Kevin er kominn aftur til Íslands: „Okkur langar að þakka ykkur öllum“

Albönsku fjöl­skyld­urnar tvær, sem voru fjar­lægðar úr landi af lög­reglu í des­em­ber, komu aftur til lands­ins rétt í þessu. „Þetta er eins og draumur sem eg vakna ekki upp af,“ segir móðir lang­veika drengs­ins Kevins.

Fjölskyldan komin aftur
Fjöl­skyldan komin aftur Kevin knúsar móður sína í rút­unni á leið aftur frá Kefla­vík­ur­flug­velli, rúmum mán­uði eftir að þau voru flutt úr landi sömu leið. Mynd: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Tvær albanskar fjöl­skyldur með lang­veik börn, sem voru fjar­lægðar af lög­reglu og sendar úr landi í síð­asta mán­uði, eru komnar aftur til lands­ins í kjöl­far þess að fjöl­margir lýstu and­stöðu sinni við brott­vikn­ing­una.

Flugvél með fjöl­skyld­urnar inn­an­borðs lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli skömmu fyrir kvöld­mat. 

„Það eru engin orð sem lýsa þessu. Þetta er eins og draumur sem eg vakna ekki upp af,“ segir Xhulia Pepaj, móðir hins lang­veika Kevins. Mynd Stund­ar­innar af Kevin, þar sem hann stóð með tusku­dýrið sitt í úti­dyr­unum og beið lög­reglu, var áber­andi á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­far brott­flutn­ings­ins. „Ég veit ekki hvað ég á að segja. Okkur langar bara að þakka ykkur öllum. Íslensku þjóð­inni,“ segir móðir hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár