„Engin áform“ um að ríkið auki rekstrarframlög með tilkomu Borgarlínu

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra seg­ist ekki sjá fyrir sér að ríkið auki fram­lög sín til rekstrar almenn­ings­sam­gangna höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, eins og sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Strætó bs. hafa kallað eftir.

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra segir við Kjarnann að hann sjái ekki fyrir sér að ríkið komi til með að auka neitt við það fjár­magn sem renni til rekstrar almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­fara því að nýtt kerfi hágæða almenn­ings­sam­gangna, Borg­ar­lína, verður tekið í notkun.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var ekki jafn afdrátt­ar­laus í sam­tali við Kjarnann um þetta efni eftir blaða­manna­fund rík­is­stjórn­ar­innar í gær, en segir þó að ábyrgðin á almenn­ings­sam­göngu­kerf­inu og ákvarð­ana­taka um hvernig kerfið eigi að vera verði að fara saman.

Sveitarfélögin ýta á eftir samtali um málið

Kallað hefur verið eftir því af hálfu Sambands sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Strætó bs. að ríkið styðji við yfir­lýst mark­mið sín um breyttar ferða­venjur með mjög auknum fram­lögum til almenn­ings­sam­gangna, til dæmis í sumar í umsögnum við drög að Grænbók um sam­göngu­mál, sem fjallað var um í Kjarn­anum.[links]

Í umsögn SSH sagði fram­kvæmda­stjór­inn Páll Björgvin Guð­munds­son að sam­tökin hefðu verið að reka á eftir því við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið, sem Sigurður Ingi stýrði þá og stýrir enn, að vinna hæf­ist við að festa í sessi skuld­bind­ingar ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna þeirra rekstr­ar­þátta sem falla undir sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar með talið almenn­ings­sam­gangna.

Þessari vinnu átti að vera lokið fyrir lok árs 2020, en sam­talið hefur ekki enn farið af stað nú þegar hyllir undir árs­lok 2021.

Milljarður á ári til 2033 og sér það ekki breytast

Sigurður Ingi var nokkuð afdrátt­ar­laus í sam­tali við Kjarnann í gær um að það kæmi ekki til greina að hans hálfu að ríkið færi að leggja fram meira fé en það gerir nú þegar inn í rekstur almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, jafn­vel eftir að Borg­ar­línan fer að aka um göt­urnar og nýtt leiða­net Strætó tekur gildi.

[adspot]

Þessi bætta þjón­usta með tíð­ari ferðum og fleiri vögnum á göt­unum mun að sjálf­sögðu kosta meira og hefur talan tveir millj­arðar á ári í auk­inn grunn­rekstr­ar­kostnað hefur verið nefnd í því sam­hengi.

„Við höfum alla tíð sagt: Við erum til­búin að taka þátt í þessum stofn­kostn­aði, en rekst­ur­inn er hjá sveit­ar­fé­lög­unum. Það eru engin áform uppi um breyt­ingar í þá veru. Við erum í dag að greiða millj­arð inn í almenn­ings­sam­göngu­kerfið og áætlum að gera það áfram til árs­ins 2033 sam­kvæmt sam­þykkri sam­göngu­á­ætlun.

Þannig að þú sérð ekki fyrir þér að það breyt­ist?

„Nei, ég sé það ekki fyrir mér. Ein­hvers­staðar verða að vera hreinar línur á milli þess hvað þessi gerir og hinn gerir, en ekki fjölga gráu svæð­unum. Sveit­ar­fé­lögin eru venju­lega að kalla eftir því að þeim sé fækkað,“ sagði Sigurður Ingi.

Ábyrgð og ákvarðanir þurfi að fara saman

Bjarni Bene­dikts­son segir að í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé fjallað um að „þetta sam­tal muni eiga sér stað“ á milli rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„En það getur nátt­úr­lega ekki verið þannig að sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem eru að reka kerfið taki ákvörðun um umfangið og þar með talið þá halla­rekst­ur­inn og snúi sér svo við og segi: „Ríkið hlýtur að létta þess­ari byrði af okkur.“

„Þetta er áskor­unin í þessu, að það fari saman ábyrgðin á kerf­inu og ákvarð­ana­taka um það hvernig kerfið eigi að vera. En höf­uð­borg­ar­sátt­mál­inn ber það mjög vel með sér að við viljum nútíma­væða sam­göng­urnar og ég held að við eigum mikið undir því að það tak­ist vel til og það geti aukið mjög lífs­gæðin hérna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár