Hvað vill Flokkur fólksins?

Flokkur fólks­ins boðar marg­vís­legar aðgerðir til þess að bæta hag þeirra sem standa höllum fæti í íslensku sam­fé­lagi. Flokk­ur­inn seg­ist geta sótt tugi millj­arða til þess að fjár­magna lof­orð sín með breyt­ingum í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu.

Inga Sæland er formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland er for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólks­ins hefur á und­an­förnum dögum verið að kynna fram­boðs­lista sína fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar. Flokk­ur­inn, sem fékk fjóra þing­menn kjörna eftir kosn­ing­arnar 2017 þrátt fyrir að ein­ungis tveir standi nú eftir innan raða flokks­ins, hefur verið að mæl­ast undir kjör­fylgi í skoð­ana­könn­unum að und­an­förnu og jafn­vel undir fimm pró­senta fylgi á lands­vísu, sem myndi þýða að flokk­ur­inn þyrfti að treysta á að fá kjör­dæma­kjörna þing­menn.

Flokk­ur­inn hefur sótt sér nokkra nýja odd­vita, sem eiga það sam­eig­in­legt að vera allir þekktir af öðrum störfum, jafn­vel þjóð­þekktir ein­stak­lingar. Tómas Tómasson veit­inga­maður á Ham­borg­ara­búll­unni leiðir flokk­inn í Reykja­víkur norður, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir for­maður Hag­muna­sam­taka heim­il­anna er odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi, Jakob Frímann Magn­ús­son tón­listar- og athafna­maður í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og Eyjólfur Ármanns­son for­maður hóps­ins Orkan okkar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Þessi fjögur ásamt þeim Ingu Sæland for­manni og Guðmundi Inga Krist­ins­syni vara­for­manni leiða flokk­inn fram til kosn­inga, en ennþá er flokk­ur­inn þó bara búinn að kynna þrjá heila fram­boðs­lista. En fyrir hvað stendur Flokkur fólks­ins og hverju lofar hann kjós­endum fyrir kom­andi kosn­ingar? Kjarninn kíkti á það sem flokk­ur­inn býður kjós­endum upp á.

Á vef flokks­ins má finna yfir­lit yfir þau mál sem Flokkur fólks­ins hyggst setja í for­gang. Þar eru þónokkur lof­orð, sum nákvæm­lega útfærð, en önnur síður. Sérstök áhersla er lögð á mál­efni eldri borg­ara, öryrkja og lág­tekju­hópa í íslensku sam­fé­lagi.

350 þúsund króna lágmarksframfærsla

Flokkur fólks­ins vill nýtt almanna­trygg­inga­kerfi sem tryggi lág­marks­fram­færslu, 350 þús­und krónur á mán­uði, skatta- og skerð­inga­laust. Flokk­ur­inn vill auk þess að öllum öryrkjum sem treysta sér til verði leyft „reyna fyrir sér á vinnu­mark­aði í tvö ár án skerð­inga“ og án þess að örorka þeirra sé end­ur­metin.[links]

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja beita sér fyrir því að skatt­leys­is­mörk verði hækkuð í 350 þús­und krónur á mán­uði. Skatt­leys­is­mörk launa eru í dag 168.230 kr. svo um er að ræða tæp­lega 180 þús­und króna hækkun skatt­leys­is­markanna. Flokk­ur­inn seg­ist vilja „færa per­sónu­af­slátt­inn frá þeim ríku til hinna efna­minni“, það sé „sann­gjarnt, rétt­látt og eðli­legt“.

Þá seg­ist flokk­ur­inn vilja hækka frí­tekju­mark elli­líf­eyris vegna líf­eyr­is­tekna úr 25 þús­und upp í 100 þús­und og heitir því að „leggja niður skerð­ingar á elli­líf­eyri vegna atvinnu­tekna.“

Afnám verðtryggingar

Flokkur fólks­ins hefur lengi haft það á stefnu­skrá sinni að afnema verð­trygg­ingu hús­næð­is­lána og er það á meðal for­gangs­mála flokks­ins nú. Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja að almenn­ingi verði heim­ilt að end­ur­fjár­magna verð­tryggð lán með óverð­tryggðum lánum án þess að und­ir­gang­ast láns­hæfis- og greiðslu­mat.

Flokk­ur­inn heitir því einnig að „afnema með öllu him­inhá upp­greiðslu­gjöld á lána­samn­ingum sem Íbúða­lána­sjóður gerði á sínum tíma“ og berj­ast gegn hús­næð­is­skorti með því að „skapa hvata til auk­innar upp­bygg­ingar á nýju hús­næði“. Þá segir flokk­ur­inn að verð íbúða­lóða eigi að „miða við raun­kostnað, en ekki duttl­unga mark­að­ar­ins.“

Í sjáv­ar­út­vegs­málum seg­ist Flokkur fólks­ins vilja að „fullt verð“ verði greitt fyrir aðgang að sjáv­ar­auð­lindum og styður að kveðið verði á um að auð­lindir séu í þjóð­ar­eign í stjórn­ar­skránni. Flokk­ur­inn vill „nýja nýt­ing­ar­stefnu fiski­mið­anna“ sem feli í sér að íbúar sjáv­ar­byggða fái auk­inn rétt til að nýta sjáv­ar­auð­lind­ina með jákvæðum áhrifum fyrir sjáv­ar­pláss víða um land, með stór­efldum strand­veiðum og frjálsum hand­færa­veiðum.

Engar skerðingar á námslán

Flokkur fólks­ins vill að þeir sem eru á náms­lánum frá Mennta­sjóði náms­manna verði ekki fyrir neinum skerð­ingum, þrátt fyrir að laun þeirra séu hærri en sem nemur frí­tekju­marki náms­lána. Í stefnu­skrá flokks­ins segir að það eigi að veita náms­fólki frelsi til að afla sér auka­tekna. Í dag eru regl­urnar þannig að náms­maður má hafa allt að 1.410.000 kr. í tekjur á árinu 2021 án þess að náms­lán hans á náms­ár­inu 2021-2022 skerð­ist.

[adspot]

Í heil­brigð­is­málum ætlar Flokkur fólks­ins sér stóra hluti. Flokkur fólks­ins segir að hann muni tryggja „fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins að fullu,“ „útrýma öllum biðlistum eftir nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu“ og tryggja að fólk sem fæð­ist með lýti fái lækn­is­að­gerðir nið­ur­greiddar frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Flokk­ur­inn seg­ist enn fremur að hann muni aldrei sætta sig við að börn þurfi að bíða eftir brýnni lækn­is­hjálp.

Loftslagsaðgerðir án þess að íþyngja almenningi

Í umhverf­is­málum vill Flokkur fólks­ins að Ísland axli ábyrgð hvað lofts­lags­breyt­ingar varðar, án þess þó að aðgerðir í þágu umhverf­is­verndar bitni á almenn­ingi. „Við munum beita okkur gegn grænum sköttum sem auka mis­skipt­ingu og fátækt,“ segir flokk­ur­inn, sem boðar að „hreinar orku­lindir lands­ins“ verði „nýttar af skyn­semi svo draga megi úr mengun.“

Í umhverf­is­málum seg­ist flokk­ur­inn einnig standa gegn þjóð­garði á hálend­inu. „Hálendið er unaðs­reitur sem má ekki stofn­ana­væða í formi þjóð­garðs með til­heyr­andi ráð­herraræði á kostnað almanna­réttar. Það hafa ekki allir efni á utan­lands­ferðum,“ segir flokk­ur­inn.

Heita því að fjármagna loforðin

Flokkur fólks­ins segir að þau kosn­inga­lof­orð sem sett hafa verið fram af hálfu flokks­ins muni flokk­ur­inn einnig fjár­magna, með aðgerðum sem er tíund­aðar í stefnu­skrá flokks­ins.

Þannig seg­ist flokk­ur­inn ætla sér að sækja tugi millj­arða í rík­is­sjóð með því að „afnema und­an­þágu líf­eyr­is­sjóða til að halda eftir stað­greiðslu skatta við inn­borgun í sjóð­ina.“ Flokk­ur­inn segir að þannig muni stað­greiðslan verða tekin „strax við inn­borgun en ekki þegar greitt er úr sjóð­unum eins og nú er.“

Auk þess segir flokk­ur­inn ætla að inn­heimta fullt verð fyrir aðgang að sjáv­ar­auð­lind­inni, inn­leiða banka­skatt­inn á ný og „hreinsa til í kerf­inu og draga úr hvers konar óþarfa útgjöldum rík­is­sjóðs“ án þess að nánar sé útli­stað hvaða útgjöld rík­is­sjóðs séu óþörf með öllu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár