Dagfarsprúður drullusokkur leitar að fegurðinni

Bjartmar Guð­laugs­son þekkir öll þjóðin. Lög hans og textar hafa stimplað sig ræki­lega inn í vit­und hennar og þegar valið var Óskalag þjóð­ar­innar í sjón­varps­þáttum hjá RÚV sigr­aði lag hans Þannig týn­ist tím­inn með yfir­burðum. Bjartmar er líka þekktur list­mál­ari og nú hefur þriðja list­greinin bæst í safnið því í haust kemur út hans fyrsta skáld­saga um leið og nýr geisla­diskur lítur dags­ins ljós. Hann seg­ist loks vera hættur að fela til­finn­ingar sínar og neitar að horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn. Líf hans hefur ekki alltaf verið dans á rósum en hann seg­ist sáttur í dag.

Dagfarsprúður drullusokkur leitar að fegurðinni

​„Ég vil bara tala um feg­urð­ina,“ segir Bjartmar um leið og við erum sest við eld­hús­borðið á heim­ili hans í Vest­ur­bænum og kaffið komið í boll­ana. „Það er svo óskap­leg eft­ir­spurn eftir ljót­leik­anum í líf­inu, við verðum að ein­beita okkur að því að leita að feg­urð­inni.“

Í sam­ræmi við þessa yfir­lýs­ingu segir Bjartmar að skáldsagan sem hann nýverið und­ir­rit­aði samn­ing um útgáfu á hjá Sögum útgáfu, snú­ist einmitt um leit­ina að feg­urð­inni. En er alfarið um skáld­sögu að ræða?

„Ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn þá er þetta lífs­reynslu­tengd lyga­saga,“ segir hann og hlær. „Eða öllu heldur þá er þetta skáld­saga en ég er staddur í henni. Og kannski mjög víða. Þetta er fer­ils­saga um mann sem leitar að feg­urð­inni í tón­list, ljóðum og myndum. Engir harm­leikir. Því þótt það virki kannski ekki þannig á okkur dags 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár