Mósaíkverk Gerðar fær loks að njóta sín til fullnustu

And­lits­lyft­ing er hafin á Tryggva­göt­unni í Reykja­vík. Og í stað bíla­stæða beint fyrir framan stór­feng­legt mósaíkverk Gerðar Helga­dóttur á Toll­hús­inu kemur torg svo verkið fái loks notið sín sem skyldi.

Unnið er að endurbótum á Tryggvagötu og fyrir framan mósaíkverk Gerðar Helgadóttur kemur torg.
Unnið er að end­ur­bótum á Tryggva­götu og fyrir framan mósaíkverk Gerðar Helga­dóttur kemur torg. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Fyrir framan Toll­húsið í Reykja­vík er stór og djúp hola. Ofan í henni eru menn með app­el­sínugula hjálma. Þar er líka stór grafa. Og fleiri minni vinnu­vélar.

Gatan er lokuð fyrir umferð. En gang­stéttin er fær og þar staldra nú margir við og virða fyrir sér lista­verk úr millj­ónum mósaíkflísa – líkt og þeir hafi aldrei séð það áður.

Kannski hafa þeir aldrei séð það áður. Að minnsta kosti ekki virt það fyrir sér. Verkið hefur hingað til verið nokkuð falið, beint fyrir framan það voru bíla­stæði sem voru alltaf umsetin. Fólk lagði þar, læsti bílnum í snar­hasti og stökk svo af stað að sinna erindum sínum í mið­borg­inni.

„Lífleg og fjöl­breyti­leg almenn­ings­rými“ og „aðlað­andi borg­ar­bragur“ eru leið­ar­ljós við end­ur­gerð Tryggva­göt­unnar sem nú stendur yfir. Mark­miðið er að fegra svæðið og leyfa mósaíkverki Gerðar Helga­dóttur á Toll­hús­inu að njóta sín betur. Framan við verkið verður torg og þar sem svæðið liggur vel við sólu er það talið henta vel sem dval­ar­svæði fyrir veg­far­endur. Lista­verkið verður lýst upp og fær nú efni­við­ur­inn að njóta sín betur en áður á þessum 142 fer­metra fleti. Á svæð­inu verða einnig litlir „þoku­úð­arar“, nokk­urs konar vatnsskúlp­t­úrar, sem bjóða upp á leik og veita svæð­inu ákveðna dulúð.

Með þessum hætti er end­ur­bót­unum lýst af Reykja­vík­ur­borg sem stendur að fram­kvæmdum ásamt Veitum. Lagnir vatns­veitu, hita­veitu og raf­veitu verða end­ur­nýj­aðar. Margar þeirra eru komnar til ára sinna, en skól­plögnin og kalda­vatns­lögnin eru frá árinu 1925 og hafa því þjónað íbúum og fyr­ir­tækjum í mið­bænum í tæpa öld.

Þegar gatan verður opnuð á ný að fram­kvæmdum loknum geta bílar ekið um hana aftur. En hún verður þó ein­stefnu­gata og um leið skap­ast rólegra og aðgengi­legra rýmri fyrir gang­andi.

Í fróð­leik um Toll­húsið á vef toll­stjórans segir að húsið hafi verið tekið í notkun árið 1971 en arki­tekt þess var Gísli Hall­dórs­son. Vegna þess að hafn­ar­skemma náði í gegnum húsið mynd­að­ist þar 250 m² glugga­laus vegg­flötur út að götu. Bygg­ing­ar­nefnd og arki­tekt voru sam­mála um að slíkur flötur myndi hafa slæm áhrif á heild­ar­götu­mynd­ina, ef ekki væru gerðar sér­stakar ráð­staf­anir til að prýða útlit húss­ins. Aðilar urðu því sam­mála um að reikna með því að láta setja þarna upp var­an­legt lista­verk.

Á þessum tíma fór mikið orð af Gerði Helga­dóttur, lista­konu, segir í sam­an­tekt­inni. Hafði hún unnið mikið að mósaíklista­verkum í Þýska­landi og víðar. Afráðið var að hafa fyrst sam­band við hana áður en ákveðið yrði hvort efnt yrði til sam­keppni um verkið. Oft hafði verið rætt um að verkið þyrfti að spegla lífið við höfn­ina, enda hafði höfnin verið lífæð Reykja­víkur síðan hún var gerð.

Þegar rætt var við lista­kon­una varð hún að trax hug­fangin af slíku verki. Varð að sam­komu­lagi að hún fengi teikn­ingar og aðra aðstoð áður en hún færi aftur af landi brott, þar sem hún myndi vinna við til­lög­urnar erlendis.


 Lést tveimur árum eftir að verkið var afhjúpað

Gerður fékk þann tíma sem hún ákvað sjálf að þyrfti, og þegar hún sneri aftur heim lagði hún nokkrar til­lögur fram til umræðu. Samþykkt var án tafar að biðja hana um að vinna verkið. Jafn­framt var óskað eftir að gera heild­ar­samn­ing við hana og hið fræga lista­verka­fyr­ir­tæki í Þýska­landi, Bræðurna Oidtmann, en Gerður hafði lengi starfað með þeim að upp­setn­ingu frægra lista­verka víða um Evrópu. Samn­ingar tók­ust og Gerður vann lista­verkið undir upp­setn­ingu á verk­stæði þeirra bræðra, sem sáu síðan um upp­setn­ingu á Toll­húsið.

Allt verkið var ein­stak­lega vel af hendi leyst, bæði af hálfu Gerðar Helga­dóttur og Oidt­mann­bræðra, segir í sam­an­tekt­inni. Hefur það æ síðan stað­ist óblíða íslenska veðr­áttu.

Það tók Gerði um tvö ár að vinna verkið, sem var unnið og sett upp á árunum 1972 og 1973. Lista­konan lést tveimur árum eftir að Toll­hús­verkið var klárað, aðeins 47 ára gömul.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár