Leggja til að skattgreiðendur niðurgreiði lán til svína- og kjúklingabænda

Starfs­hópur skip­aður af land­bún­að­ar­ráð­herra leggur til að Byggð­ar­stofnun tryggi svína- og ali­fugla­bændum lægri vaxta­kjör. Atvinnu­vega­nefnd hefur gert til­lögur hóps­ins að sínum. Þær eru við­bragð við tolla­samn­ingi Íslands og ESB.

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar leggur til að stofn­aður verði nýr lána­flokkur hjá Byggða­stofnun fyrir svína- og ali­fugla­bændur með lægri vaxta­kjör en á öðrum lánum sem þessar greinar hefðu aðganga að til að mæta nýjum aðbún­að­ar­reglum. Það myndi þýða að Byggða­stofnun, sem rekin er með rík­is­á­byrgð, ætti að nið­ur­greiða lán til svína- og ali­fugla­bænda. Þá er lagt til að heim­ilað verði að nýta fjár­muni til úreld­ingar sem ætl­aðir eru til fjár­fest­ingar hjá svína­bændum og að leitað verði leita til að and­virði tekna af útboði toll­kvóta fyrir hvítt kjöt verði ráð­stafað til fjár­fest­inga og stuðn­ings við svína- og ali­fugla­bændur til að upp­fylla kröfur vegna nýrra aðbún­að­ar­reglu­gerða.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að nefnd­ar­á­liti meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um búvöru­samn­ings­frum­varpið sem Kjarninn hefur undir höndum.

Lagt til að tillögunum verði mætt

Um er að ræða til­lögur sem starfs­hópur, skip­aður af land­bún­að­ar­ráð­herra í apríl til að fjalla um við­brögð við tolla­samn­ingi Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins, lagði fram og meiri­hlut­inn gerir að sínum. Í starfs­hópnum sátu full­trúar ráðu­neyta, full­trúar land­bún­að­ar­ins og full­trúar frá Samtökum iðn­að­ar­ins. Engir full­trúar neyt­enda að ann­arra hags­muna­að­ila sátu í starfs­hópnum. Starfs­hóp­ur­inn tók til starfa dag­inn eftir að Gunnar Bragi Sveins­son tók við emb­ætti land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þann 8. apríl 2016.

Tillögur starfshópsins eru eftirfarandi:

· Að skorti á til­teknum skrokk­hlutum verði beint inn í toll­kvóta með því að afmarka hluta ESB toll­kvót­ans fyrir þá vöru­flokka sem skortur er á.

· Að við útreikn­ing á magni toll­kvóta við inn­flutn­ing verði miðað við ígildi kjöts með beini, í sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar.

· Að toll­kvótum verði úthlutað oftar á árinu, allt að fjórum sinnum í stað einu sinni, til þess að við­halda jafn­ara flæði inn á íslenskan markað.

· Stjórn­völd leiti allra leiða til að setja frek­ari reglur um fyr­ir­komu­lag inn­flutn­ings, m.t.t. gæða­krafna, einkum og sér í lagi að því er snertir lyfja­notkun og heil­brigðis­kröfur til afurða.

· Stjórn­völd skipi starfs­hóp sem verði falin grein­ing á stöðu íslensks land­bún­aðar gagn­vart mögu­legum breyt­ingum í alþjóð­legu við­skiptaum­hverfi. Sérstöku fjár­magni verði veitt í slíka grein­ing­ar­vinnu.

· Að heim­ilað verði að nýta fjár­muni til úreld­ingar sem ætl­aðir eru til fjár­fest­ingar hjá svína­bændum.

· Að leitað verði leiða til að and­virði tekna af útboði toll­kvóta fyrir hvítt kjöt verði ráð­stafað til fjár­fest­inga og stuðn­ings við svína- og ali­fugla­bændur til að upp­fylla kröfur vegna nýrra aðbún­að­ar­reglu­gerða.

· Að stofn­aður verði nýr lána­flokkur hjá Byggða­stofnun fyrir svína- og ali­fugla­bændur með lægri vaxta­kjör en á öðrum lánum sem þessar greinar hefðu aðgang að til að mæta nýjum aðbún­að­ar­reglu­gerðum.

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar beinir því til land­bún­að­ar­ráð­herra, að leitað verði leiða til að mæta til­lög­unum.

Ávinningur tekin aftur

Félag Atvinnu­rek­enda gagn­rýnir til­lög­urnar harð­lega í frétt sem hefur verið birt á heima­síðu þess. Þar er haft eftir Ólafi Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóra félags­ins, að meiri­hluti nefnd­ar­innar sé að gera að sínum tillgöur starfs­hóps sem hafi verið samdar án nokk­urrar aðkomu neyt­enda eða inn­flytj­enda búvöru. „Það þarf ekki að koma á óvart, miðað við að hóp­ur­inn var ein­göngu skip­aður full­trúum rík­is­ins og inn­lendra fram­leið­enda, að til­lög­urnar ganga að hluta til út á að hafa aftur af neyt­endum þann ávinn­ing í formi fjöl­breytt­ara úrvals og lægra vöru­verðs, sem samn­ing­ur­inn við ESB átti að færa þeim.“

Ólafur full­yrðir að til­lög­urnar séu neyt­enda­fjand­sam­legar og efast um að þær stand­ist samn­ing­inn sem gerður var við Evr­ópu­sam­bandið. „„Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar láti það standa í nefnd­ar­á­liti að hann geri þessar til­lögur að sínum, ef ætl­unin er að skapa hér ein­hverja sátt um land­bún­að­inn. Það er svo kald­hæðn­is­legt að nú stendur málið þannig að Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herr­ann sem gerði samn­ing­inn við ESB og stærði sig þá af því að hafa náð fram meira vöru­úr­vali og lægra verði fyrir neyt­endur, er kom­inn í stól land­bún­að­ar­ráð­herra og á sam­kvæmt drögum að áliti atvinnu­vega­nefndar að beita sér fyrir aðgerðum sem hafa aftur af neyt­endum þann rétt­mæta ávinn­ing. Þetta er fjar­stæðu­kennt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár