Matreiðslubækur vinsælt lesefni hjá Dönum – fæstir elda upp úr þeim

Danir eru miklir áhuga­menn um mat og margir þeirra eru allt of þungir. Það ætti því ekki að koma á óvart að þessi mikla mat­ar­þjóð skuli hafa áhuga fyrir að lesa um mat og skoða upp­skrift­ir.

Kjarn­inn end­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­ir. Frétta­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­sælda og sú sem er end­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­haf­­­lega birt þann 25. mars 2015.

Það er alkunna að Danir eru miklir áhuga­menn um mat. Borða mik­ið, tala mikið um mat, eyða miklum tíma í að skoða mat í búðum og dreymir jafn­vel mat. Þessi mikli mat­ar­á­hugi hefur líka sett mark sitt á þjóð­ina, margir eru alltof þungir og þrátt fyrir hverja holl­ustu­her­ferð­ina á fætur annarri á und­an­förnum árum, og fögur ára­móta­heit breytir það litlu: bað­vigtin sýnir það og sann­ar.

Það kemur þess vegna ekki á óvart að þessi mikla mat­ar­þjóð skuli hafa áhuga fyrir að lesa um mat og skoða upp­skrift­ir. Dönsku dag­blöðin eru öll með sér­stakar mat­ar­síð­ur, sum þeirra jaf­vel með mat­seðil vik­unn­ar, þar sem lín­urnar eru lagðar um hvað „fa­milien Dan­mark“ geti haft á borðum og þurfi ekki að láta hend­ingu ráða hvað fer í pott­ana. Viku­blöð­in, Famile Journal, Hjemmet, Alt for Damerne og öll hin birta fjöld­ann allan af upp­skriftum í hverju tölu­blaði.

Ara­grúi mat­reiðslu­bóka á hverju ári

Ár­lega koma út hér í Dan­mörku um það bil 80 nýjar mat­reiðslu­bækur (fyrir utan end­ur­út­gáf­ur), talan fer hækk­andi ár frá ári. Fyrir nokkrum ára­tugum létu flestir sér nægja að eiga tvær til þrjár mat­reiðslu­bæk­ur, oft og tíðum þver­hand­ar­þykka doðranta sem inni­héldu, auk upp­skrift­anna, marg­vís­legar upp­lýs­ingar um með­ferð og geymslu mat­væla o.s.frv. (Matur og drykkur fröken Helgu Sig­urð­ar­dóttur er í þessum anda).

Þekkt­ust danskra mat­reiðslu­bóka er lík­lega Frø­ken Jen­sens Koge­bog, hún kom fyrst kom út árið 1901 og hefur verið end­ur­út­gefin að minnsta kosti 30 sinnum og selst í hund­ruðum þús­unda ein­taka og selst enn þann dag í dag jafnt og þétt. Þessi met­sölu­bók á fátt sam­eig­in­legt með hinum nýtísku­legu mat­reiðslu­bókum nútím­ans, þar sem mikil áhersla er lögð á ljós­myndir til skýr­ingar og vand­aðan glans­papp­ír. Í þessum bókum er líka hrá­efnið mun fjöl­breytt­ara en hjá frø­ken Jen­sen, enda tím­arnir breytt­ir. Les­endur fá vatn í munn­inn við það eitt að skoða mynd­irnar og upp­skrift­irnar og hugsa með sér: þetta prófa ég næst!

Lang­fæstir elda upp úr mat­reiðslu­bók­unum

En, þetta næst kemur bara aldrei, eða mjög sjald­an. Nýleg rann­sókn sér­fræð­ings hjá Kon­ung­lega bóka­safn­inu leiddi nefni­lega í ljós það sem marga reyndar grun­aði. Fólk kaupir nýju bæk­urnar og skoðar þær sér til skemmt­unar en notar þær svo aldrei. „Manni fall­ast bara hendur þegar maður sér mynd­irnar og allt sem þarf að kaupa til að elda þetta fína í bók­un­um“ sagði eld­hús­vanur karl í við­tali við áður­nefndan sér­fræð­ing.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að Danir hafi mjög gaman af að lesa um allt þetta nýja í mat­ar­gerð­inni og skoða mynd­irnar en þegar kemur að sjálfri mat­reiðsl­unni þá er það medisterpylsa, steikt rauð­spretta og síld, hakkebøf eða svína­kóti­lettur sem enda á disk­inum með kart­öflum og rauð­káli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár