fé­lags­hópum saman. Stundin ræddi við fræði­menn um mis­skipt­ing­una í íslensku og alþjóð­legu sam­hengi. Þeir benda meðal ann­ars á að aukin menntun stuðli að meiri jöfn­uði.

Margir klóra sér í koll­inum yfir þeirri sívax­andi mis­skipt­ingu sem rakin var í umfjöll­un­inni hér að framan. Hvernig má það vera að árið 2017 eigi sex rík­ustu ein­stak­lingar heims­ins jafn mikið og helm­ingur mann­kyns, sem telur um þrjá og hálfan millj­arð manna? Í byrjun árs 2016 átti fátæk­ari helm­ingur mann­kyns þó jafn mikið og 62 ein­stak­lingar. Hvernig stendur á því að mis­skiptin vex svo hratt ár frá ári og í hvað stefnir ef fram fer sem horfir? Ýmislegt bendir til þess að hið vax­andi bil á milli hinna ríku og þeirra fátæku sé að ýta undir fylgi hægri popúl­ískra öfga­flokka víðs­vegar að um heim­inn og margir vilja meina að þetta sé einmitt ein­hver helsta hættan sem steðji nú að mann­kyn­inu.

 

Stundin hafði sam­band við þau Þórólf Matth­í­as­son, pró­fessor í Hagfræði við Háskóla Íslands, Kristínu Lofts­dóttur, pró­fessor í mann­fræði við Háskóla Íslands, Eyju M. Brynjars­dóttur, sér­fræð­ing við Heim­speki­stofnun Háskóla Íslands, Viðar Hreins­son sagn­fræð­ing og ævi­sagna­rit­ara í leit að svörum við þessum stóru spurn­ingum. Hvað er hægt að gera til þess að bregð­ast við þess­ari þróun? Og hver er staðan á Íslandi í sam­hengi við önnur lönd? Það ríkir hús­næð­iskreppa í land­inu og sífellt fleiri hafa hrein­lega ekki efni á leigu­hús­næði. Það hlýtur að telj­ast grafal­var­leg staða sem hefur og mun hafa ýmsar félags­legar afleið­ingar í för með sér? Gefum þeim orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vaxandi misskipting

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár