Brim greiðir 8,2 milljónir í sekt vegna brots á lögum um verðbréfaviðskipti

Brim og Fjár­mála­eft­ir­litið gerðu með sér sátt, sem fólst í því að Brim, áður HB Grandi, við­ur­kenndi brot sitt.

Hinn 10. júlí 2019 gerðu Fjár­mála­eft­ir­litið og Brim hf. (áður HB Grandi hf.), hér eftir nefndur máls­að­ili, með sér sam­komu­lag um að ljúka með sátt máli vegna brots á 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verð­bréfa­við­skipti.

Fólst í sátt­inni að Brim þurfti að greiða 8,2 millj­ónir króna í sekt, og við­ur­kenndi fyr­ir­tækið að hafa brotið gegn 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verð­bréfa­við­skipti, með því að hafa ekki birt inn­herj­a­upp­lýs­ingar eins fljótt og auðið var líkt og áskilið er í til­vitn­uðu laga­á­kvæði.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá FME, sem birt hefur verið á vef­síðu eft­ir­lits­ins.

Í til­kynn­ing­unni eru máls­at­vik rakin, en málið teng­ist því hvernig upp­lýst var um samn­ing um kaup Brims, þá HB Granda, á öllu hluta­fél Ögur­víkur.

Guð­mundur Krist­jáns­son er for­stjóri Brims, og stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, sem seldi Ögurvík til Brims. ÚR er jafn­framt stærsti eig­andi Brims, en eftir kaup á hlut FISK Seafood á hlut í Brimi, sem til­kynnt var um í morgun, fyrir um átta millj­arða króna, þá á félagið rúm­lega 48 pró­sent í Brimi.

Í þeirri eign­ar­hlut­ar­tölu er þó ekki tekið til­lit til hluta­fjár­aukn­ingar sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi í Brimi 15. ágúst síð­ast­lið­inn þar sem ákveðið var að auka hlutafé um 133 millj­ónir hluta, 7,3 pró­sent, og nota það til að kaupa allt hlutafé í sölu­­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lag á Íslandi, frá Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­­­arða króna. 

Hinn 7. sept­em­ber 2018 kl. 16:18:43 birti Brim opin­ber­lega til­kynn­ingu þess efnis að hann hefði gert samn­ing um kaup á öllu hlutafé útgerð­ar­fé­lags­ins Ögurvík ehf. Kaup máls­að­ila á Ögurvík ehf. fólu í sér þrepa­skipt ferli sem hófst á vor­mán­uðum 2018.

Þann 29. ágúst 2018 var for­stjóra máls­að­ila falið af stjórn hans að hefja samn­inga­við­ræður um kaupin. „Á þeim tíma­punkti, að teknu til­liti til heild­ar­mats á þeim upp­lýs­ingum sem lágu til grund­vallar á þeim tíma og þeirrar til­teknu stöðu sem upp var komin, upp­fylltu upp­lýs­ing­arnar hug­taks­skil­yrði 120. gr. vvl. um inn­herj­a­upp­lýs­ingar. Máls­að­ili birti ekki inn­herj­a­upp­lýs­ing­arnar, né tók ákvörðun um frestun birt­ingar þeirra, fyrr en 7. sept­em­ber 2018. Máls­að­ili óskaði eftir því að ljúka mál­inu með sátt. Laga­grund­völlur Samkvæmt 1. mgr. 122. gr. vvl. ber útgef­anda fjár­mála­gern­inga, sem teknir hafa verið til við­skipta á skipu­legum verð­bréfa­mark­aði, eða verslað er með á mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga (MTF), að birta almenn­ingi á Evrópska efna­hags­svæð­inu allar þær inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem varða hann eins fljótt og auðið er og á jafn­ræð­is­grund­velli. Útgef­anda fjár­mála­gern­inga er á eigin ábyrgð heim­ilt að fresta birt­ingu inn­herj­a­upp­lýs­inga og ber honum þá að upp­fylla kröfur 4. mgr. 122. gr. vvl. Skal Fjár­mála­eft­ir­lit­inu til­kynnt um frestun á birt­ingu inn­herj­a­upp­lýs­inga jafn­óðum og heim­ild til frest­unar er nýtt,“ segir í til­kynn­ingu FME, þar sem fjallað er um máls­at­vik.

Í til­kynn­ingu FME segir að fyrr­nefndum reglum sé ætlað að stuðla að trausti til mark­að­ar­ins „með því að tryggja að fjár­festum sé ekki mis­munað og að þeim sé tryggður jafn aðgangur að upp­lýs­ingum.“ Sekt­ar­fjár­hæðin tók enn­fremur mið af tíma­lengd brots­ins, að því er segir í til­kynn­ingu FME. „Með hlið­sjón af eðli og umfangi brots, atvikum máls að öðru leyti, veltu máls­að­ila og að teknu til­liti til þess að mál­inu er lokið með sátt við upp­haf athug­unar, er sekt­ar­fjár­hæð talin hæfi­lega ákveðin 8.200.000 krónur. Rétt­ar­á­hrif Sam­komu­lag þetta er gert á grund­velli 142. gr. vvl. og reglna nr. 326/2019 um heim­ild Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til að ljúka máli með sátt. Sam­komu­lagið er bind­andi fyrir máls­að­ila og Fjár­mála­eft­ir­litið þegar báðir aðilar hafa sam­þykkt og stað­fest efni þess með und­ir­skrift sinni. Við greiðslu sekt­ar­fjár­hæðar er mál­inu lokið. Máls­að­ili brýtur gegn sam­komu­lag­inu ef hann t.d. greiðir ekki umsamda sekt­ar­fjár­hæð, gaf rangar upp­lýs­ingar um máls­at­vik eða leyndi upp­lýs­ingum sem máli skipta. Verði máls­að­ili upp­vís að því að brjóta gegn sam­komu­lag­inu getur Fjár­mála­eft­ir­litið fellt það úr gildi og tekið málið til með­ferðar á ný. Brot gegn sam­komu­lagi um sátt telst jafn­framt sjálf­stætt brot sem getur varðað stjórn­valds­sekt,“ segir í til­kynn­ingu FME.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár