Skoðunarmenn lýsa yfir áhyggjum af kostnaðarsömum rekstri Pírata

Í árs­reikn­ingi Pírata kemur fram að flokk­ur­inn eyddi um 96 pró­sent tekna sinna í rekstur í fyrra, en lagði lítið fyrir í kosn­inga­bar­áttu­sjóð. Hinir flokk­arnir sjö á þingi lögðu allir meira til hliðar og flestir tugi millj­óna króna.

Þingflokkur Pírata.
Þing­flokkur Pírata. Mynd: Aðsend mynd

Píratar högn­uð­ust um 2,6 millj­ónir króna á síð­asta ári. Tekjur flokks­ins, sem eru nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóðum, voru 86 millj­ónir króna. Mest mun­aði um fram­lög úr rík­is­sjóði til flokks­ins sem námu tæpum 83 millj­ónum króna.

Rekstr­ar­kostn­aður Pírata var 82 millj­ónir króna. Þar af kost­aði rekstur aðal­skrif­stofu 65 millj­ónir króna og rekstur þing­flokks Pírata 15,1 milljón króna. Það þýðir að 95,5 pró­sent af tekjum Pírata fór í rekstr­ar­kostnað á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Pírata sem birtur var á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir helgi. Reikn­ingnum átti að skila fyrir 1. nóv­em­ber og tæpur mán­uður er síðan að árs­reikn­ingar sex af þeim átta stjórn­mála­flokkur sem sæti eiga á Alþingi voru birtir á vef stofn­un­ar­innar. Reikn­ingur Flokks fólks­ins var svo birtur 7. des­em­ber.

Í áritun skoð­una­manna árs­reikn­ings Pírata segir að án þess að gera fyr­ir­vara við reikn­ing­inn vilji þeir vekja athygli á að það vanti „reikn­inga sam­tals að fjár­hæð 1.300.000 að baki bók­færðum útgjöldum. Þó flestar fjár­hæð­irnar séu mjög lágar og ljóst sé af öðrum gögnum hvað stendur að baki, þá viljum vil láta í ljós álit okkar að leggja þurfi á herslu á að tryggja það, að reikn­ingar séu að baki öllum bók­færðum útgjöldum.“

Reksturinn „heldur kostnaðarsamur“

Skoð­ana­menn­irnir, sem eru tveir, láta einnig í ljós það álit sitt að þeim þyki „rekstur Pírata hafa verið heldur kostn­að­ar­samur eigi það mark­mið að nást að flokk­ur­inn eigi nægi­legan sjóð til þess að standa straum af kosn­inga­bar­áttu á kom­andi ári.“

Enginn hinna stjórn­mála­flokk­anna kemst nálægt því að eyða hlut­falls­lega jafn miklu af tekjum sínum í rekstr­ar­kostnað og Píratar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins, eyddi til að mynda 73 pró­sent af tekjum sínum í rekstr­ar­gjöld í fyrra og skil­aði 67 milljón króna hagn­aði í fyrra. Þess má þó geta að tekjur hans voru mun meiri en Pírata, og allra ann­arra flokka, en alls námu þær 344,2 millj­ónum króna í fyrra.

[adspot]Vinstri græn högn­uð­ust um 38,4 millj­ónir króna í fyrra og rekstr­ar­kostn­aður þess flokks var 75 pró­sent af tekjum. Framsókn hagn­að­ist um 36,9 millj­ónir króna og rekstr­ar­kostn­að­ur­inn var um 65 pró­sent af tekjum. Hjá Mið­flokknum var rekstr­ar­kostn­að­ur­inn rúm­lega 44 pró­sent af tekjum og hagn­aður árs­ins tæp­lega 67 millj­ónir króna.

Sam­fylk­ingin eyddi helm­ingi allra tekna í rekstur og skil­aði 71,5 milljón króna hagn­aði á síð­asta ári. Viðreisn eyddi 67 pró­sent sinna tekna í rekstur og lagði til hliðar 23,8 millj­ónir króna hagnað, sem mun nýt­ast í kom­andi kosn­inga­bar­áttu.

Flokkur fólksins eyddi þriðjungi tekna í rekstur

Sá flokkur sem er að eyða hlut­falls­lega lang minnstu í rekstur er þó Flokkur fólks­ins. Hann hagn­að­ist um tæp­lega 43 millj­ónir króna á árinu 2019. Tekjur flokks­ins komu nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóð­um. Alls nam fjár­fram­lag úr rík­is­sjóði 62,2 millj­ónum króna og fjár­fram­lag frá Reykja­vík­ur­borg var tæp­lega 1,1 milljón krón­ur. Einu öðru tekj­urnar sem Flokkur fólks­ins hafði á árinu 2019 voru félags­gjöld upp á 295 þús­und krón­ur.

[links]Kostn­að­ur­inn við rekstur flokks­ins, sem er með tvo þing­menn á þingi og einn full­trúa í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, er ein­ungis brot af tekjum hans. Í fyrra kost­aði rekst­ur­inn alls 22,1 milljón króna og því sat meg­in­þorri þeirrar fjár­hæðar sem Flokkur fólks­ins fékk úr rík­is­sjóði eftir á banka­reikn­ingi hans í árs­lok. Alls eyddi Flokkur fólks­ins því um 35 pró­sent af tekjum sínum í rekstur í fyrra, en lagði afgang­inn til hliðar til. Svipað var uppi á ten­ingnum árið 2018 þegar hagn­aður Flokks fólks­ins var 27 millj­ónir króna.

Því átti flokk­ur­inn 65,6 millj­ónir króna í hand­bært fé í lok síð­asta árs og búast má við að nokkrir tugir millj­óna króna bæt­ist við þá upp­hæð í ár og á því næsta sem munu nýt­ast í kosn­inga­bar­átt­una sem er framundan vegna þing­kosn­inga í sept­em­ber 2021.

Til sam­an­burðar þá áttu Píratar 5,3 millj­ónir króna í hand­bært fé um síð­ustu ára­mót. Þeir eign­færðu hins vegar skuld rík­is­sjóðs og Reykja­vík­ur­borgar vegna fram­laga við sig, upp á sam­tals rúm­lega 49 millj­ónir króna. Það er vegna þess að tekju­færsla opin­berra fram­laga er ekki með sama hætti hjá Pírötum og almennt hjá öðrum stjórn­mála­flokkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár