Vaxtabætur halda áfram að lækka og sífellt færri fá þær

Á örfáum árum hefur fjöldi þeirra fjöl­skyldna sem fær vaxta­bætur helm­ing­ast og upp­hæði sem rík­is­sjóður greiðir vegna þeirra dreg­ist saman um millj­arða. Þetta er vegna betri eig­in­fjár­stöðu. En hærra eign­ar­verð leiðir líka til hærri fast­eigna­gjalda.

Vaxtabótakerfið var einu sinni stórt millifærslukerfi. Þannig er það ekki lengur.
Vaxta­bóta­kerfið var einu sinni stórt milli­færslu­kerfi. Þannig er það ekki lengur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Almennar vaxta­bætur vegna vaxta­gjalda af lánum til kaupa á íbúð­ar­hús­næði, sem ein­stak­lingar greiddu af á árinu 2019, námu 2,6 millj­örðum króna í fyrra og runnu til rúm­lega 15 þús­und manns. Heild­ar­upp­hæðin dróst saman um 5,8 pró­sent milli ára og 9,7 pró­sent færri ein­stak­lingar fengu vaxta­bætur í fyrra en árið áður. Þessi þróun átti sér stað þrátt fyrir að bæði fjár­hæðir hámarks­vaxta­gjalda og vaxta­bóta hafi verið hækk­aðar um fimm pró­sent í fyrra og að eign­ar­mörk bót­anna hafi verið hækkuð um tíu pró­sent.

Þetta kemur fram í umfjöllun á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga í fyrra. Þar segir að lækkun vaxta­bóta skýrist nú „eins og fyrri ár skýrist fyrst og fremst af betri eig­in­fjár­stöðu heim­ila[...]Nýting iðgjalda af sér­eign­ar­sparn­aði til greiðslu íbúð­ar­skulda skiptir þar máli og sömu­leiðis lækkun vaxta og auknar tekjur og þar með lækk­andi vaxta­byrði.“

Verð á hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rúm­lega tvö­fald­ast á innan við ára­tug. Uppi­staðan í eignum þorra lands­manna eru fast­eignir sem þeir búa í, en heild­ar­virði fast­eigna heim­il­anna var alls 5.351 millj­arðar króna í lok síð­asta árs, sem þýðir að 75 pró­sent af eignum heim­il­anna eru bundnar í slíkum eignum. Virði fast­eigna heim­il­anna hækk­aði um 9,4 pró­sent milli áranna 2018 og 2019. Skuldir þeirra eru langt undir eign­unum, eða 2.175 millj­arðar króna, og þær hækk­uðu hlut­falls­lega hægar en virði eign­anna, eða um 7,9 pró­sent á árinu 2019. Skuldir vegna íbúð­ar­kaupa hækk­uðu þó um tíu pró­sent milli ára.

Hærra eignarverð þýðir hærri fasteignagjöld

Á sama tíma og ofan­greint hefur átt sér stað hefur kostn­aður fast­eigna­eig­enda vegna fast­eigna­gjalda sem sveit­ar­fé­lög inn­heimta stór­auk­ist.

Kjarninn greindi til dæmis frá því í maí að Reykja­vík­ur­borg inn­heimti alls 21,1 millj­arð króna í fast­eigna­skatta á árinu 2019. Það var 2,9 millj­örðum krónum meira en borgin inn­heimti í slíka skatta árið áður og 5,9 millj­örðum krónum meira en árið 2017, þegar tekjur hennar vegna þeirra námu námu 15,1 millj­arði króna.

Þessi þróun átti sér stað þrátt fyrir að fast­eigna­skattar hafi verið lækk­aðir árið 2018. Ástæðan er ein­fald­lega sú að fast­eigna­verð í höf­uð­borg­inni hefur hækkað mikið og þar sem álagn­ingin er hlut­fall af fast­eigna­mati þá fjölgar krón­unum sem fast­eigna­eig­endur í Reykja­vík borga þrátt fyrir að skatt­pró­sentan hafi lækk­að.

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar af fast­eigna­sköttum voru þannig 11,6 millj­arðar króna árið 2013 og hafa því hækkað um 82 pró­sent frá því ári. Frá árs­byrjun 2013 og út síð­asta ár hækk­aði hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 81 pró­sent.

Helmingur þeirra sem fengu vaxtabætur 2016 fékk þær í fyrra

Þeim sem fá vaxta­bætur hefur fækkað hratt und­an­farin ár. Árið 2010 fengu til að mynda alls 56.600 fjöl­skyldur slíkar bætur og heild­ar­um­fang þeirra var 12 millj­arðar króna, eða næstum fimm sinnum meira en greitt var út í fyrra. Vert er þó að taka fram að 2010 var verið að greiða sér­staka vaxta­nið­ur­greiðslu sem var 0,6 pró­sent af skuldum íbúð­ar­hús­næðis til eigin nota, en þó að hámarki 200 þús­und krónur fyrir ein­stak­linga og 300 þús­und fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk. Þetta var gert vegna sér­stakra aðstæðna í kjöl­far hruns­ins.

Vegna áranna 2011 og 2012 voru greiddar út almennar vaxta­bætur upp á 8,6-8,7 millj­arða króna árlega og 45-46 þús­und fjöl­skyldur fengu slíkar bæt­ur. Vegna árs­ins 2013 voru almennar vaxta­bætur um átta millj­arðar króna og þiggj­endur þeirra tæp­lega 42 þús­und fjöl­skyld­ur.

Vegna árs­ins 2014 voru greiddar úr vaxta­bætur upp á sjö millj­arða króna til 38 þús­und fjöl­skyldna. Ári síðar voru almennar vaxta­bætur 5,2 millj­arðar króna og þiggj­endur þeirra 29.170 fjöl­skyld­ur. Þeim fækk­aði um heil 21,3 pró­sent milli áranna 2014 og 2015.

Árið 2016 fengu 29.170 fjöl­skyldur vaxta­bætur og fækk­aði þá um 21,3 pró­sent milli ára.

Vegna árs­ins 2019 námu greiðsl­urnar, líkt og áður sagði, 2,6 millj­örðum króna og fóru til rétt rúm­lega 15 þús­und manns. Fjöldi þeirra fjöl­skyldna sem fær vaxta­bætur hefur því helm­ing­ast frá árinu 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár