Mynd: Kristinn Magnússon

„Ágæt hugmynd að einhvers staðar séu tómir veggir“

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Ragnar Helgi Ólafsson keypti sér nýverið íbúð við Víðimel í Vest­ur­bænum. Heimilið er í senn lát­laust og lif­andi. Á veggj­unum hanga lit­rík lista­verk eftir vini og vanda­menn, en helst myndi lista­mað­ur­inn vilja hafa hvíta veggi.

Ragnar Helgi tekur á móti okkur á sól­ríkum degi í febr­úar og byrjar á því að hella upp á kaffi. Í bak­grunni hljóma ljúfir tónar Thirteen Harm­on­ies eftir John Cage. „Hann samdi þetta verk í til­efni af tvö hund­ruð ára afmæli Banda­ríkj­anna, árið 1976. Þetta eru í grunn­inn sálmar frá árinu 1776 en Cage beitir flóknu hend­inga­kerfi til að fella út megnið af nót­unum. Eftir standa í raun­inni leifar af sálmum,“ segir Ragnar. „Mér finnst áhuga­vert hvað þetta verk Cage er hljóm­rænt þrátt fyrir allar þessar eyður. Hver nóta fær pláss og hljóðin fá að vera til án þess að eitt­hvað annað hljóð komi strax í kjöl­farið og reyni að ryðja því úr vegi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár