Hundasveitin: Í leit að besta vininum

Hunda­sam­fé­lagið er sam­fé­lag þar sem hunda­eig­endur geta meðal ann­ars deilt sögum og ráðum og á meðal ann­arra verk­efna er að aug­lýsa eftir týndum hundum, skipu­leggja leitir og hjálp­ast að við að finna nýtt heim­ili fyrir hunda sem koma úr slæmum aðstæðum. Hópur kvenna í Hunda­sam­fé­lag­inu vinnur í sjálf­boða­vinnu við að skipu­leggja leit að týndum hundum, og stundum köttum og fleiri dýra­teg­undum, en tugir manna taka svo þátt í leit­inni sjálfri. Þessi hópur kall­ast Hunda­sveitin. Stundin ræddi við nokkrar af kon­unum sem skipu­leggja leit­ar­starfið.

Berglind Guð­brands­dóttir stofn­aði Hunda­sam­fé­lagið sem Facebook-hóp sum­arið 2013 til að hunda­eig­endur gætu deilt sögum og ráðum. Sama ár bað hún Guðfinnu Krist­ins­dóttur um að vera með­stjórn­andi þegar með­limir voru orðnir um 2.000. Guðfinna hefur síðan verið virk í sam­fé­lag­inu, svo sem við að skipu­leggja leit að týndum hundum.

Guðfinna á í dag Dandie Dinmont Terrier-hund­inn Watson sem hún segir að sé mjög blíður og góður. „Hann hefur hjálpað þó nokkrum hundum sem eru hræddir við aðra hunda við að fá sjálfs­traust aftur. Hann er góður í merkja­máli, sem er eins konar tungu­mál hunda, og þykir ofboðs­lega gaman að fara til dýra­lækn­is­ins. Það er mjög algengt að hann neiti að fara út af dýra­spít­al­anum og legg­ist niður þannig að ég hef þurft að halda á honum út í bíl.“

Guðfinna seg­ist hafa gengið til liðs við Hunda­sveit­ina á sínum tíma vegna þess að hún á vini sem hafa týnt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár