Framsóknarflokkurinn boðar engar „töfra- eða allsherjarlausnir“ í baráttunni

Framsókn lagði fram kosn­inga­á­herslur sínar í gær­kvöldi og boðar meðal ann­ars að álögur lækki á minni fyr­ir­tæki en hækki á þau sem skili veru­legum hagn­aði, að þrjú ný ráðu­neyti verði stofnuð og að fleiri geti fengið hlut­deild­ar­lán til að kaupa íbúð.

Sigurður Ingi Jóhannsson flokksformaður hélt ræðu á kosningafundi flokksins í gærkvöldi.
Sigurður Ingi Jóhanns­son flokks­for­maður hélt ræðu á kosn­inga­fundi flokks­ins í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/Framsókn

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn kynnti mál­efna­á­herslur sínar fyrir kom­andi kosn­ingar á fundi á Hótel Nordica í Reykja­vík í gær­kvöldi, undir slag­orð­inu Fjár­festum í fólki.

Flokk­ur­inn, sem er fyrstur núver­andi stjórn­ar­flokka til þess að kynna kosn­inga­á­herslur sínar, seg­ist ekki ætla að leggja fram hug­myndir að „töfra- eða alls­herj­ar­lausnum“ fyrir þessar kosn­ingar.

Í mál­efna­á­herslum Fram­sóknar er víða talað um að fjár­festa í fólki og efla eða jafn­vel stór­efla ýmis kerfi sam­fé­lags­ins, en sjaldnar er talað hvernig flokk­ur­inn nákvæm­lega vilji gera það.

Kjarninn skoð­aði mál­efna­skrá flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar og tók út það helsta.

Stærri fyrirtæki borgi hærri skatta

Í atvinnu­málum seg­ist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vera málsvari lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja. Flokk­ur­inn vill taka upp þrepa­skipt trygg­inga­gjald og lækka trygg­inga­gjald á lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki. Samhliða segir flokk­ur­inn nauð­syn­legt að taka upp fleiri þrep í tekju­statti fyr­ir­tækja.

„Hreinan hagnað fyr­ir­tækja umfram 200 m.kr. á ári þarf að skatt­leggja hærra til á móti lækk­un­inni til að hún dragi ekki úr getu rík­is­sjóðs til að standa undir öfl­ugu vel­ferðar-, mennta- og heil­brigð­is­kerfi,“ segir í mál­efna­skrá flokks­ins.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig leggja áherslu á að tekið verði til­lit til stærðar fyr­ir­tækja við álagn­ingu ýmissa opin­berra gjaldra, sem í dag eru í formi flatra gjalda eða skatta, eins og gjöld vegna starfs­leyfa og úttekta eft­ir­lits­að­ila.

Framsókn seg­ist líka vilja nota skatt­kerfið til að jafna aðstöðumun fólks á lands­byggð­inni, en ekki er útskýrt nákvæm­lega við hvað er átt í því til­liti.

Þrjú ný ráðuneyti á teikniborði Framsóknarflokksins

Í kosn­inga­stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að vilji flokks­ins sé að breyta skipu­lagi stjórn­ar­ráðs­ins nokkuð og setja á fót heil þrjú ný ráðu­neyti.

Þannig vill flokk­ur­inn koma á fót sér­stöku lofts­lags­ráðu­neyti til þess að halda utan um aðgerðir í þeim efnum og sömu­leiðis kljúfa land­bún­að­inn frá sjáv­ar­út­veg­inum yfir í sér­stakt land­bún­aðar- og mat­væla­ráðu­neyti. Til við­bótar við það segir flokk­ur­inn að það ætti að setja á fót sér­stakt ráðu­neyti skap­andi greina.

Auk þess segir flokk­ur­inn að færa þurfi skipu­lags­mál og hús­næð­is­mál undir eitt og sama ráðu­neytið, en eins og staðan er í dag heyra skipu­lags­málin undir sam­göngu­ráðu­neytið og hús­næð­is­málin eru í félags­mála­ráðu­neyt­inu.

35 prósent endurgreiðslur til kvikmyndagerðar

Auk þess að segja að næsta skref sé „sér­stakt ráðu­neyti skap­andi greina“ seg­ist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vilja byggja undir upp­bygg­ingu í skap­andi greinum. Í kosn­inga­stefn­unni segir meðal ann­ars að flokk­ur­inn vilji hækka end­ur­greiðslur á kostn­aði við kvik­mynda­gerð úr 25 pró­sentum upp í 35 pró­sent og byggja upp inn­viði fyrir kvik­mynda­gerð.

Flokk­ur­inn segir tæki­færin í hug­verka­iðn­aði nær ótak­mörkuð og vill hvetja til frek­ari fjár­fest­inga á svið­inu með „fjár­fest­inga­stuðn­ingi við stærri verk­efni“ sem skapi verð­mæti og störf. Framsókn seg­ist einnig vilja styrkja Tækni­þró­un­ar­sjóð og bæta skattaum­hverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja.

Sundabraut í gang 2026 og alltaf ein jarðgöng í byggingu

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur farið með ráðu­neyti sam­göngu­mála und­an­farin ár og mál­efna­skrá flokks­ins í þeim efnum er að mestu upp­taln­ing á þeim verkum sem ákveðið hefur verið að ráð­ast í á næstu árum og þeim sem Sigurður Ingi Jóhann­es­son for­maður flokks­ins hefur beitt sér fyrir.

Sér­stak­lega er minnst á Sunda­braut, sem flokk­ur­inn segir að verði stór­kost­leg sam­göngu­bót sem losi um umferð­ar­hnúta. „Á kjör­tíma­bil­inu hefur verið unnið að und­ir­bún­ingi svo fram­kvæmdir geti byrjað eins og áætl­anir gera ráð fyrir árið 2026,“ segir um Sunda­braut­ina í plaggi flokks­ins.

Varðandi upp­bygg­ingu inn­viða á hálend­inu seg­ist Framsókn vilja huga að því til fram­tíðar að raf­magns­bílar kom­ist þar um. Einnig vill flokk­ur­inn leggja áherslu á veg­ina um Kjöl og að Fjalla­baki, „ekki síst vegna mögu­legs örygg­is­hlut­verks þeirra ef nátt­úruvá ber að dyrum.“

Framsókn vill síðan að á hverjum tíma sé alltaf unnið að því að byggja að minnsta kosti ein jarð­göng á land­inu. Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja efla bæði inn­an­lands­flug­velli og hafnir.

Meira fé til byggðamála

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn seg­ist vilja setja bæði aukið fé í byggða­á­ætlun og auka við eigið fé Byggða­stofn­unar. Þá vill flokk­ur­inn að byggðir verði klasar í sam­starfi ríkis, sveit­ar­fé­laga og atvinnu­lífs út um landið til að tryggja betur fram­gang hug­mynda­fræð­innar um störf án stað­setn­ingar.

„Sett verði í for­gang því tengdu að þróa skatta­lega hvata til að flýta þeirri upp­bygg­ingu svo klasar eða sam­vinnu­hús rísi sem víð­ast. Aðstöðu­leysi má ekki koma í veg fyrir að störf á vegum hins opin­bera og einka­að­ila verði til á lands­byggð­inni,“ segir í stefnu flokks­ins.

Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja beita „fjár­hags­legum hvötum“ að auka aðgengi íbúa á skil­greindum brot­hættum svæðum að opin­berri þjón­ustu og segir Loft­brúna, nið­ur­greitt flug fyrir íbúa lands­byggð­ar­innar, dæmi um vel heppn­aða aðgerð af þessu tagi.

Grænn iðnaður

Í mál­efna­á­herslum Fram­sókn­ar­flokks­ins er vikið að lofts­lags­málum í kafl­anum um land­búnað. Þar segir að flokk­inn vilji styðja betur við land­græðslu og skóg­rækt til að mæta skuld­bind­ingum Íslands í lofts­lags­málum og að stuðn­ingur hin opin­bera í land­bún­aði þurfi í auknum mæli „að bein­ast að því að efla fjöl­breyta ræktun og land­nýt­ingu, þar með talið kolefn­is­bind­ingu.“

[adspot]

Einnig er sér kafli um lofts­lags­málin, þar sem flokk­ur­inn seg­ist vilja efla grænan iðnað, þar á meðal vetn­is­fram­leiðslu og „nýta tæki­færin í land­inu til nýsköp­unar, þró­unar og verð­mæta­sköp­unar í lofts­lags­málum“. Framsókn seg­ist vilja taka „enn stærri skref“ í orku­skiptum á næstu árum.

„Verk­efnin þurfa að vera mark­viss­ari og skil­virk­ari og til þess að leiða það telur Framsókn nauð­syn­legt að koma á sér­stöku lofts­lags­ráðu­neyti. Stefnan er kolefn­is­hlut­laust Ísland árið 2040,“ segir í stefnuplaggi flokks­ins.

Fjárfestingar í fólki sem hefur lent í áföllum

Í heil­brigð­is­málum seg­ist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vilja skoða hvort til­efni sé til auk­ins einka­rekst­urs innan heil­brigð­is­geirans.

Þá vill flokk­ur­inn ráð­ast í þjóð­ar­á­tak í lýð­heilsu­tengdum for­vörnum, auk þess sem flokk­ur­inn vill efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í for­varna­skyn og seg­ist vilja stór­efla heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­stofn­ana, sér­stak­lega fyrir eldra fólk. Bent er á að Finnar hafi náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri varð­andi hið síð­ast­nefnda.

Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja fjár­festa í fólki sem hefur lent í marg­vís­legum alvar­legum áföllum á sinni lífs­leið og fara í mark­vissa vinnu við að end­ur­meta og sam­þætta þjón­ustu við þennan hóp fólks.

Styrkir til foreldra sem eru með börn heima

Í mál­efnum barna seg­ist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn meðal ann­ars vilja koma á fót styrkjum fyrir for­eldra sem þurfa að brúa bil á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla og eru ekki með börnin hjá dag­for­eldri. Ekki kemur fram hve háa styrki flokk­ur­inn sér fyrir sér.

Einnig vill flokk­ur­inn koma á svo­kall­aðri þjón­ustu­trygg­ingu, „sem þýðir að ef ein­stak­lingur fær ekki heil­brigðis- eða félags­þjón­ustu hjá hinu opin­bera er honum vísað til einka­að­ila, sam­an­ber danska mód­elið.“

Í mál­efna­skrá flokks­ins segir að eitt flókn­asta við­fangs­efni íslenskra stjórn­mála síð­ustu ára­tugi hafi verið sú stað­reynd að börn þurfi oft að bíða óhóf­lega lengi eftir grein­ingu eða þjón­ustu vegna mögu­legs vanda.

Framsókn seg­ist ætla að stytta biðlista eftir grein­ing­ar­úr­ræðum með því að fjölga sér­hæfðu starfs­fólki og grípa fyrr inn í aðstæður barna.

Sextíu þúsund úr ríkissjóði til allra barna

Framsókn seg­ist vilja koma á rík­is­styrkjum vegna frí­stunda barna og viðrar hug­mynd um 60 þús­und króna greiðslu á ári, til allra barna, en flest sveit­ar­fé­lög lands­ins nið­ur­greiða í dag tóm­stundir barna að ein­hverju marki.

[adspot]

Hvað íþrótta­starf varðar seg­ist flokk­ur­inn einnig vilja byggja nýja þjóð­ar­leik­vanga í sam­starfi við íþrótta­hreyf­ing­una, styðja betur við afrek­s­í­þrótta­fólk með auknum fjár­fram­lögum til afreks­sjóðs sér­sam­banda, auka fram­lög í ferða­jöfn­un­ar­sjóð íþrótta­fé­laga og styðja sér­stak­lega við íþrótta­fé­lög sem starf­rækja meist­ara­flokka kvenna, til að jafna fjár­hags­legan mun á milli karla- og kvenna­deilda í afreks­starfi í hóp­í­þróttum.

Hlutdeildarlán fyrir eldra fólk

Í mál­efnum eldra fólks seg­ist Framsókn vilja afnema reglur um að fólk fari á eft­ir­laun eða hætti störfum við ákveð­inn aldur og gera stór­á­tak í upp­bygg­ingu heima­hjúkr­unar og dag­þjálf­un­ar­rýma.

Flokk­ur­inn seg­ist leggja áherslu á að „almenna frí­tekju­markið hækki í skrefum og að líf­eyr­is­skerð­ingar vegna atvinnu­tekna verði afnumdar.“

Þá seg­ist flokk­ur­inn vilja mæta þeim verst stöddu í hópi eldri borg­ara og horfa sér­stak­lega til hús­næð­is­mála. Framsókn segir að skoða þurfi mögu­leik­ann á hlut­deild­ar­lánum fyrir eldra fólk, en hlut­deild­ar­lánin eru úrræði sem felur í sér að ríkið ger­ist í raun með­fjár­festir þeirra sem eru að koma inn á eign­ar­markað á íbúða­mark­aði og hefur hingað til ein­ungis beinst að tekju­lágum fyrstu kaup­endum.

Í hús­næð­is­málum seg­ist flokk­ur­inn vilja færa skipu­lags- og hús­næð­is­mál inn í sama ráðu­neyti til að „auka skil­virkni þegar kemur að skipu­lags­málum sveit­ar­fé­laga“.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja auka fram­boð af almennum íbúðum fyrir öryrkja og fatl­aða og sem áður segir, útfæra hlut­deild­ar­lán fyrir fleiri en bara fyrstu kaup­endur. „Þá er sér­stak­lega horft til eldra fólks og félags­lega veikra hópa í sam­fé­lag­inu,“ segir í kosn­inga­stefn­unni.

Vilja tryggja innflytjendum tækifæri til að læra íslensku

Í mennta­málum seg­ist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn meðal ann­ars vilja auka vægi iðn- og tækni­mennt­unar og tryggja aukið jafn­ræði bók- og verk­náms. Þá seg­ist flokk­ur­inn, sem hefur farið með mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið á kjör­tíma­bil­inu, ætla að sýna lestr­ar­vanda drengja sér­staka athygli og „styðja kröft­ug­lega við íslenska tungu í sífellt alþjóð­legri og staf­rænni heimi.“

Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja tryggja öllum sem eru af „erlendu bergi brotnir“ hér á landi tæki­færi til þess að læra íslensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár