Telja nauðsynlegt að ríkið auki framlög til reksturs almenningssamgangna

Bæði Strætó og Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu koma því á fram­færi í umsögnum við drög að Grænbók um sam­göngu­mál að ríkið þurfi að koma að rekstri almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu af auknum krafti.

Fram kemur í umsögn SSH um málið að samtökin hafi rekið á eftir því við ráðuneytið að hefja vinnu um hvernig ríkið og sveitarfélögin ætli að fjármagna rekstur almenningssamgangna til framtíðar.
Fram kemur í umsögn SSH um málið að sam­tökin hafi rekið á eftir því við ráðu­neytið að hefja vinnu um hvernig ríkið og sveit­ar­fé­lögin ætli að fjár­magna rekstur almenn­ings­sam­gangna til fram­tíðar. Mynd: Bára Huld Beck

Ríkið þarf að taka á sig veiga­meira hlut­verk við fjár­mögnun rekst­urs almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ef mark­mið stjórn­valda um breyttar ferða­venjur eiga að nást. Þetta kemur fram í umsögnum bæði Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) og Strætó bs. við drög að Grænbók um sam­göngu­mál, sem hafa verið til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í sumar.

Græn­bókin er liður í stefnu­mótun rík­is­ins í sam­göngu­málum og í henni kort­leggur ráðu­neyti sam­göngu­mála stöðu mála eins og hún blasir við því í dag og leggur fyrir sam­ráðs­að­ila.

Í umsögn SSH segir að sam­tökin hafi rekið eftir því við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið að hefja vinnu við það að festa í sessi skuld­bind­ingar ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna rekstr­ar­þátta þeirra sam­göngu­inn­viða sem falla undir sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins frá 2019; stofn­vega, stofn­stíga og almenn­ings­sam­gangna.

Í umsögn­inni, sem Páll Björgvin Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri SSH und­ir­ritar, segir að mik­il­vægt sé að ljúka þess­ari umræðu um sam­komu­lag á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um rekstur almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem hafi átt að vera lokið fyrir lok árs 2020.

„Ef mark­mið rík­is­ins um breyttar ferða­venjur eiga að ná fram að ganga þá verður ríkið að koma að rekstri almenn­ings­sam­gangna og rekstri hjóla- og göngu­stíga,“ segir í umsögn­inni frá SSH, en ljóst er að með til­komu Borg­ar­línu og nýs leiða­nets Strætó mun grunn­kostn­að­ur­inn við rekstur stræt­is­vagna­kerfis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu aukast.

Talan tveir millj­arðar á ári í auk­inn rekstr­ar­kostnað hefur verið nefnd í því sam­hengi.

Til að setja þá tölu í sam­hengi við rekstr­ar­kostnað almenn­ings­sam­gangna í dag var fyrr á þessu ári áætlað að sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem eiga Strætó settu 4,33 millj­arða króna inn í rekst­ur­inn á þessu ári og til við­bótar er gert ráð fyrir 900 millj­óna króna fram­lagi úr rík­is­sjóði.

Á móti var áætlað að far­þega­tekjur næmu 1,67 millj­örðum og auk þess var áætlað að Strætó fengi rösk­lega 1,6 millj­arða króna í tekjur fyrir að sinna akst­urs­þjón­ustu fatl­aðra.

[adspot]

Sam­göngu­sér­fræð­ingar hjá Strætó, sem rita umsögn fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins í sam­ráðs­gátt­ina, segja nauð­syn­legt að ríkið „stór­auki“ fram­lag sitt til rekst­urs almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, svo hægt verði að tryggja að mark­mið um bættar almenn­ings­sam­göngur og breyttar og umhverf­is­vænar ferða­venjur náist.

Of mikil áhersla á almenningssamgöngur landsbyggðar

Í umsögn þeirra segir einnig að mik­il­vægt sé að ríkið styðji vel við almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem þéttasta byggðin með stærstu byggða­kjarn­anna sé og þar með mesta þörfin fyrir almenn­ings­sam­göngur til dags dag­legrar notk­unar.

Þar segir einnig að bæði Grænbók, og reyndar sam­göngu­á­ætlun líka, leggi að mati Strætó „of mikla áherslu á lands­byggð­ina“ er komi að almenn­ings­sam­göngum.

„Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru mestu mögu­leik­arnir til að sporna gegn loft­lags­vánni og auka þjóð­fé­lags­lega hag­kvæmni sam­gangna með auk­inni þjón­ustu almenn­ings­sam­gangna, þar sem lang­mestur fjöldi íbúa lands­ins býr í byggða­kjörnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða um 65%. Ef horft er til byggða­kjarna sem eru innan vinnu­sókn­ar­svæðis höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins búa tæp­lega 80% lands­manna á því svæði. Það gefur auga leið að áherslan ætti að vera mest á þetta svæði til að sporna gegn loft­lags­vánni og auka þjóð­hags­lega hag­kvæmni hvað varðar almenn­ings­sam­göngur. Það að fleiri ferð­ist saman, á vist­vænum orku­gjöfum dregur úr mengun og eykur umferð­ar­ör­yggi og skil­virkni vega­kerf­is­ins,“ segir í umsögn Strætó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár