Mynd: Nanna Rögnvaldar

Hægt og notalegt

Nanna Rögn­valdar sýnir okkur hvernig hægeldun getur gert dýrð­ar­innar hnoss­gæti úr hrá­efni.

Um helgar gefst oft góður tími til elda­mennsku. Þá er hægt að elda fínar steikur og flókna rétti – en það er ekki síður til­valið að nota helg­arnar í að mat­reiða rétti sem eru ein­faldir og ódýrir en alls ekki fljót­legir – þurfa langan tíma en sjá að miklu leyti um sig sjálfir.

Fátt er betur til slíks fallið en gufu­steiktir (brass­eraðir) kjöt­réttir. Ódýru bit­arnir sem við gleymum oft vegna þess að þeir henta alls ekki í snögga elda­mennsku, þá verða þeir ólseigir og þurrir, enda inni­halda þeir oft mikið af band­vef eða seigum vöðvum sem ekk­ert meyrna við steik­ingu við háan, þurran hita. Nei, þessir bitar þurfa langa og hæga suðu eða steik­ingu í lok­uðum potti með frekar litlum en bragð­miklum vökva, þar sem gufan leikur um þá og heldur þeim rökum á meðan band­vef­ur­inn leys­ist hægt og rólega upp, kjötið meyrnar og bragðið kemur smám saman fram. Og það þarf næstum ekk­ert að hafa fyrir þessu.

Stundum þarf þó dálitla fyr­ir­hyggju – sumt er gott að mar­ínera og mjög margir réttir af þessu tagi hafa ekk­ert nema gott af því að bíða full­eld­aðir upp­hit­unar til næsta dags og fylla þá íbúð­ina af unaðs­legum ilmi öðru sinni. Það er reyndar galli líka því það getur verið erfitt að láta pott­inn í friði þegar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár