Mynd: Berglind Guðmundsdóttir

Heilbrigt mataræði án áreynslu

Taíland býður upp á bæði hollan, lit­ríkan og nær­ing­ar­ríkan mat. Berglind Guð­munds­dóttir segir frá því hvernig hún féll fyrir honum.

Nú þegar jólin eru að baki og nýr árs­tími tek­inn við eru ófáir sem hafa sett sér mark­mið og ósjaldan eru þau tengd hreyf­ingu og/eða mat­ar­ræði. Það er í  raun­inni ekk­ert slæmt um það að segja og hefur und­ir­rituð ósjaldan sett sér svipuð mark­mið, náð sumum, en flestum ekki.

Reyndar byrj­aði ég að hreyfa mig reglu­bundið fyrir um þremur árum síðan og hef náð að halda því en hvað varðar mat­ar­ræðið verð ég að segja að ég hrein­lega elska að borða góðan mat og jaðrar það stundum við þrá­hyggju.

Ég er mann­eskjan sem tekur mat­reiðslu­bækur með sér upp í rúm og reynir að stand­ast þá freist­ingu að laum­ast inn í eld­hús og mat­reiða allt það sem fyrir augu ber á sloppnum ala Nigella. Þegar ég skipu­legg hitt­inga reyni ég yfir­leitt að tengja þá mat. Hittast og borða eitt­hvað gott. Spjalla og borða

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár