Sjálfstæðisflokkurinn vill virkja einkaframtakið í „Landi tækifæranna“

Aðkoma einka­að­ila í vel­ferðar- og heil­brigð­is­þjón­ustu, menntun og í upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða er meðal þess sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur áherslu á fyrir kom­andi kosn­ingar. Flokk­ur­inn kynnti kosn­inga­á­herslur sínar um nýliðna helgi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksiins og fjármálaráðherra, í púlti á kosningastefnufundi formanna og flokksráðs Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokksi­ins og fjár­mála­ráð­herra, í púlti á kosn­inga­stefnufundi for­manna og flokks­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Fundur flokks­ráðs og for­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins var hald­inn um helg­ina á Hilton Reykja­vík Nordica og á sex öðrum stöðum á land­inu sam­tímis. Á fund­inum kom flokks­ráð og for­menn allra félaga og ráða í flokknum saman til að móta stefnu flokks­ins fyrir næstu kosn­ingar og lauk fund­inum með afgreiðslu stjórn­mála­á­lykt­unar þar sem kosn­inga­á­herslur flokks­ins er að finna undir yfir­skrift­inni „Land tæki­fær­anna“.

Fyrsta atriðið sem nefnt er undir kosn­inga­á­herslum flokks­ins er ábyrg efna­hags­stjórn sem sögð er vera for­senda þess að lífs­kjör hér á landi haldi áfram að batna. Flokk­ur­inn leggur áherslu á lægri skatta í þágu heim­ila og fyr­ir­tækja, öfl­ugra og fjöl­breytt­ara atvinnu­líf sem og auk­inn fjöl­breyti­leika í mennta­kerf­inu, „til að halda í við öra þróun sam­fé­lags og þarfir atvinnu­lífs.“

Flokk­ur­inn boðar græna orku­bylt­ingu sem felur í sér að Ísland taki for­ystu í orku­skiptum með því að nýta inn­lenda orku. Sam­göngur skulu auk þess verða nútíma­legar, greiðar og öruggar um allt land.

Þá er lögð áhersla á að réttur til heil­brigð­is­þjón­ustu verði tryggður, að trygg­inga­kerfi eldri borg­ara verði end­ur­skoðað frá grunni og að frí­tekju­mark atvinnu­tekna þeirra verði hækkað í 200 þús­und krónur á mán­uði.

Sóttvarnaaðgerðir geti ekki tekið mið af stöðu Landspítala

Í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins segir að slaka þurfi á sótt­varna­að­gerðum, nú þegar nærri öll þjóðin sé orðin bólu­sett. Nauð­syn­legt sé að vega hags­muni út frá sótt­vörnum og efn­hags- og sam­fé­lags­legum áhrifum. Þar kemur einnig fram að leggja skuli aukna áherslu á ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir en að huga þurfi um leið sér­stak­lega að þeim sem glíma við und­ir­liggj­andi sjúk­dóma eða eru í við­kvæmri stöðu.

Þar segir að Land­spít­al­inn þurfi að taka mið af far­aldr­inum hverju sinni frekar en að sótt­varna­að­gerðir taki mið af stöðu spít­al­ans. „Sótt­varna­að­gerðir til lengri tíma geta ekki tekið mið af stöðu Land­spít­ala heldur þarf skipu­lag og stjórnun spít­al­ans að taka mið af aðstæðum á hverjum tíma. Auka verður svig­rúm heil­brigð­is­kerf­is­ins til að bregð­ast við, jafnt fjár­hags­lega sem skipu­lags­lega. Standa verður áfram vörð um fleira en sótt­varnir þegar kemur að heilsu lands­manna.“

Einkaframtakið virkjað

Flokk­ur­inn leggur áherslu á að sjálf­bærni rík­is­fjár­mála til lengri tíma sé tryggt. „Mark­miðið er að rekstur rík­is­sjóðs verði orð­inn jákvæður fyrir lok nýs kjör­tíma­bils, fyrst og fremst með auknum útflutn­ings­tekjum og umbótum í opin­berum rekstri. Leggja ber áherslu á að for­gangs­raða verk­efnum og virkja einka­fram­takið betur við veit­ingu opin­berrar þjón­ustu,“ segir í álykt­un­inni.

Virkjun einka­fram­taks­ins er ákveðið leið­ar­stef í stefn­unni, enda sé grund­vall­ar­stefna flokks­ins sú „að frum­kvæði ein­stak­lings­ins fái notið sín sam­fara ábyrgð á eigin athöfnum.“ Í stefn­unni segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi haft for­ystu um að fækka rík­is­stofn­unum og draga úr þátt­töku rík­is­ins á fjár­mála­mörk­uðum með sölu á hluta­bréfum í bönkum og með því að ein­falda reglu­verk og afnema lög og hund­ruð reglu­gerða. „Með því hefur sam­keppn­is­staða atvinnu­lífs­ins verið styrkt og líf ein­stak­linga ein­faldað.“

Útlit er fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji halda áfram á sömu braut en sam­ein­ing Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Neyt­enda­stofu er nefnt í kosn­inga­stefnu flokks­ins sem aðgerð sem hægt sé að ráð­ast í til þess að bæta sam­keppn­isum­hverfi, laga- og reglu­verk, „þannig að hags­munir almenn­ings séu alltaf hafðir að leið­ar­ljósi.“ Flokk­ur­inn vill einnig að ríkið dragi úr sam­keppn­is­rekstri sínum og þá ekki síst með því að halda áfram að losa um eign­ar­hluti sína í fjár­mála­fyr­ir­tækjum á næstu árum en eign­ar­hald rík­is­ins í við­skipta­bönkum er um 425 millj­arðar um þessar mundir.

Í álykt­un­inni segir að ein­falt þurfi að vera að stofna og reka fyr­ir­tæki og fyrir fyr­ir­tæki að ráða starfs­fólk. Skattaum­hverfi verði að sníða með þeim hætti að alþjóð­leg sam­keppn­is­hæfni sé tryggð og þannig að almennt sé ekki þörf fyrir íviln­anir eða afslátt af opin­berum gjöldum. Þá er í umfjöllun um ólíka geira, til að mynda ferða­þjón­ustu, bygg­ing­ar­iðnað og mat­væla­fram­leiðslu, sagt að huga þurfi sér­stak­lega að reglu­verki, þannig að það hafi ekki hamlandi áhrif.

Loftslagsbreytingar eru „tækifæri fyrir bændur“

Samkvæmt ályktun flokks­ins þarf að nýta sér­stöðu Íslands þegar kemur að heil­næmi í mat­væla­fram­leiðslu og hrein­leika nátt­úr­unnar og leggja frek­ari grunn að sókn íslenskrar mat­væla­fram­leiðslu, bæði í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi. Tryggja þurfi fjöl­breytta búskap­ar­hætti á grund­velli einka­fram­taks og frelsis til athafna og því þurfi sér­stak­lega að huga að reglu­verki svo það hamli ekki nýsköpun og fram­þróun. Þá eru lofts­lags­breyt­ingar sagðar vera tæki­færi en ekki ógn.

„Land­bún­aður er mik­il­vægur í aðgerðum í lofts­lags­málum og getur með hag­kvæmum hætti skipt sköpum. Um það verður ekki deilt að loft­lags­mál munu leika lyk­il­hlut­verk í þróun íslensks land­bún­aðar. Hér er ekki um ógn að ræða heldur tæki­færi fyrir bændur til að ná fram auk­inni hag­kvæmni og arð­semi. Allar aðgerðir þurfa að vera mæl­an­legar og árangur verð­met­inn,“ segir í álykt­un­inni.

Þar segir einnig að það sé nauð­syn­legt að gjald­heimta í sjáv­ar­út­vegi dragi ekki úr sam­keppn­is­hæfni á alþjóða­mark­aði og fjár­fest­ingu. Þá gefi fisk­eldi aukin tæki­færi til verð­mæta­sköp­unar. Einnig segir að atvinnu­greinar sem nýti nátt­úru­auð­lindir í eigu hins opin­bera eigi að greiða hóf­legt og sann­gjarnt gjald fyrir. Sjálfbær nýt­ing orku­auð­linda byggi undir árangur í lofts­lags­málum en sam­kvæmt álykt­un­inni er arð­söm upp­bygg­ing og nýt­ing auð­linda í sátt við umhverf­is­sjón­ar­mið lyk­il­at­riði í fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu hag­kerf­is­ins.

Flugvöllur í Vatnsmýri þar til annar er tilbúinn

Flokk­ur­inn vill að aukin áhersla verði lögð á upp­bygg­ingu stofn- og tengi­vega um land allt og að áætlun verði mótuð um gerð jarð­ganga til lengri tíma, styrk­ingu ferju­leiða og við­hald flug­valla og upp­bygg­ingu vara­flug­valla. Reykja­vík­ur­flug­völlur er sagður gegna mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir landið allt og því sé „brýnt að hann verði óskertur í Vatns­mýri þar til annar jafn góður eða betri kostur er til­bú­inn til notk­unar.“

Flokk­ur­inn vill að einka­að­ilar komi að fjár­mögnun sam­göngu­verk­efna en það er sagt geta tryggt hrað­ari upp­bygg­ingu og betri nýt­ingu fjár­muna.

Ísland verði fyrst þjóða óháð jarðefnaeldsneyti

Í umhverf­is­málum telur flokk­ur­inn að íviln­anir og jákvæðir hvatar séu besta tækið til að fá atvinnu­líf og ein­stak­linga til að dragar úr losun og að skapa þurfi enn frek­ari hvata til fjár­fest­inga í grænum lausnum. Þá sé Ísland í lyk­il­stöðu til þess að hverfa frá jarð­efna­elds­neyti og taka upp umhverf­is­vænni orku­gjafa. Efna­hags­legur ávinn­ingur af því er sagður mik­ill en sam­kvæmt álykt­un­inni kaupa Íslend­ingar elds­neyti frá útlöndum fyrir um 80 til 120 millj­arðar á ári hverju. Flokk­ur­inn vill að Ísland verði fyrst þjóða óháð jarð­efna­elds­neyti.

Stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs mátti finna í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri-grænna og Fram­sóknar sem setið hefur í rík­is­stjórn á þessu kjör­tíma­bili en ekki kom til stofn­unar þjóð­garðs­ins. Ekki er með öllu ljóst hvað stendur til hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í mál­efnum mið­há­lend­is­þjóð­garðs en um hann segir í álykt­un­inni:

„Upp­bygg­ing þjóð­garða á mið­há­lendi Íslands verður að vera í sátt við sveit­ar­fé­lög, land­eig­endur og aðra þá sem nýta og njóta hálend­is­ins. Sé rétt staðið að skipu­lagi og allri umgjörð þjóð­garða geta þeir ekki aðeins verið hluti af mark­vissum aðgerðum á sviði nátt­úru­verndar heldur einnig skapað ný tæki­færi í atvinnu­málum um allt land, ekki síst ferða­þjón­ustu. Við upp­bygg­ingu þjóð­garða verður að tryggja öruggan raf­orku­flutn­ing um allt land ásamt sjálf­bærri nýt­ingu orku­auð­linda. Þá þarf að tryggja áfram ferða­frelsi um hálendi Íslands, óháð ferða­máta hvers og eins. Eigi að auka umfang þjóð­garða á hálendi Íslands þarf ávinn­ing­ur­inn að vera ljós fyrir þá sem nýta og njóta hálend­is­ins.“

Styrkja þurfi samstarfs milli stofnana og sjálfstætt starfandi í heilbrigðisþjónustu

Flokk­ur­inn telur að hægt sé að bæta þjón­ustu í vel­ferðar- og heil­brigð­is­þjón­ustu með „mark­vissri sam­þætt­ingu og sam­vinnu opin­berra og sjálf­stætt starf­andi aðila“ og að nauð­syn­legt sé að móta nýja stefnu á breiðum grunni. Flokk­ur­inn leggur áherslu á að við skipu­lag heil­brigð­is­þjón­ustu sé réttur ein­stak­linga til þjón­ustu tryggður.

Í álykt­un­inni segir að nýta þurfi einka­fram­takið betur og mark­vissar á sviði heil­brigð­is­þjón­ustu og fjár­fest­inga. Þá eigi ein­stak­lingar og heil­brigð­is­starfs­fólk að geta átt fleiri en einn val­kost þaegar kemur að sjúkra­hús­starf­semi og almennri heil­brigð­is­þjón­ustu. Nýsköpun á sviði vel­ferðar- og heil­brigð­is­þjón­ustu muni stuðla að auk­inni hag­kvæmni og gæðum í rekstri sem og tæki­færi til auk­inna útflutn­ings­tekna.

Gera þarf Land­spít­ala kleift að draga úr annarri starf­semi en þeirri sem hann á að sinna með því að efna til og styrkja sam­starf við aðrar heil­brigð­is­stofn­anir, sér­fræði­lækna og aðra sjálf­stætt starf­andi aðila í heil­brigð­is­þjón­ustu, segir enn fremur í álykt­un­inni. Land­spít­al­inn eigi að sinna stærri og flókn­ari aðgerðum. Hann á auk þess að vera leið­andi í sótt­vörnum og örygg­is­málum er varða lýð­heilsu og heilsu­gæslu í land­inu.

Hið opinbera greiði með hverjum nema óháð rekstrarformi skóla

Í mennta­málum vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn meðal ann­ars að háskóla­nám verði styrkt um allt land og að gæði þess verði tryggð. Grunn­skólar eru sagðir eiga að leggja aukna áherslu á list- og verk­greinar og þá þarf skóla­starf að huga sér­stak­lega að börnum með erlent móð­ur­mál og drengjum, enda standi þeir höllum fæti sam­kvæmt rann­sóknum og alþjóð­legum sam­an­burði.

Flokk­ur­inn vill að auk opin­bers rekstrar séu „kostir ein­stak­lings­fram­taks­ins nýttir með öfl­ugum sjálf­stætt starf­andi skólum og nýsköpun á sem flestum sviðum. Hið opin­bera á að greiða það sama með hverjum nema, óháð rekstr­ar­formi skól­ans sem hann sækir.“

Fjallað er um inn­flytj­enda­mál undir liðnum „Menntun og menn­ing“ í álykt­un­inni enda auðgi inn­fletj­endur bæði menn­ingu og efna­hag, eins og það er orðað í álykt­un­inni. Að mati floks­ins þarf að þróa útlend­inga­lög­gjöf­ina áfram af „ábyrgð, raun­sæi og mannúð.“ Í álykt­un­inni segir að auð­velda ætti fólki utan EES, sem getur fengið starf hér á landi, að koma hingað og starfa. Þar að auki segir í álykt­un­inni að stytta þurfi og ein­falda ferla og þau kerfi er varða umsækj­endur um alþjóð­lega vernd.

Tilefni til að endurskoða ákveðna þætti stjórnarskrár

Að mati flokks­ins er til­efni til end­ur­skoð­unar ákveð­inna þátta stjórn­ar­skrár­innar, án þess þó að taka upp nýja stjórn­ar­skrá. „Heild­ar­end­ur­skoðun sem umturnar öllum ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar sam­ræm­ist illa sjón­ar­miðum um réttar­ör­yggi og fyr­ir­sjá­an­leika.“

Þá vill flokk­ur­inn fjölga lög­reglu­mönnum í land­inu, en í álykt­un­inni segir að þekk­ing, þjálfun, starfs­um­hverfi og bún­aður þurfi að vera í takt við nútíma­kröfur. Það sé eitt af meg­in­hlut­verkum rík­is­valds­ins „að tryggja öryggi borg­ar­anna, vernda rétt­indi þeirra og frið­helgi einka­lífs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár