Mynd: Pressphotos

Íslenska loðfólkið óttast að vera afhjúpað

Tugir með­lima eru í nýju, lok­uðu sam­fé­lagi „furry-a“ á Íslandi, sem hræð­ast athygl­ina af ótta við for­dóma. Hjá sumum er um blæti að ræða, sem snýst um að lað­ast að dýrum með mann­lega eig­in­leika, hjá öðrum er þetta áhuga­mál. Þrátt fyrir for­dóma snýst blætið ekki um dýra­níð, þó á því séu und­an­tekn­ingar. Stundin ræddi við íslenskan furry.

Þarf ég að hafa áhyggjur af því að þú mis­notir kött­inn?,“ var fyrsta spurn­ingin sem Davíð fékk frá nákomnum ætt­ingja þegar hann við­ur­kenndi að hann væri „furry“.

Í stuttu máli má segja að furry sé ein­stak­lingur sem lað­ast að dýrum með mann­lega eig­in­leika. Það er þó tals­verð ein­földun því fyrir marga er að vera furry ekki ein­göngu blæti – „fet­ish“ – heldur stór hluti af sjálfs­mynd við­kom­andi. Auk þess er í sumum til­vikum ekk­ert kyn­ferð­is­legt við að vera furry heldur er frekar um áhuga­mál að ræða. Mikil leynd er yfir furry-sam­fé­lag­inu á Íslandi; harð­læstur Facebook-hópur telur um fimm­tíu manns og var Davíð sá eini sem þáði boð blaða­manns um að ræða um þetta mál­efni. Ekkert íslenskt orð er til yfir að vera furry, líkt og algengt er meðal jað­ar­hópa innan hinsegin sam­fé­lags­ins. Á heima­síðu íslenskra furry-a er þó stungið upp á orðum svo sem „loð­feld­ingar“, „feld­ingar“ eða „loð­boltar“.

Svar Davíðs við spurn­ingu ætt­ingj­ans var „nei“, hann hefur engan kyn­ferð­is­legan áhuga á dýrum. Davíð er á þrí­tugs­aldri og ber það ekki með sér að vera furry. Hans rétta nafn er ekki Davíð en hann segir að það gæti haft hrika­leg áhrif ef hann væri „outaður“, að það yrði á allra vit­orði að hann væri furry. Hann hafi orðið vitni af því hjá öðrum furry-um og það hafi ekki endað vel enda mæta furry-ar gíf­ur­legum for­dómum.

Uppgötvaði furry á kynþroskaskeiði

Davíð rifjar upp hvernig hann upp­götv­aði fyrst að hann væri furry. Hann rekur það aftur til kyn­þroska­skeiðs­ins sem var honum óvenju erfitt. „Mamma mín dó þegar ég var þrettán og þá fékk ég tölv­una hennar, fyrstu tölv­una mína. Þá hafði ég verið að googla og sá þetta á net­inu og fannst þetta kúl. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár