„Það að rík þjóð eins og Íslendingar stefni að borun og vinnslu olíu, og að gefin séu út sérleyfi til fyrirtækja í því skyni, er afar ábyrgðarlaust,” segir Caroline Lucas, þingkona Græningjaflokks Bretlands, í samtali við Stundina.
Caroline sat í 10 ár á Evrópuþinginu, var formaður Græningjaflokksins á árunum 2008 til 2012 og er eini þingmaður hreyfingarinnar. Blaðamaður Stundarinnar ræddi stuttlega við Caroline að loknu erindi sem hún hélt í Brighton.
„Ísland hefur aðra valmöguleika en olíuvinnslu sem eru öruggari og umhverfisvænni,” segir hún og hvetur til aukinnar áherslu á græna orkugjafa. „Líkt og vísindamenn hafa bent á þarf að láta 80 prósent af því jarðefnaeldsneyti sem eftir er í jörðinni óhreyfð ef takast á að sporna við loftslagsvandanum,” segir Caroline. „Það að stjórnvöld skapi hvata til olíuborunar á tímum loftslagsvandans er skólabókardæmi um siðleysi.”
Samfylking gegn olíuborun
Á landsfundi Samfylkingarinnar um helgina var samþykkt ályktun þess efnis að fallið verði frá olíuleit á Drekasvæðinu og stjórnvöld lýsi yfir að þjóðin hyggist ekki nýta mögulega jarðefnaorkukosti í lögsögu sinni í samhengi við samninga á alþjóðavettvangi um loftslagsmál. Fram kemur að vinnsla jarðefnaeldsneytis samræmist ekki hagsmunum Íslendinga og skapi hættu á mengunarslysum og umhverfisógn við fiskimið landsins.
Ályktun Samfylkingarinnar kom nokkuð á óvart í ljósi þess að Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra og utanríkisráðherra og þungavigtarmaður í flokknum, hefur beitt sér af krafti fyrir því að Ísland verði olíuríki. Auk þess er athyglisvert að Samfylkingin hafi verið á undan græningjaflokki Íslands, Vinstrihreyfingunni grænt framboð, að leggjast gegn olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
Athugasemdir