Aðili

Borgun

Greinar

Vafasamt leyndarmál að baki miklum hagnaði Borgunar
Fréttir

Vafasamt leynd­ar­mál að baki miklum hagn­aði Borgunar

Pen­inga­slóð hins mikla gróða Borgunar, sem hefur meðal ann­ars skapað gríð­ar­legan hagnað fyrir útgerða­menn, Eng­ey­inga og hóp huldu­manna, liggur að klámi, fjár­hættu­spilum og vændi. Heild­ar­þjón­ustu­tekjur Borgunar, líkt og Valitor, hafa vaxið hratt á örskömmum tíma en nær helm­ingur þessa tekna frá báðum fyr­ir­tækjum koma erlendis frá. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar eru þetta við­skipti sem önnur færslu­hirð­inga­fyr­ir­tæki vilja ekki koma nálægt.
Af hverju eru spillingarmál ekki rannsökuð oftar á Íslandi?
FréttirSpilling

Af hverju eru spill­ing­ar­mál ekki rann­sökuð oftar á Íslandi?

Rík­is­sak­sókn­ari hefur aðeins einu sinni átt frum­kvæði að því að rann­saka stjórn­mála­mann vegna spill­ingar út af umfjöll­unun í fjöl­miðlum, Árna Johnsen. Bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og rík­is­sak­sókn­ara ber skylda til að hefja rann­sókn á spill­ing­ar­málum en önnur mál eru ofar í for­gangs­röð­inni. Fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ari Valtýr Sig­urðs­son segir „mjög við­kvæmt“ að ákæru­valdið rann­saki spill­ingu í stjórn­málum. Sam­an­burður við Svíþjóð sýnir að ákæru­valdið þar hefur miklu oftar frum­kvæði að rann­sóknum á spill­ingu. Vara­rík­is­sak­sókn­ari Helgi Magnús Gunn­ars­son telur ekki þarft að rann­saka Borg­un­ar­málið og mál Illuga Gunn­ars­sonar og segir „frá­leitt“ að stofna sér­staka spill­ing­ar­deild innan ákæru­valds­ins á Íslandi.
Engeyjarættin: Þræðir stjórnmála og einkahagsmuna
Úttekt

Eng­eyj­a­rættin: Þræðir stjórn­mála og einka­hags­muna

Fjár­fest­arnir í Engeyjar­fjöl­skyld­unni, náin skyld­menni Bjarna Bene­dikts­sonar, hafa gert hag­stæða við­skipta­samn­inga við íslenska ríkið í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæðis­flokks­ins á síð­ustu tveimur árum. Faðir Bjarna keypti SR-mjöl í umdeildri einka­væð­ingu fyrir röskum tutt­ugu árum. Nú stendur til að hefja stór­fellda einka­væð­ingu á rík­is­eignum og lýsa ýmsir yfir áhyggjum af því að sölu­ferlið kunni að verða ógagn­sætt.

Mest lesið undanfarið ár