Píratar vilja fleiri mælikvarða á gæði samfélagsins en hagvöxt

Píratar tala fyrir nýrri hug­mynda­fræði í efna­hags­málum sem „vefur saman sam­fé­lag og nátt­úru“ í kosn­inga­stefnu­skrá sinni sem kynnt var á dög­unum en hún var sam­þykkt fyrr í sumar. Kosning um nýja stjórn­ar­skrá er for­senda fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir er þingmaður Pírata og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi kosningum.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir er þing­maður Pírata og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Aðsend mynd

Mikil áhersla er lögð á lýð­ræðið og efl­ingu þess í stefnu Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar. Nú á dög­unum var kosn­inga­stefna flokks­ins kynnt undir yfir­skrift­inni „Lýðræði – ekk­ert kjaftæði“ og í til­kynn­ingu frá flokknum segir að hann hafi frá upp­hafi lagt áherslu á efl­ingu lýð­ræðis á Íslandi og „að koma hreint til dyr­anna.“

Á raf­rænum kynn­ing­ar­fundi Pírata sem hald­inn var á þriðju­dag sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður flokks­ins, að lýð­ræði væri ekki bara kosn­ingar, próf­kjör og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur heldur sner­ist það einnig um nálgun á stjórn­mál, þar sem áhersla ætti að vera lögð á fólk, hug­myndir þess, vel­ferð og vald­efl­ingu. Á fund­inum var kosn­inga­stefna flokks­ins, sem sam­þykkt var fyrr í sumar, kynnt. Kosn­inga­stefnan er í 24 köflum.

Kjarninn kynnti sér það helsta sem finna má í kosn­inga­stefnu­skrá Pírata.

Stefna að „sjálfbæru velsældarhagkerfi“

Fyrsti kafli í kosn­inga­stefn­unni snýr að efna­hags­málum en þar tala Píratar fyrir nýrri hug­mynda­fræði í efna­hags­málum „sem vefur saman sam­fé­lag og nátt­úru þannig að hag­kerfið taki til­lit til fleiri þátta en ein­göngu þeirra sem eru með verð­miða,“ eins og það er orðað í stefn­unni. Því vilja Píratar inn­leiða fleiri mæli­kvarða á gæði sam­fé­lags­ins, „í stað þess að láta allt snú­ast um hag­vöxt í efna­hags­málum þjóð­ar­innar.“

Píratar setja stefn­una á sjálf­bært vel­sæld­ar­hag­kerfi þar sem bar­átta gegn spill­ingu, fákeppni, ein­okun og pen­inga­þvætti mun leika lyk­il­hlut­verk. Að mati flokks­ins þarf græn­væð­ing efna­hags­lífs­ins og upp­bygg­ing hringrás­ar­sam­fé­lags að vera grund­völlur efna­hags­stefnu kom­andi rík­is­stjórnar. [links]

Píratar vilja skil­greina sam­ræmda lág­marks­fram­færslu, hækka per­sónu­af­slátt og gera hann útgreið­an­legan. Hvað skatta varðar vilja Píratar að byrðin auk­ist með hækk­andi tekjum. „Þannig verða skattar á lág laun, örorku- og elli­líf­eyr­is­þega og græn sprota­fyr­ir­tæki lækk­aðir, en skattar á ofurauð, arð- og fjár­magnstekjur og meng­andi stór­fyr­ir­tæki hækk­aðir.“

Skilyrðislaus grunnframfærsla og endurskoðun lífeyriskerfisins

Þá er í stefnu flokks­ins lögð áhersla á efl­ingu ýmissa eft­ir­lits­stofn­anna. Píratar vilja til að mynda færa emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í upp­runa­legt horf en emb­ættið var sam­einað Skatt­inum á kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn vill auk þess veita Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og Fiski­stofu fjár­magn til að sinna eft­ir­lit, tryggja fram­tíð Neyt­enda­stofu og gera umboðs­manni Alþingis kleift að hefja frum­kvæð­is­rann­sóknir.

Í kosn­inga­stefnu sinni segj­ast Píratar vilja end­ur­skoða líf­eyr­is­kerfið þannig að það verði blanda gegn­um­streym­is­kerfis og sér­eigna­sparn­aðar en það segir flokk­ur­inn geta tryggt sjálf­bærni kerf­is­ins.

Þá vill flokk­ur­inn til fram­tíðar að stuðn­ings­kerfum rík­is­ins verði umbreytt þannig að hver og einn geti gengið að skil­yrð­is­lausri grunn­fram­færslu vísri. „Fyrsta skrefið verður að greiða út per­sónu­af­slátt til hvers ein­stak­lings, og draga úr skil­yrð­ingum og skerð­ingum frá barna­bótum til líf­eyris. Arðurinn af auð­lindum og skatt­lagn­ing hagn­aðar, hálauna og ofurauðs er grunn­for­senda þess kerfis.“

Vilja ná fram kolefnishlutleysi árið 2035

Í umhverfis- og lofts­lags­stefnu Pírata er stefnan sett á kolefn­is­hlut­leysi árið 2035 en að mati flokks­ins liggur meg­in­á­byrgð þess að draga úr mengun og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hjá stjórn­völdum og fyr­ir­tækjum. Í kosn­inga­stefnu flokks­ins segir að núver­andi vald­hafar hafi ekki brugð­ist við með full­nægj­andi hætti. Því vill flokk­ur­inn að umhverf­is­ráðu­neytið hafi sterk­ari stöðu innan stjórn­ar­ráðs­ins, að skrif­stofa lofts­lags­mála starfi þvert á ráðu­neyti, hann vill öfl­uga Veð­ur­stofu og lofts­lags­ráð sem veitir stjórn­völdum virkt aðhald. [adspot]

Þegar horft er sér­stak­lega til nátt­úru­verndar vilja Píratar tryggja vernd mið­há­lend­is­ins í þágu kom­andi kyn­slóða. Flokk­ur­inn vill að ramma­á­ætlun þró­ist í sam­ræmi við aukna áherslu á nátt­úru­vernd og að raf­orka verði í auknum mæli nýtt í grænni nýsköpun og inn­viði „frekar en í þágu meng­andi stór­iðju.“ Flokk­ur­inn vill setja skýra stefnu um hringrás­ar­hag­kerfi til að draga úr vistspori og sporna gegn ofneyslu og sóun. Þar að auki segir í stefnu flokks­ins að meng­andi starf­semi eigi að greiða sér­stök gjöld og axla ábyrgð á myndun úrgangs.

Þá vill flokk­ur­inn vernda og end­ur­heimta land­vist­kerfi, efla skóg­rækt og land­græðslu bæði á land­bún­að­ar­landi sem og örfoka landi, auk þess sem flokk­ur­inn vill end­ur­skoða lög um villt dýr til að tryggja vernd þeirra. Píratar vilja auk þess und­ir­búa sam­fé­lagið undir óhjá­kvæmi­legar afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga sem felur meðal ann­ars í sér að auka fæðu­ör­yggi hér á landi og hvetja til fjöl­breyttrar og sjálf­bærrar mat­væla­fram­leiðslu.

Ný stjórnarskrá forsenda fyrir ríkisstjórnarsamstarfi

Stjórn­ar­skrár­málið hefur verið ofar­lega á baugi hjá Pírötum á und­an­förnum miss­erum. Í kosn­inga­stefnu þeirra segir að Píratar vilji á næsta kjör­tíma­bili inn­leiða nýja stjórn­ar­skrá sem grund­vall­ast á til­lögum stjórn­laga­ráðs. Tekið er fram í kosn­inga­stefn­unni að flokk­ur­inn muni ein­ungis taka þátt í myndun rík­is­stjórnar sem skuld­bindur sig til þess að kjósa um nýja stjórn­ar­skrá á kjör­tíma­bil­inu.

Meðal þess sem áhersla var lögð á á kynn­ing­ar­fund­inum voru varnir gegn spill­ingu. Píratar vilja til að mynda end­ur­skoða siða­reglur ráð­herra og starfs­fólks stjórn­ar­ráðs­ins, koma á eft­ir­liti með þeim og inn­leiða við­ur­lög við alvar­legum brotum. Þar að auki vilja Píratar að við­ur­lög verði sett við rangri hags­muna­skrán­ingu en í stefnu sinni seg­ist flokk­ur­inn ætla að tryggja að hags­muna­skrár vald­hafa séu réttar, tæm­andi og aðgengi­legar.

Líkt og áður segir vilja Píratar efla eft­ir­lits­stofn­anir. „Við viljum auka fjár­veit­ingar til hér­aðs­sak­sókn­ara og efla einnig stofn­anir á borð við Sam­keppn­is­eft­ir­litið, Rík­is­end­ur­skoð­anda, Fiski­stofu, umboðs­mann Alþingis, Per­sónu­vernd, Skattinn, Neyt­enda­stofu og end­ur­reisa Rann­sókn­ar­stofu bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins og sjálf­stæðan skatt­rann­sókn­ar­stjóra,“ segir í kosn­inga­stefnu flokks­ins en þar segir einnig að flokk­ur­inn vilji efla vernd upp­ljóstr­ara með end­ur­skoðun á núgild­andi lögum. Þá geti rann­sóknir á fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans ann­ars vegar og spill­ingu í íslenskum sjáv­ar­tú­vegi hins vegar geti ekki beðið lengur að mati flokks­ins.

Vilja uppboð á aflaheimildum og allan afla á markað

„Píratar telja að sjáv­ar­auð­lindin sé sam­eig­in­leg og ævar­andi eign íslensku þjóð­ar­innar,“ eru upp­hafs­orð þess hluta kosn­inga­stefnu Pírata sem snýr að sjáv­ar­út­vegs­málum. Því vill flokk­ur­inn að kveðið sé á um það með skýrum hætti í stjórn­ar­skrá að íslenska þjóðin sé rétt­mætur eig­andi sjáv­ar­auð­lind­ar­innar.

Píratar vilja að afla­heim­ildir verði boðnar upp á markað til leigu og að leigu­gjaldið renni „að fullu til rétt­mæts eig­anda auð­lind­ar­innar í sam­ræmi við. 34. gr. í til­lögum stjórn­laga­ráðs að nýrri stjórn­ar­skrá.“ Þar að auki vill flokk­ur­inn gera hand­færa­veiðar frjálsar öllum sem stunda þær til atvinnu.

Í stefnu flokks­ins segir að allur afli eigi að fara í gegnum inn­lendan fisk­markað. „Útgerðir með eigin vinnslu og/eða sölu­fyr­ir­tæki hér­lendis eða erlendis, útgerðum með vinnslu um borð o.fl. verði gert skylt að tryggja fyrstu við­komu afla á inn­lendum mark­aði. Þannig fæst eðli­legt mark­aðs­verð á öllu sjáv­ar­fangi.“

Styrkir í stað námslána

Halda skal áfram að færa náms­lána­kerfið yfir í styrkja­kerfi, að mati Pírata sem vilja tryggja öllum mögu­leika á að stunda nám án til­lits til efna­hags, búsetu og ald­urs. „Tryggjum stúd­entum við­eig­andi fram­færslu sem tekur mið af raun­veru­legum aðstæðum náms­fólks þannig að þau þurfi ekki að hafa áhyggjur af fram­færslu sinni,“ segir í stefnu flokks­ins.

Þar segir einnig að fólk af erlendum upp­runa eigi að fá menntun sína og starfs­rétt­indi við­ur­kennd hér á landi og að það eigi að sjá til þess að þekk­ing nem­enda af erlendum upp­runa komi fram í hæfn­is­mati, óháð móð­ur­máli þeirra.

Þá vilja Píratar að ríki og sveit­ar­fé­lög vinni saman að því að pláss á leik­skóla standi til boða strax eftir að fæð­ing­ar­or­lofi lýkur.

2000 nýjar íbúðar að lágmarki á ári til 2040

Að mati Pírata þarf að vinna upp íbúða­þörf með því að tryggja stofn­fram­lög til bygg­ingu í það minnsta 5000 íbúða. Til við­bótar við það vill flokk­ur­inn að 2000 íbúðir að lág­marki séu byggðar á hverju ári til árs­ins 2040.

Píratar vilja einnig efla leigu­mark­að­inn. „Húsa­leigu­lög þarf að end­ur­skoða frá grunni með það að mark­miði að tryggja rétt­indi leigj­enda og stuðla að heil­brigð­ari og sann­gjarn­ari leigu­mark­aði,“ segir í stefnu flokks­ins sem vill búa til efna­hags­lega hvata fyrir lang­tíma­leigu­samn­inga og banna teng­ingu verð­trygg­ingar í leigu­samn­ingum.

Þar að auki vilja píratar skil­yrða lág­marks­hlut­fall félags­í­búða í sveit­ar­fé­lögum yfir til­tek­inni lág­marks­stærð.

Vilja leggja útlendingastofnun niður

„Píratar vilja nýja nálgun í mál­efnum inn­flytj­enda á Íslandi. Í stað hind­r­ana, tor­tryggni og andúðar þarf nálgun sem byggir á mannúð, virð­ingu og ein­lægum vilja til að taka vel á móti fólki sem vill setj­ast hér að,“ segir meðal ann­ars í þeim kafla kosn­inga­stefnu­skrár Pírata sem snýr að mál­efnum inn­flytj­enda.

Flokk­ur­inn vill leggja niður Útlend­inga­stofnun og færa verk­efni hennar til ann­arra emb­ætta, svo sem Þjóð­skrár og til sýslu­manna. Að mati Pírata verður Ísland að axla rík­ari ábyrgð þegar kemur að fólki á flótta, bæði með því að taka á móti fleira flótta­fólki og með því að bæta mót­töku­ferlið. Í stefnu þeirra segir að brott­vís­anir til Grikk­lands og Ung­verja­lands séu ólíð­andi og beri að stöðva sem og brott­vís­anir þeirra sem hafa aðlag­ast hér á landi, þá sér­stak­lega barna.

Lífeyrisþegar verði ekki fyrir skerðingum vegna eigna

Í almanna­trygg­inga­kerf­inu vilja Píratar vinna að því að fjar­lægja skil­yrði og skerð­ingar og að fjár­hæð örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris fylgi almennri launa­þróun. Flokk­ur­inn vill einnig lög­festa var­an­legt frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna öryrkja og auka þar með mögu­leika öryrkja til tekju­öfl­unar. Þar að auki vilja Píratar tryggja að eignir líf­eyr­is­þega valdi ekki skerð­ingum á líf­eyr­is­greiðslum.

Fjölgun NPA samn­inga er að finna í stefnu­skrá Pírata en flokk­ur­inn vill afnema kvóta rík­is­ins gagn­vart fjár­mögnun slíkra samn­inga og tryggja að öll sem þurfi á not­enda­stýrðri per­sónu­legri aðstoð að halda hafi völ á aðstoð­inni. Flokk­ur­inn telur það einnig mik­il­vægt að samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks verði lög­festur í heild sinni og hljóti form­legt gildi hér á landi.

Vilja koma í veg fyrir einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu

Í heil­brigð­is­málum vilja Píratar sterkt opin­bert kerfi þar sem „[e]inka­rekstur í fjöl­breyttum rekstr­ar­formum á rétt á sér en þó með þeim skil­yrðum að aðgengi allra sé tryggt og að efna­hagur ákvarði ekki umfang og gæði þeirrar þjón­ustu sem hver ein­stak­lingur á rétt á.“ Flokk­ur­inn seg­ist samt sem áður ætla að „koma í veg fyrir einka­væð­ingu sem setur ofur­gróða einka­að­ila ofar heilsu lands­manna og veldur óskil­virkni í kerf­inu.“ Áhersla Pírata er lögð á að opin­ber heil­brigð­is­þjón­usta verði gjald­frjáls.

Sér­stak­lega skal hugað að geð­heil­brigð­is­málum vegna COVID, að mati Pírata sem vilja tryggja fulla fjár­mögnun geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins. Flokk­ur­inn vill nið­ur­greiða sál­fræði­þjón­ustu og við­ur­kenndar sam­tals­með­ferðir og tryggja aðgengi nem­enda á öllum skóla­stigum að slíkri þjón­ustu.

Í stað núver­andi refsi­stefnu vilja Píratar afglæpa­væða neyslu­skammta og end­ur­skoða refs­ingar vegna vímu­efna­brota. Með for­vörnum, fræðslu, við­halds- og með­ferð­ar­úr­ræðum vilja Píratar draga úr eft­ir­spurn eftir vímu­efnum.

Kostnaður verði minni hindrun í réttarkerfinu

Sér­stakur kafli í kosn­inga­stefnu­skrá Pírata snýr að aðgengi að rétt­ar­kerf­inu. Píratar vilja „gera ein­stak­lingum kleift á að sækja rétt sinn og verja sig án þess að kostn­aður eða flækju­stig séu veru­leg hindrun.“

Þessu vilja Píratar ná fram með því að end­ur­skoða reglur um gjaf­sókn, koma á ráð­gjaf­ar­stofu almenn­ings, stytta máls­með­ferð meið­yrða­mála, ein­falda ferli lög­skiln­aðar og setja á fót smá­kröfu­dóm­stól, svo dæmi séu tekin. Þá vill flokk­ur­inn að ríkið tryggi bætur til þolenda ofbeld­is­glæpa óháð fjár­hæð.

RÚV fari af auglýsingamarkaði

„Óháðir fjöl­miðlar gegna lyk­il­hlut­verki í því að veita stjórn­völdum aðhald, miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings og veita vett­vang fyrir upp­lýsta þjóð­mála­um­ræðu. Við viljum tryggja fjöl­miðla­frelsi með því að bæta rétt­ar­vernd blaða­manna, tryggja rekstr­ar­legt og laga­legt umhverfi fjöl­miðla og auka mögu­leika þeirra til tekju­öfl­unar, meðal ann­ars með því að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði,“ segir meðal ann­ars um mál­efni fjöl­miðla í stefnu Pírata. Flokk­ur­inn vill því fram­kvæma heild­ar­stefnu­mótun til að styrkja fjöl­miðla á Íslandi.

Hvað varðar Rík­is­út­varpið þá vill flokk­ur­inn að fjár­fram­lög til stofn­un­ar­innar séu tryggð til þess að hún geti enn sinnt inn­lendri dag­skrár­gerð, örygg­is­hlut­verki og menn­ingar- og mennta­hlut­verki sem og rekið frétta­stofu. Að mati Pírata ætti að fjár­magna starf­semi RÚV með hefð­bundnum sköttum í stað nef­skatts sem flokk­ur­inn segir leggj­ast þyngst á þau sem minnst hafa.

Íslendingar eigi að beita sér gegn hernaðaruppbyggingu

Ekki er tekin afstaða til Evr­ópu­sam­bands­ins og aðild­ar­við­ræðna í kosn­inga­stefnu­skrá Pírata. Þar segir að flokk­ur­inn vilji „hvorki hefja aðild­ar­við­ræður, né ljúka þeim, án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna þar sem fram fari hlut­laus og heild­stæð kynn­ing á kostum og göllum aðildar.“

Þar segir einnig að Íslend­ingar eigi að beita sér gegn hvers kyns hern­að­ar­upp­bygg­ingu í Norður-Atl­ants­hafi og á norð­ur­slóðum og að Ísland eigi að tala fyrir friði á virkan hátt innan NATO.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár