Fyrrverandi forstjóri yfirgaf skrifstofuna fyrir jóga

Gísli Örn Lárusson kleif met­orða­stig­ann ungur og varð for­stjóri alþjóð­legs trygg­inga­fé­lags. Hann ákvað að yfir­gefa skrif­stof­una til að stofna jóga-stúdíó. Hann seg­ist berj­ast við krabba­mein með sínum eigin með­ölum og telur að krabba­meinið hafi horfið vegna inn­töku nátt­úru­legra efna.

Það er stíl­hreint og fal­legt í íbúð Gísla Arnar Lár­us­sonar á Fulham Road í London, þar sem hann hefur búið und­an­farin miss­eri. App­el­sínugult og rautt er áber­andi hvert sem litið er.

„Ég er hrif­inn af þessum tveimur litum og hef lengi verið. Því ekki að halda sig við það sem lætur manni líða vel?,“ spyr Gísli með bros á vör þegar ég minn­ist á þetta. Hann er glað­legur og virkar í góðu jafn­vægi og af öllu yfir­bragð­inu að dæma myndi maður telja hann tals­vert yngri en ald­ur­inn gefur til kynna. Það er kannski ekki skrýtið, enda hefur Gísli hug­leitt og stundað yoga nán­ast dag­lega svo árum skiptir. Hann segir þetta tvennt lyk­il­inn að því að geta verið jafn atorku­samur og raun ber vitni, án þess að brenna yfir. En líf Gísla hefur ekki alltaf ein­kennst af jafn­vægi á milli vinnu og einka­lífs, lík­ama og sálar. Gísli kleif met­orða­stig­ann hratt í atvinnu­líf­inu og var ungur að árum orð­inn for­stjóri eins stærsta trygg­in­ar­fé­lags Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár