Birgitta Jóns­dóttir hefur fengið sterkt umboð frá gras­rót Pírata. Mynd: Pressphotos

Hvernig verður ný ríkisstjórn og hverju breytir hún?

Það er raun­hæfur mögu­leiki að gjör­breytt rík­is­stjórn undir for­ystu Pírata taki til starfa eftir næstu þing­kosn­ingar. Stundin rýnir í stöð­una, hugs­an­legan kosn­inga­sigur Pírata og list hins mögu­lega.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þurfa á krafta­verki að halda til að geta setið áfram við völd eftir þing­kosn­ing­arnar sem fram fara þann 29. októ­ber. Þótt fylgi Pírata hafi dalað und­an­farna mán­uði er enn raun­hæfur mögu­leiki að flokk­ur­inn vinni kosn­inga­sigur og gjör­breytt rík­is­stjórn taki til starfa að kosn­ingum loknum.

En hvaða flokkar eru lík­legir til sam­starfs við Pírata og um hvað kynnu þeir að sam­ein­ast? Eru rót­tækar lýð­ræð­isum­bætur framundan? Mun nýrri rík­is­stjórn takast að tryggja almenn­ingi stór­aukna hlut­deild í arð­inum sem verður til við nýt­ingu auð­linda lands­ins?

Samkvæmt skoð­ana­könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 22. til 29. ágúst eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar þeir stjórn­mála­flokkar sem njóta mest fylgis. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætti lít­il­lega við sig og mæld­ist með 24,6 pró­sent en fylgi Pírata minnk­aði og stendur nú í 22,4 pró­sentum. Fylgi Vinstri grænna stendur í 12,4 pró­sentum, Sam­fylk­ingin er með 9,1 pró­sent, Framsókn með 10,6 pró­sent, Björt fram­tíð með 4,5 pró­sent og Viðreisn með 8,8 pró­sent.

Þrátt fyrir að núver­andi stjórn­ar­flokkar sæki á sam­kvæmt nýj­ustu könnun er staða þeirra enn veik. Svanur Krist­jáns­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði og ötull stuðn­ings­maður Pírata, segir á Facebook-síðu sinni í dag að þrátt fyrir að fylgi Pírata hafi minnkað sé staðan í grunn­inn óbreytt.

„Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir í bull­andi minni­hluta, með stuðn­ing ein­ungis um 1/3 kjós­enda. Stjórn­ar­and­staðan er meiri­hlutafl sem 2/3 kjós­enda velur,“ skrifar Svanur sem spáir því að Viðreisn og Þjóð­fylk­ingin muni taka fylgi af Sjálf­stæð­is­flokknum. Þannig muni Píratar á end­anum standa uppi sem stærsti flokkur lands­ins í næstu þing­kosn­ingum.

Hvort sem það ræt­ist eður ei er ljóst að ef nið­ur­stöður þing­kosn­ing­anna þann 29. októ­ber verða í takt við fylg­is­mæl­ingar und­an­far­inna mán­aða verða Píratar og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einu flokk­arnir sem gætu átt mögu­leika á að mynda saman tveggja flokka rík­is­stjórn.

Samstarf við Sjálfstæðisflokkinn ólíklegt

Áhrifa­fólk í Pírötum sem Stundin hefur rætt við segir að lít­ill sem eng­inn áhugi sé á því innan flokks­ins að ganga til stjórn­ar­sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hvað þá Fram­sókn­ar­flokk­inn. Það sama gildir um vinstri­flokk­ana en bæði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, úti­lok­uðu sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í við­tali við Kjarnann þann 26. júlí síð­ast­lið­inn.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, gerði slíkt hið sama en tók þó fram að hún hefði ekki umboð til að tala fyrir hönd flokks­ins. Stuttu síðar, þann 12. ágúst, lenti Birgitta í fyrsta sæti í sam­eig­in­legu próf­kjöri Pírata á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þótt hún fari ekki með eig­in­legt leið­toga­hlut­verk í Pírötum er óhætt að full­yrða að eng­inn hefur fengið sterkara umboð frá gras­rót flokks­ins heldur en Birgitta. Sú skoðun er útbreidd meðal áhrifa­fólks í flokknum að stjórn­ar­sam­starf við núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokka og/eða hinn nýja flokk, Viðreisn, sé mun ákjós­an­legra heldur en að leita sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Fráfarandi stjórnarherrar
Frá­far­andi stjórn­ar­herrar ákváðu að stytta kjör­tíma­bilið í kjöl­far Panama-hneyksls­ins

Viðreisn var stofnuð að frum­kvæði fólks sem hafði gef­ist upp á því að reyna að breyta stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í til­teknum málum. Áhrifa­fólk í Viðreisn sem Stundin hefur rætt við segir flokk­inn opinn fyrir stjórn­ar­sam­starfi við nán­ast hvaða flokk sem er svo lengi sem stefnu­mál Við­reisnar hljóti fram­gang.

Við­reisn­ar­fólk virð­ist kunna hvað síst við Fram­sókn­ar­flokk­inn og einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar innan flokks­ins bendir jafn­framt á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé mun íhalds­sam­ari en Viðreisn, svo sem í land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­málum og and­stöðu sinni við að kosið verði um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. 

Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhann­es­son for­maður Við­reisnar

Þá virð­ist vera nokkur með­vit­und um það innan Við­reisnar að stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn gæti reynst hinum nýja flokki skeinu­hætt. „Eitt helsta vanda­málið sem við stöndum frammi fyrir er reyndar einmitt það að margir tengja Viðreisn við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og við erum með þannig stimpil á okkur, en ef þú lítur á stefnu­málin þá ríma þau mjög illa við stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ segir einn við­mæl­andi Stund­ar­innar. Það að Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hyggi á odd­vita­sæti í flokknum er varla til þess fallið að ná umræddum stimpli í burtu né heldur sá orðrómur að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi for­ystu­kona í Sjálf­stæð­is­flokknum, ætli að gera slíkt hið sama.

Björn Valur Gíslason, vara­for­maður Vinstri grænna, full­yrðir í pistli á vef sínum að lík­leg­asta nið­ur­staða næstu kosn­inga sé sú að mynduð verði þriggja flokka rík­is­stjórn hægri­flokka, þ.e. Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Eins og fylgis­tölur standa nú, og hafa gert und­an­farna mán­uði, þyrfti þó umtals­verðar fylg­is­sveiflur svo Viðreisn ætti yfir höfuð mögu­leika á að koma núver­andi stjórn­ar­flokkum til bjargar.

Hins vegar má ekki van­meta þau áhrif sem ójafnt vægi atkvæða eftir kjör­dæmum getur haft. Slíkt gæti bitnað harka­lega á flokkum eins og Pírötum og Viðreisn. Út frá skoð­ana­könn­unum und­an­far­inna mán­aða og marg­stað­festum vin­sældum Pírata má samt álykta að tals­verðar líkur séu á að þeir vinni kosn­inga­sigur í haust og leiti sam­starfs við ein­hverja af núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkum og/eða Viðreisn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár