Bankar hafa lánað meira í óverðtryggð lán á rúmu ári en þeir gerðu sjö árin á undan

Til­færsla þjóð­ar­innar úr verð­tryggðum hús­næð­is­lánum yfir í óverð­tryggð heldur áfram. Alls tóku heim­ilin 136 millj­arða króna í óverð­tryggt hús­næð­is­lán umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur í apríl. Samhliða varð mesta hækkun á hús­næð­is­verði frá 2007.

Þjóðin færir sig skipulega úr verðtryggðum lánum yfir í óverðtryggð lán þegar hún fjármagnar húsnæðiskaup sín.
Þjóðin færir sig skipu­lega úr verð­tryggðum lánum yfir í óverð­tryggð lán þegar hún fjár­magnar hús­næð­is­kaup sín. Mynd: Pexels

Ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán banka til heim­ila lands­ins námu 135,5 millj­örðum króna á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2021. Frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér­lendis í mars í fyrra, þegar vextir tóku að hríð­ar­lækka sem leiddu til stór­auk­innar lán­töku til hús­næð­is­kaupa, hafa heim­ili lands­ins tekið 495,8 millj­arða króna í ný óverð­tryggð lán hjá Lands­banka, Íslands­banka og Arion banka að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum.

Það er rúm­lega 98 millj­örðum krónum meira en heim­ili lands­ins tóku í óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá bönk­unum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febr­úar 2020, eða á sjö árum og tveimur mán­uðum. Á þeim tíma tóku heim­ilin alls 397,2 millj­arða króna í óverð­tryggð lán til að kaupa sér hús­næði.

Þetta kemur fram í nýbirtum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands um banka­kerfið.

Frá mars í fyrra og út apríl í ár hafa útlán verð­tryggðra hús­næð­is­lána, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum, verið nei­kvæð um næstum 80 millj­arða króna.

Mesta hækkun á verði síðan 2007

Þessi útlána­aukn­ing á rætur sínar að rekja til mik­illar lækk­unar á stýri­vöxtum, en þeir fóru lægst í 0,75 pró­sent áður en þeir voru hækk­aðir í fyrsta sinn frá árinu 2018 fyrr í þessum mán­uði upp í eitt pró­sent. Fyrir vikið hafa boð­ist óverð­tryggð lán á kjörum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. Lægstu breyti­legu óverð­tryggðu vextir sem í boði eru á grunn­láni – fyrir 70 pró­sent af virði keyptrar eignar – eru nú 3,3 pró­sent hjá Lands­bank­anum. Í árferði þar sem verð­bólga mælist 4,6 pró­sent blasir við að það eru afar góð kjör í íslensku lána­sam­hengi, sér­stak­lega í sam­an­burði við verð­tryggð lán, þar sem lánið hækkar ef verð­bólga er til staðar.

Einn þeirra þátta sem keyrir upp verð­bólgu er hærra hús­næð­is­verð, en verð á fast­eignum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði til að mynda um tæp 14 pró­sent milli apr­íl­mán­aða 2020 og 2021. Það er mesta 12 mán­aða hækkun sem mæld hefur verið á svæð­inu síðan á góð­ær­is­ár­inu 2007.

Hægari hækkun og hærri vextir

Bank­arnir reikna með að hús­næð­is­verð haldi áfram að hækka í nán­ustu fram­tíð. Í nýrri þjóð­hags­spá Lands­banka Íslands er gert ráð fyrir að það hækki um 10,5 pró­sent á þessu ári en að það hægi svo á hækk­una­takt­inum á næstu árum. Bankinn reiknar sömu­leiðis með því að vextir muni hækka nokkuð skarpt á næstu árum og verði komnir upp í 2,75 pró­sent í lok árs 2023.

Í þjóð­hags­spá Íslands­banka er gert ráð fyrir því að hús­næð­is­verð hækki um 11,3 pró­sent á árinu 2021 og að stýri­vextir verði komnir yfir þrjú pró­sent í árs­lok 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár