Víðgelmir Ferðir um einn af stærstu hellum lands­ins, Víðgelmi, er stjórnað af fyr­ir­tæk­inu The Cave, en óvissa ríkir um laga­legt rétt­mæti þess að rukka aðgang að svæð­inu þar sem það er á nátt­úru­minja­skrá. Mynd: Shutterstock

Græða á því að rukka fólk ólöglega fyrir að sjá náttúruperlur

Þrír land­eig­endur svæða á nátt­úru­minja­skrá rukka fyrir aðgang án heim­ildar rík­is­ins eða Umhverf­is­stofn­unar, sem er á skjön við nátt­úru­vernd­ar­lög. Stefna rík­is­stjórn­ar­innar er að hefja svo­kall­aða „skyn­sam­lega gjald­töku“ á ferða­mönnum og búist er við frum­varpi frá umhverf­is­ráð­herra fyrir haust­þing í þeim til­gangi, en þangað til er lög­mæti gjald­töku óviss.

Í Jónsbók, laga­bók frá 13. öld, er að finna ýmis lög sem eru í gildi enn þann dag í dag. Með upp­gangi ferða­manna­iðn­að­ar­ins verða hins vegar ítrek­aðir árekstrar milli tveggja laga­greina úr þess­ari bók, en það er almanna­réttur og eigna­réttur. Almanna­réttur tryggir fólki frjálsar ferðir svo lengi sem það virðir landið og fer ekki í gegnum við­kvæm svæði, en eigna­réttur verndar eignir og leyfir eig­endum að hagn­ast af þeim.

Lögin hafa farið í gegnum ýmsar úrbætur í gegnum ald­irnar, en meg­in­munur þeirra í dag er sá að eigna­réttur er tryggður af stjórn­ar­skrá en almanna­réttur er skil­greindur sem und­an­tekn­ing hans. Þar að auki hafa bæst við ákvæði um nátt­úru­vernd sem segja meðal ann­ars að aðeins Umhverf­is­stofnun eða aðili sem hefur verið fal­inn rekstur nátt­úru­vernd­ar­svæðis getur inn­heimt gjald fyrir þjón­ustu eða aðgengi að svæði sem hefur orðið fyrir nátt­úru­spjöllum vegna ferða­manna, eða er í hættu á því.

Nýja gullæðið

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár