Fór langan veg Jón Gunn­ars­son fyllti í skarðið fyrir for­sæt­is­ráð­herra í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi. Mynd: Pressphotos

Besti vinur verktakanna

Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra beitir aðferðum jarð­ýt­unnar til að ná sínu fram. Hann naut styrkja frá verk­taka­fyr­ir­tækjum, er mesti bar­áttu­maður stór­iðju og stór­fram­kvæmda og er einn nán­asti sam­herji Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Nú vill hann setja vega­fram­kvæmdir í hendur einka­að­ila og rukka tolla á vegum við höf­uð­borg­ina.

Þegar sam­þing­menn Jóns Gunn­ars­sonar eru spurðir út í hann sem stjórn­mála­mann og karakter koma tvö orð óþægi­lega oft fyrir í svör­unum. Fauti og tuddi.

Þau ríma við mynd­ina sem við fáum iðu­lega af honum í fréttum og ræðu­stól Alþingis, en raun­veru­leik­inn er vita­skuld flókn­ari.

Hann á sér líka fjöl­breyti­legri feril en margir gera sér grein fyrir, þ.e. áður en hann varð þing­maður. Í þing­mennsk­unni blasir við til­tölu­lega ein­föld mynd.

Skoðum hvort tveggja stutt­lega, mann­inn og verkin.

Iðnskóli, búskapur og bissniss

Jón Gunn­ars­son ráð­herra sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­mála lauk prófi frá málm­iðn­að­ar­deild Iðn­skól­ans 1975. Hann ætl­aði að verða raf­virki, en af því varð ekki. Fáeinum árum síðar var hann orð­inn bóndi að Bark­ar­stöðum í hinum fremur afskekkta Núpsdal í Miðfirði, þar sem tengda­for­eldrar höfðu hans rekið sauð­fjár­bú­skap, en einnig haldið svín og fjölda hrossa.

Jón bjó að Bark­ar­stöðum í nokkur ár, gegndi trún­að­ar­störfum fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár