Mynd: Pressphotos/Geirix

Engeyjarættin: Þræðir stjórnmála og einkahagsmuna

Fjár­fest­arnir í Engeyjar­fjöl­skyld­unni, náin skyld­menni Bjarna Bene­dikts­sonar, hafa gert hag­stæða við­skipta­samn­inga við íslenska ríkið í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæðis­flokks­ins á síð­ustu tveimur árum. Faðir Bjarna keypti SR-mjöl í umdeildri einka­væð­ingu fyrir röskum tutt­ugu árum. Nú stendur til að hefja stór­fellda einka­væð­ingu á rík­is­eignum og lýsa ýmsir yfir áhyggjum af því að sölu­ferlið kunni að verða ógagn­sætt.

Fyr­ir­tæki Einars Sveins­sonar fjár­festis og nokk­urra ann­arra náinna ætt­ingja Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra hafa á síð­ustu tveimur árum fengið ýmiss konar við­skipta­tæki­færi og/ eða fyr­ir­greiðslu frá íslenska rík­inu eða fyr­ir­tækjum í eigu þess. Einar og fjöl­skylda hans, eru aftur orðin stór­tæk í íslensku við­skipta­lífi eftir að hafa misst nán­ast allar fyr­ir­tækja­eignir sínar í hrun­inu árið 2008 en fram að því var Bjarni sjálfur einn innsti koppur í búri þessa veldis sem meðal ann­ars stjórn­ar­for­maður N1 og móð­ur­fé­lags þess BNT. Bjarni hætti sjálfur ekki að stunda við­skipti sam­hliða þing­störfum sínum fyrr en eftir hrunið 2008 þegar hann sagði sig frá stjórn­ar­for­mennsku í olíu­fyr­ir­tæk­inu. Einar er föð­ur­bróðir Bjarna en faðir hans, Benedikt, hefur dregið sig út úr eign­ar­haldi fyr­ir­tækja að mestu þó enn haldi hann um veru­legan hlut í rútu­fyr­ir­tæk­inu Kynn­is­ferðum. 

Fjöl­skyldan, sem stundum er kölluð Eng­ey­ing­arnir þrátt fyrir að Eng­eyj­a­rættin telji jú fjöl­marga sem ekki stunda við­skipti með hópnum, er nú eig­andi að fyr­ir­tækjum eins og rútu­bíla­fyr­ir­tæk­inu Kynn­is­ferðum, kís­il­fyr­ir­tæk­inu Thorsil á Reykja­nesi, greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun, bleikju­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Matorku og bif­reiða­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Tékk­landi. 

Að minnsta kosti fjögur af fimm fyrirtækjum 

Fjögur af þessum fimm fyr­ir­tækjum hafa, með einum eða öðrum hætti, átt í hag­stæðum við­skiptum við, eða notið fyr­ir­greiðslu, íslenska rík­is­ins eða rík­is­bank­ans Lands­bank­ans á síð­ustu tveimur árum. Thorsil hefur fengið íviln­anir frá íslenska rík­inu vegna upp­bygg­ingar á kís­il­málms­verk­smiðju sinni á Reykja­nesi; íviln­anir sem nema um 800 millj­ónum auk íviln­ana frá sveit­ar­fé­lag­inu Reykja­nesbæ í formi frestaðra opin­berra gjalda vegna upp­bygg­ingar á verk­smiðj­unni. ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur stefnt íslenska rík­inu út af þess­ari rík­is­að­stoð sem talin er ólög­mæt. Þá gerði Matorka einnig samn­ing við íslenska ríkið fyrr á þessu ári en sá samn­ingur felur einnig í sér íviln­anir upp á tæp­lega 430 millj­ónir króna í formi afslátta af sköttum og opin­berum gjöldum. Bara þessir tveir íviln­un­ar­samn­ingar nema því á annan millj­arð króna.

Fyr­ir­tæki í eigu Einars Sveins­sonar er svo hlut­hafi í fyr­ir­tæki sem fékk að kaupa þriðj­ungs­hlut Lands­bank­ans í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun án þess að hlut­ur­inn væri aug­lýstur til sölu opin­ber­lega og á und­ir­verði en sá 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár