„Ef við teljum elliglöp og fíknivanda með þá mun meirihluti fólks einhvern tíma á sínu lífsskeiði stríða við geðræn vandamál. Þannig að það er í sjálfu sér ekkert óvenjulegt við það að fá geðsjúkdóm, og þeir eru alls ekki ólæknanlegir,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Geðheilbrigðismálin standa Páli mjög nærri en hann er lærður geðlæknir. Hann starfaði sem slíkur í Englandi í tíu ár áður en hann flutti til Íslands og varð yfirlæknir á geðsviði Landspítalans. Árið 2009 var hann síðan gerður að framkvæmdastjóra geðsviðs, sá fyrsti til að gegna þeirri stöðu, og sinnti hann henni til ársins 2013, eða allt þar til hann varð forstjóri Landspítalans.
Hann segir mörg framfaraskref hafa verið stigin í geðheilbrigðiskerfinu á síðustu árum, þá sé Ísland til fyrirmyndar þegar kemur að lágri tíðni nauðungarvistana og ekki séu notaðar ólar eða spennitreyjur á íslenskum geðdeildum, staðreynd sem vakið hefur alþjóðlega athygli. En þó svo að …
Athugasemdir