Telur LÍN frumvarpið ekki í hópi mála sem hægt sé að afgreiða fyrir kosningar

Svandís Svav­ars­dóttir segir frum­varp Illuga Gunn­ars­son ekki í hópi sam­stöðu­mála sem hægt verði að ljúka fyrir þing­kosn­ingar. Frum­varpið hefur hlotið tals­verða gagn­rýni og er sagt skerða jafn­rétti til náms.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, segir frum­varp mennta­mála­ráð­herra um Lánasjóð íslenskra náms­manna ekki í hópi sam­stöðu­mála sem hægt sé að ljúka á Alþingi fyrir kosn­ingar. Hún segir frum­varpið aðför að jafn­rétti til náms. Tekju­lágt fólk muni lenda í vand­ræðum þegar afborg­anir eru ekki lengur tekju­tengdar og að sú breyt­ing að aðeins verði lánað til sjö ára muni fyrst og fremst hafa áhrif á stöðu barna­fólks, tekju­lágra og þeirra sem hyggja á langt háskóla­náms. „Rík­is­stjórnin er rúin trausti, kosn­ingar á næsta leiti, mennta­mála­ráð­herr­ann á leið út úr stjórn­málum og ljóst að umboðið til þess að takast á hendur svo stór­tækar breyt­ingar er ekki fyrir hendi. Það er raunar umhugs­un­ar­efni að í slíku grund­vall­ar­máli skuli ráð­herr­ann ekki byggja á breiðu sam­ráði,“ segir Svandís í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag.

Fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum

Svandís er ekki sú fyrsta sem gerir alvar­legar athyga­semdir við náms­lána­frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar. Bandalag háskóla­manna sendi mennta­mála­ráðu­neyt­inu athuga­semdir við frum­varpið og lýsti þungum áhyggjum af greiðslu­byrði lán­tak­enda sem til­heyra lág­launa­stéttum háskóla­mennt­aðra og hópum sem standa félags­lega veikt að vígi. Fyr­ir­komu­lagið geri það einnig að verkum að fjöl­skyldu­fólk og ein­stæðir for­eldrar muni skulda almennt meiri náms­lán að loknu námi en þeir sem ein­stæðir eru. 

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, og Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands, hafa sömu­leiðis sagt frum­varpið skerða jafn­rétti til náms. Jóhann Gunnar Þór­ar­ins­son, for­maður Samtaka íslenskra náms­manna erlendis, SÍNE, hefur einnig sagt að ekk­ert sam­ráð hafi verið við sam­tökin við gerð frum­varps­ins. 

Samkvæmt frum­varp­inu verður stjórn Lána­sjóðs íslenskra náms­manna heim­ilað að útvista dag­legum rekstri sjóðs­ins til einka­fyr­ir­tækis. Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata, spurði meðal ann­ars hvort breyt­ing­arnar væru liður í einka­væð­ing­ar­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. 

„Búið er að flýta kosn­ingum og sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er að mestu lokið.“

„Allt frá afhjúpun Panama-skjal­anna og þeim degi þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann sagði af sér hefur öll vinna Alþingis miðað að sam­stöðu um flókin mál og þar hafa margir lagt mikla vinnu af mörkum,“ skrifar Svandís. „Ný útlend­inga­lög, breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu, breyt­ing á greiðslu­þátt­töku sjúk­linga, nýtt milli­dóms­stig og mál um losun hafta hafa öll verið unnin og leyst með þeim hætti. Búið er að flýta kosn­ingum og sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er að mestu lokið. Sam­stöðu­mál eru einu málin sem eiga að geta gengið fram undir slíkum kring­um­stæðum. Allir sjá að nýtt mál mennta­mála­ráð­herra um náms­lán og náms­styrki fellur ekki í þann hóp.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár