Bjarni Bene­dikts­son Slapp vel frá Panama-lek­anum og end­aði sem for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Kristinn Magnússon

Forsætisráðherra af gráu svæði stjórnmála og viðskipta

Bjarni Bene­dikts­son var umsvifa­mik­ill í við­skiptum sam­hliða þing­mennsku. Félög sem hann stýrði eða átti aðkomu að stefna í að skilja eftir sig tæp­lega 130 millj­arða króna af afskriftum, sem nemur næstum því tvö­faldri upp­hæð leið­rétt­ingar verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Bjarni og faðir hans tóku ákvarð­anir um sölu hluta­bréfa þegar hann var í kjörað­stæðum til að njóta upp­lýs­inga sem almennur aðili á mark­aði hafði ekki.

Á ferli Bjarna Bene­dikts­sonar hafa fjöl­mörg mál komið upp sem hefðu fellt flesta aðra stjórn­mála­menn. Honum hefur hins vegar tek­ist að snúa sig út úr þeim öllum og styrkja stöðu sína innan flokks­ins. Í dag stendur hann uppi sem for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. 

„Hann er nátt­úr­lega algjört teflon,“ segir einn við­mæl­andi Stund­ar­innar um það hvernig Bjarna Bene­dikts­syni hefur tek­ist að snúa hverju mál­inu á fætur öðru sér í hag. 

Í aðdrag­anda hruns­ins var hann atkvæða­mik­ill í íslensku við­skipta­lífi sam­hliða þing­störfum. Hann og faðir hans seldu hluta­bréf sín í Glitni þegar æðstu ráða­mönnum þjóð­ar­innar var orðið ljóst að bank­arnir stæðu höllum fæti en héldu öðru fram opin­ber­lega.

Í októ­ber árið 2008, þegar Bjarni dró sig út úr ábyrgð­ar­stöðum í við­skiptum, námu skuldir félaga­nets hans og fjöl­skyldu hans á annað hund­rað millj­arða króna. Flest þeirra áttu eftir að verða gjald­þrota. Alls má ætla að afskriftir vegna félaga sem Bjarni stýrði eða tók þátt í að stýra nemi hátt í 130 millj­örðum króna. Bjarni til­kynnti sér­stak­lega að hann ætl­aði að hætta þátt­töku í við­skipta­líf­inu þegar hann varð for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en skrán­ing Bjarna á einka­mála­síðu sýnir fram á notkun á tölvu­póst­fangi hans löngu eftir að hann sagð­ist hafa látið af afskiptum af félög­unum.

Gott aðgengi að upplýsingum

Faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, Benedikt Sveins­son, seldi hluti sína í Glitni að verð­mæti um 850 millj­ónir króna í kringum 18. febr­úar 2008, nokkrum mán­uðum fyrir efna­hags­hrunið. Bjarni seldi einnig fyrir 126 millj­ónir króna um svipað leyti.

Það sem ekki var á almennu vit­orði á hluta­bréfa­mark­aði á þessum tíma var að vik­urnar áður höfðu örvænt­ing­ar­fullar til­raunir verið gerðar til björg­unar á Glitni, sem Bjarni átti sjálfur aðkomu að, auk þess sem hópur stjórn­mála­manna hafði verið upp­lýstur um að Glitnir ætti í veru­legum erf­ið­leikum og væri kom­inn í fjár­hags­lega hættu. 

Bjarni hefur alla tíð neitað því að hafa búið yfir trún­aðar- eða inn­herj­a­upp­lýs­ingum þegar hann ákvað að selja hluta­bréfin sín. Á þeim tíma sat hann í efna­hags- og skatta­nefnd Alþingis, sem fjallar meðal ann­ars um eignir rík­is­ins og gjald­eyr­is­mál. 

Dagana áður höfðu átt sér stað leyni­legar aðgerðir í við­skiptum og fundir í stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna­kerf­inu sem sýndu fram á alvar­lega stöðu banka­kerf­is­ins. Alvar­leiki stöð­unnar var ekki á vit­orði margra, en Bjarni tók sjálfur þátt í hluta atburða­rás­ar­innar. Bjarni var lyk­il­maður í Vafn­ings­mál­inu svo­kall­aða, sem sner­ist um að koma í veg fyrir keðju­verk­andi áhrif af veð­kalli banda­ríska bank­ans Morgans Stanley á stöðu Glitnis og Milestone. Liður í því var lán sem veitt var Milestone 8. til 12. febr­úar, um viku áður en Bjarni og faðir hans seldu bréf sín í Glitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár