Ekki hægt að horfa upp á „stjórnlausan markaðinn“ ráðskast með lífsviðurværi fólks

Flokkur fólks­ins vill skoða leigu­þak sem tíma­bundna ráð­stöfun sem svar við hús­næð­is­vand­anum. „Eitthvað verðum við að gera,“ segir vara­þing­maður flokks­ins.

Helga Þórðardóttir varaþingmaður Flokks fólksins.
Helga Þórð­ar­dóttir vara­þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Vandi leigj­enda og ungra kaup­enda getur ekki beðið, að mati Helgu Þórð­ar­dóttur vara­þing­manns Flokks fólks­ins. Alþingi verði að grípa inn í þessa þróun strax með sér­tækum úrræðum.

Þetta kom fram í máli Helgu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hún sagði að hús­næð­is­mál á Íslandi væru stór mál og að bráða­vandi væri fyrir höndum vegna fram­boðs­skorts og verð­hækk­ana. „Öll þurfum við þak yfir höf­uðið og það eru sjálf­sögð mann­rétt­indi að hafa heim­ili.“

Helga benti á að sveit­ar­fé­lög og stjórn­völd hefðu und­an­farin ár van­metið íbúða­þörf svo um munar. „Það hefur valdið gíf­ur­legri hækkun á íbúða­verði og húsa­leigu. Talið er að hús­næð­is­verð hafi hækkað um 22 pró­sent á síð­ast­liðnum 12 mán­uðum. Afleið­ingin er sú að ungt fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð er skuld­sett upp í rjáfur og hafa mörg fengið aðstoð for­eldra til að fjár­magna kaupin. Skuld­sett fólk hefur ekki kaup­mátt til að efla hag­vöxt. Það sama gildir um leigj­endur.

Meira en fjórð­ungur leigj­enda er að greiða meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Það má vel vera að sam­kvæmt ein­hverjum skýrslum sé ástandið gott hjá með­al­tal­inu en með­al­töl verða ekki í ask­ana látin,“ sagði hún.

Vandinn ekki leystur á einum degi

Helga telur að „við verðum að hætta að sam­þykkja fátækt með því að nota með­al­töl. Við verðum að við­ur­kenna í sam­ein­ingu að á meðan fátækt er til staðar hefur okkur mis­tek­ist og við verðum að gera betur.“

Þá sagði hún jafn­framt að hús­næð­is­vand­inn yrði ekki leystur á einum degi því að það tæki nokkur ár að byggja nýjar íbúðir. „Vandi leigj­enda og ungra kaup­enda getur ekki beðið. Alþingi verður að grípa inn í þessa þróun strax með sér­tækum úrræðum. Við í Flokki fólks­ins viljum skoða leigu­þak og þá sem tíma­bundna ráð­stöfun. Við þurfum líka að aðstoða sér­stak­lega þá sem eru nýkomnir inn á íbúða­mark­að­inn. Eitthvað verðum við að gera. Við getum ekki horft upp á stjórn­lausan mark­að­inn ráðskast með lífs­við­ur­væri fjöl­skyldn­anna í land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár