Mynd: EM

Fótbolti og fegurð í Frakklandi

Þúsundir Íslend­inga munu halda til Frakk­lands að fylgj­ast með lands­lið­inu taka þátt í bar­átt­unni um Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn. Um átta pró­sent Íslend­inga sóttu um miða á leik­ina, eða nærri 27 þús­und manns, en fyrir hvern leik hefur Ísland mögu­leika á um 7–15 þús­und miða. En hvað getur maður dundað sér við á meðan maður bíður eftir leiknum?

Fyrsti leikur Íslands verður 14. júní á móti Portúgal og í borg­inni Saint Étienne. Borgin á upp­runa sinn að rekja til klaust­ur­byggðar á tólftu öld sem síðar varð að bæ þekktum fyrir vopna­fram­leiðslu og kola­námur. Það er ekki til­viljun að leikir fari fram þar, fót­bolta­klúbbur bæj­ar­ins er einn sá stærsti í Frakk­landi og hefur unnið frönsku deild­ina tíu sinnum. (Það er kannski ekki skrítið að Étienne hafi orðið mik­il­væg fyrir knatt­spyrnu í Frakk­landi, fót­bolta­klúbb­ur­inn Arsenal var stofn­aður af verka­mönnum sem unnu í vopna­verk­smiðjum og Liverpool, Manchester og önnur bæj­ar­fé­lög á Englandi sem eiga góð lið, gamlir verka­manna- og kola­námu­bæir líka).

Ráfi maður um í borg­inni má sjá margar fal­legar bygg­ingar. Hægt er að taka spor­vagn­inn fram­hjá La Martre eða dóm­kirkj­unni og njóta þannig arki­tekt­úrs gamla bæj­ar­ins. Nútíma­lista­safnið þykir einnig vera nokkuð gott á franskan, og þar með alþjóð­legum, mæli­kvarða. En senni­lega, ef heim­sókn á námu­verka­manna­safnið eða vopna­fram­leiðslu­safnið heillar ekki, er best að fara í útsýn­is­ferð og skoða ann­að­hvort Alpana eða gömlu kast­al­ana í nágrenn­inu. Chateau de Rochetaillée þykir býsna flottur.

Lyon er í klukku­stund­ar­keyrslu frá Saint Étienne og umtals­vert stærri borg. Þar eru enn glæsi­legri bygg­ingar, fleiri veit­inga­staðir og söguminjar. Það væri hægt að gera margt vit­laus­ara en að leigja hjól fyrir alla fjöl­skyld­una og kanna þannig það helsta í hér­að­inu eftir að Íslend­ingar gjörsigra Portúgal, 3-0.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár