Mynd: Heiða Helgadóttir

Fólkið sem fer út í storminn

Spáð var stormi ald­ar­innar og fólk beðið að vera inn­an­dyra. Hópur fólks fór hins vegar út í hætt­una. Heiða Helga­dóttir ljós­mynd­ari fylgd­ist með því.

Þegar óveður gekk yfir landið þriðju­dag­inn 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn var fólk beðið um að halda sig inn­an­dyra. En hópur fólks fór á móti straumnum og hljóp út í hætt­una til að forða skaða á fólki og eignum.

Búðir og fyr­ir­tæki lok­uðu snemma og fáir voru á ferli seinni part­inn. Út um allan bæ voru tómar götur sem vind­ur­inn rudd­ist óáreittur í gegnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár