Endurkoma smurbrauðsins

Flestir Íslend­ingar kann­ast við danska smur­brauðið, smør­rebrød. Eftir að alls kyns skyndi­bitar komu til sög­unnar döl­uðu vin­sæld­irnar en nú nýtur smur­brauðið sívax­andi vin­sælda. Nýir staðir skjóta upp koll­inum og þeir gömlu upp­lifa sann­kall­aða end­ur­reisn.

Danska smurbrauðið nýtur nú aukinna vinsælda meðal matgæðinga í heimalandinu.
Danska smur­brauðið nýtur nú auk­inna vin­sælda meðal mat­gæð­inga í heima­land­inu. Mynd: Visit Copenhagen

Í dönsku orða­bók­inni er smør­rebrød útskýrt sem „sam­mentrækn­ing af smør og brød“. Í íslensku orða­bók­inni er útskýr­ingin á smur­brauði álíka ein­föld: brauð með áleggi. Íslend­ingar, að minnsta kosti margir hverjir, gera hins vegar grein­ar­mun á smurðu brauði og smur­brauði. Smurt brauð er brauð­sneið með ein­földu áleggi, til dæmis osti eða rúllupylsu. Smur­brauð er íburð­ar­meira, brauð­sneið með kjöti, eða rækjum, sem svo er skreytt með sal­ati, eggi svo eitt­hvað sé nefnt. Sem sé flott­ara. Danir nota orðið smør­rebrød um hvort tveggja.

Danir full­yrða að „smør­rebr­ødet“ sé ein­stakt og þekkt um allan heim. Eins­konar ein­kenn­is­tákn Dan­merkur, ásamt rauðu pyls­unum og fán­anum Dannebrog. Þeir telja að smur­brauðið, þar sem grunn­ur­inn er rúg­brauð, sé fram­lag Dan­merkur til mat­ar­gerð­ar­listar heims­ins.

[adspot]

Árið 2014 gekkst danska mat­væla­ráðu­neytið fyrir kosn­ingum. Þar átti að kjósa það sem kalla mætti „þjóð­ar­rét“ Dana. Úrslitin komu mörgum á óvart, steikt þykk­skorið flesk með stein­seljusósu (stegt flæsk með persil­lesovs) fékk flest atkvæði, smur­brauðið var númer tvö og hakk­buff (hakkebøf) númer þrjú. Í óform­legri könnun meðal erlendra ferða­manna komst fleskið ekki á blað, þar var smur­brauðið, pyls­urnar, pur­u­steikin og hakk­buffið það sem flestir nefndu.

Brauðbakstur á sér tugþúsunda ára sögu

Brauð er mik­il­væg grunn­fæða og eitt af elstu til­búnu mat­vælum í Evrópu. Fundist hafa yfir 30 þús­und ára gamlar leifar sterkju á steinum sem not­aðir hafa verið til að mala rætur plantna, sem síðan hafa verið not­aðar í bakstur, í þunnar kökur (eins­konar flat­brauð). Um 10 þús­und fyrir Krist, við upp­haf nýstein­aldar, varð korn und­ir­stöðu­efni í brauð­gerð­inni. Brauð kemur víða við sögu í bók­menntum og þar eru til dæmis ótal sögur af fólki sem hefur með sér nesti, lang oft­ast brauð, þegar lagt er af stað til vinnu. Brauð á sér sem sagt langa sögu og brauð­sneiðar með áleggi ekki sér­danskt fyr­ir­bæri.

Smørrebrød og højtbelagt smørrebrød

Um 1880 höfðu skotið upp koll­inum í Kaup­manna­höfn, og víðar í Danmörku, litlir veit­inga­staðir sem seldu smur­brauð. Til að auka fjöl­breytn­ina létu veit­inga­menn ekki nægja að smella einni rúllupylsu­sneið ofan á rúg­brauðið, og þá varð til þetta sem Danir kalla højt­belagt smør­rebrød, hátimbrað smur­brauð. Þá eru á brauð­sneið­inni fleiri en ein teg­und áleggs, þaðan kemur nafnið. Elsti mat­seð­ill, sem varð­veist hefur þar sem boðið er uppá højt­belagt er frá árinu 1883, frá veit­inga­staðnum Nimb við Tívolí.

Davidsen og langi matseðillinn

Einn þeirra sem átti stóran þátt í að gera það hátimbraða frægt um víða ver­öld var Oskar Davidsen. Hann hafði um ára­bil, ásamt konu sinni Petru, rekið vín­bar við Åboulevarden í Kaup­manna­höfn en fékk árið 1888 jafn­framt leyfi til að selja smur­brauð. Smur­brauðið naut strax mik­illa vin­sælda og hjónin ein­skorð­uðu úrvalið ekki við fáeinar teg­undir. Mat­seð­ill­inn, sem lengd­ist sífellt, er skráður í heims­meta­bók Guinness, hann var heilir 140 senti­metrar á lengd og smur­brauðs­teg­und­irnar 178 tals­ins.

Veit­inga­staður Davidsen fjöl­skyld­unnar hefur frá árinu 1974 verið rek­inn undir nafni Idu Davidsen, hún er af fjórðu kyn­slóð Davidsen fjöl­skyld­unnar. Á heima­síðu veit­inga­stað­ar­ins má lesa að hann sé nú lok­aður en verði opn­aður fljót­lega, eins og það er orðað, á nýjum stað og fimmta kyn­slóð Davidsen sé tekin við stjórn­inni.

Hefðbundið en lítil fjölbreytni

Fyrri hluti síð­ustu aldar var gullöld smur­brauðs­ins í Danmörku. Flestir þess­ara staða voru litlir og buðu flestir upp á það sama. Lifr­ar­kæfa, síld, pur­u­steik, reyktur lax, egg og rækjur, reyktur áll og rúllupylsa voru á mat­seðlum allra smur­brauðs­staða, en lítið um nýj­ungar. Sumir þess­ara staða höfðu sína sér­út­gáfur sem þeir aug­lýstu sem slíkar.

Pizzubyltingin

Uppúr 1960 fóru að verða breyt­ingar. Pizzurnar héldu inn­reið sína í Danmörku, eins og víðar, kín­verskir, franskir, víetnamskir og ind­verskir staðir spruttu upp. Smur­brauðið þótti smám saman gam­al­dags, eitt­hvað sem eldra fólk borð­aði (orða­lag blaða­manns) en unga fólkið snið­gekk. Pizzubyltingin var lýs­ing blaða­manns Politi­ken á þessum breyt­ingum. Alls kyns skyndi­bita­staðir skutu líka upp koll­inum, pylsusal­arnir urðu illi­lega fyrir barð­inu á þeirri nýj­ung og þeim hefur fækkað mjög mikið.

[adspot]

Þótt ýmsir lýstu áhyggjum yfir að þetta sér­danska, eins og kom­ist var að orði, væri í útrým­ing­ar­hættu breytti það litlu. Smur­brauð­sveit­inga­stöð­unum fækk­aði jafnt og þétt, og útlitið var ekki bjart. Sumir gömlu og rót­grónu stað­anna héldu velli, lifðu kannski að ein­hverju leyti á fornri frægð.

Nýjungar og endurnýjun lífdaganna

Um og uppúr síð­ustu alda­mótum fór að örla á breyt­ingum. Ferða­fólki sem lagði leið sína til Dan­merkur fór hratt fjölg­andi og áhugi fyrir því sem kall­ast mætti sér­kenni dansks þjóð­líf jókst. Eitt þess­ara sér­kenna er vita­skuld smur­brauðið. Í takt við tím­ann hefur smur­brauðið þó breyst, þótt pur­u­steikin og allt það gamla sé enn til staðar.

Einn þeirra sem danskir fjöl­miðlar nefna gjarna þegar rætt er um nýbylgj­una í smur­brauð­inu er mat­reiðslu­mað­ur­inn Adam Aamann. Hann opn­aði í des­em­ber árið 2006 lít­inn heim­töku­stað (take away) í Kaup­manna­höfn. Hjá Aamann var allt heima­gert, brauð og álegg. Jafn­framt því að bjóða upp á „hefð­bundið“ smur­brauð gátu við­skipta­vinir valið alls kyns græn­meti og ávexti sem álegg á smur­brauðið. Skemmst er frá því að segja að þessi nýbreytni mælt­ist vel fyrir og Adam Aamann rekur nú fleiri veit­inga­staði í Kaup­manna­höfn. Fleiri fylgdu í kjöl­farið og „gömlu“ stað­irnir breyttu sínum áherslum, leggja nú aukna áherslu á „líf­rænt“.

Søren Frank, matar- og vín­sér­fræð­ingur dag­blaðs­ins Berl­ingske hefur und­an­farið skrifað tals­vert um það sem hann kallar upp­risu smur­brauðs­ins. Hann fagnar því að smur­brauðið, bæði hið hefð­bundna og nýj­ung­arnar, njóti vax­andi vin­sælda. „Ég var smeykur um að smur­brauðs­stað­irnir myndu smám saman hverfa en sem betur fer lifa þeir nú góðu lífi og fer fjölg­andi.“

Í lokin má nefna að fyrir ára­tugum voru starf­ræktar að minnsta kosti tvær smur­brauðs­stofur í Reykja­vík. Starf­semi þeirra leið undir lok en fyrir 25 árum var opn­aður veit­inga­staður í Reykja­vík, Jómfrúin, sem býður gestum sínum ekta danskt smur­brauð. Stofn­and­inn, Jakob Jak­obs­son er sagður fyrsti karl­maður í heim­inum til að útskrif­ast sem smør­rebr­ød­sjom­fru, hann lærði hjá fyrr­nefndri Idu Davidsen. Fleiri staðir sem selja smur­brauð hafa fylgt í kjöl­farið.

Loks má geta þess að nokkrar íslenskar mat­vöru­versl­anir bjóða nú uppá smur­brauð, til að taka með heim. Þar eru þó ekki 178 teg­undir í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár