Mynd: Heiða Helgadóttir

Angistin varð yfirsterkari

Eig­in­maður Sigríðar Elínar Leifs­dóttur svipti sig lífi í fyrra­vetur eftir að hafa í mörg ár byrgt niðri erf­iðar til­finn­ingar og áföll. Á end­anum varð kvíð­inn yfir­sterk­ari. Sigríður hvetur til opn­ari sam­fé­lags­um­ræðu um sjálfs­víg og telur ábyrga umræðu alltaf betri en þögn­ina. Börnin fengu ekki sál­fræði­hjálp eftir sjálfs­víg föður þeirra.

„Það deilir því eng­inn með maka sínum að hann vilji enda líf sitt. Það kemur eng­inn og segir; elsku eig­in­kona, ég ætla að fara og svipta mig lífi,“ segir Sigríður Elín Leifs­dóttir, en eig­in­maður hennar til 35 ára, Leifur Þor­valds­son, framdi sjálfs­víg í fyrra­vetur. 

Sigríður tók strax með­vit­aða ákvörðun um að tala opin­skátt um frá­fall eig­in­manns síns, enda þekkti hún af eigin raun felu­leik­inn og þögn­ina sem ein­kenndi umræð­una um sjálfs­víg á árum áður. Í því skyni skrif­aði hún afar ein­lægan pistil sem birt­ist í Frétta­blaði Suð­ur­lands á síð­asta ári, örfáum mán­uðum eftir and­látið, þar sem hún hvetur meðal ann­ars til opn­ari sam­fé­lags­um­ræðu um sjálfs­víg. „Tölum um erf­iðar til­finn­ingar rétt eins og við tölum um þrá­láta verki. Tölum um and­lega líðan, sál­ar­ang­ist, dep­urð, kvíða, von­leysi,“ skrif­aði hún.

Fór í gegnum lífið á hnefanum

Pistill­inn bar yfir­skrift­ina …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár