Mynd: Nanna Rögnvaldar

Fimmti fjórðungurinn

Nanna Rögn­valdar fjallar um hvernig má berj­ast gegn mat­ar­sóun með því að nota inn­mat­inn í kraft­mikla rétti.

Mat­ar­sóun og nýt­ing mat­væla hefur verið tölu­vert í umræð­unni á und­an­förnum miss­erum og það er að sjálf­sögðu mjög jákvætt og hefur örugg­lega vakið marga til umhugs­unar og jafn­vel fengið þá til að bæta ráð sitt. Þó er ekki allt sem gert hefur verið nýlunda – ég heyrði til dæmis nýlega útvarps­við­tal við konu um þetta efni og þá minnt­ist hún meðal ann­ars á að hún hefði skömmu áður séð í Bónus að þar var hilla með ávöxtum og græn­meti sem voru farin að láta á sjá og voru seld á nið­ur­settu verði. Þetta taldi hún vera nýtt og þakk­aði það umræð­unni. En í Bónus, í það minnsta þar sem ég versla, hefur þetta verið gert í mörg ár og ég hef oft nýtt mér þetta.

Sumt græn­meti og ávextir er ekk­ert verra þótt útlitið sé ekki alveg upp á sitt besta, annað er vel hægt að nýta að minnsta kosti að hluta og það borgar sig ef afslátt­ur­inn er veru­legur – ég keypti til dæmis einu sinni bakka með nektar­ínum á 50 krónu, tvær voru skemmdar og ég henti þeim en hinar allar í fínu lagi.

Ljótari og betri ávextir

Og svo eru til teg­undir sem batna eftir því sem þær ljókka, alla­vega upp að vissu marki. Bananar eru auð­vitað gott dæmi, þeir verða því bragð­meiri og sæt­ari sem þeir eru lin­ari og ljót­ari, og sveppir verða líka bragð­meiri með aldr­inum. Einu sinni var ég í græn­metiskæl­inum í Hagkaup og þar var boðið upp á tvenns konar æti­sveppi, ann­ars vegar skjanna­hvíta og áferð­ar­fal­lega, hins vegar sveppi sem voru farnir að dökkna veru­lega og þorna dálítið. Þá kom þar að maður, fór að tína sveppi í poka – þessa hvítu og fínu – og sagði við mig; - Mikið eru þetta fal­legir sveppir. 

- Já, sagði ég – en ég vil nú heldur þessa. Og byrj­aði að tína þessa ljótu í pok­ann minn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár