Nú reyni á samstöðu verkalýðshreyfingarinnar sem aldrei fyrr

Mið­stjórn ASÍ telur að nú reyni á sam­stöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem aldrei fyrr og skýra sýn. Þá sé mál­flutn­ingur SA bæði rangur og vill­andi.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Gagnrýni Samtaka atvinnu­lífs­ins á ASÍ fyrir að gefa ekki eftir kaup­hækk­anir og líf­eyr­is­rétt­indi við ríkj­andi aðstæður og sam­an­burður við stöð­una eftir hrunið 2008 er bæði rangur og vill­andi. Þetta kemur fram í ályktun mið­stjórnar ASÍ sem send var út í dag.

Þá segir í álykt­un­inni að aldrei hafi staðið á samn­inga­nefnd ASÍ að eiga sam­tal við atvinnu­rek­endur og stjórn­völd um sam­eig­in­legar lausnir. „Þeir afar­kostir sem Samtök atvinnu­lífs­ins stilltu upp gagn­vart samn­inga­nefnd ASÍ var hins vegar hafnað af miklum meiri­hluta nefnd­ar­innar eftir breitt sam­ráð við bak­land innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Ábyrgð­ina er ekki hægt að setja á launa­fólk sem nú þegar hefur orðið fyrir miklum búsifjum,“ segir í álykt­un­inni.

Alþýðu­sam­band Íslands muni þannig standa vörð um þær vinnu­mark­aðs­að­gerðir sem ákveðnar hafa verið og geri sömu kröfur til atvinnu­rek­enda og sam­taka þeirra.

„Sterk verka­lýðs­hreyf­ing er merki um heil­brigðan og vel skipu­lagðan vinnu­markað. Á sam­dráttar- og kreppu­tímum er vegið að kjörum og rétt­indum vinn­andi fólks. Þá reynir á sam­stöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem aldrei fyrr. Mikill fjöldi félaga okkar er að missa vinnu eða tapa rétt­indum og taka á sig kjara­skerð­ingar. Þessa félaga okkar þurfum við að verja með sam­ein­uðu afli okkar.

Það áfall sem á okkur dynur afhjúpar veik­leika á vinnu­mark­aði sem end­ur­spegl­ast í slæmri rétt­ar­stöðu launa­fólks í ótryggum og rétt­litlum ráðn­ing­ar­sam­böndum. Formlegt ráðn­ing­ar­sam­band ásamt aðild að stétt­ar­fé­lagi og rétt­indi skv. kjara­samn­ingum er besta vörn sem launa­maður á vinnu­mark­aði getur fengið. Á það reynir núna.“ segir í álykt­un­inni.

Verðmætur lýðræðisvettvangur sem skapar grunn fyrir sameiginlegar ákvarðanir

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að um leið og þetta ástand, sem nú ríkir vegna heims­far­ald­urs­ins, kom upp hafi hún virkjað samn­inga­nefnd ASÍ og hafi nefndin fundað dag­lega í gegnum fjar­fund.

[links]„Það er vett­vang­ur­inn til að ræða opin­skátt og í trún­aði allar mögu­legar og ómögu­legar hug­myndir, taka stöð­una sem breyt­ist dag frá degi og ráða ráðum okkar. Þetta er verð­mætur lýð­ræð­is­vett­vangur sem skapar grunn fyrir sam­eig­in­legar ákvarð­anir jafn­vel þótt fólk sé ekki alltaf sam­mála. Þær til­lögur sem nú er deilt um og ganga út á skerð­ingar á rétt­indum launa­fólks úr líf­eyr­is­sjóðum voru til umræðu þar en um þær voru afar skiptar skoð­anir.

Það er vara­samt að skerða rétt­indi launa­fólks úr líf­eyr­is­sjóðum til allrar fram­tíðar. Það má vel gagn­rýna líf­eyr­is­sjóða­kerfið en ég mun standa vörð um þann rétt sem vinn­andi fólk hefur áunnið sér eins og nokkur kostur er, enda er líf­eyr­ir­inn senni­lega með mik­il­væg­ari rétt­indum sem fólk á. Það er freist­andi að fara sífellt inn í líf­eyr­is­rétt­indin til að leita lausna við tíma­bundnum vanda en þeim mun mik­il­væg­ara að hreyf­ingin standi í lapp­irnar,“ skrifar hún.

Hagsmunir launafólks verða að vera tryggðir

Þá seg­ist Drífa halda sig við það sem hún hefur hingað til sagt: „Ef á að krukka í rétt­indum vinn­andi fólks þá þarf það að ger­ast í stærra sam­hengi, í sam­ráði og sam­tali við opin­bera mark­að­inn, atvinnu­rek­endur og stjórn­völd. Ef farið er inn í kjara­samn­inga verða hags­munir launa­fólks að vera tryggðir með öðrum hætti og þeim bætt upp skerð­ingin. Þetta er mitt við­horf og það hefur ekki breyst síð­ustu vikur.

Sterk verka­lýðs­hreyf­ing er gríð­ar­lega mik­il­væg um þessar mundir eins og alla jafna á krísu­tímum. Ég harma úrsagnir úr mið­stjórn ASÍ enda er sam­staða hreyf­inga launa­fólks ein af grunn­for­sendum þess að stað­inn sé vörður um kjör almenn­ings. Við munum halda ótrauð áfram í þeim risa­verk­efnum sem við erum að glíma við.“

Sterk verkalýðshreyfing aldrei eins mikilvæg og í kreppu

Þá kemur enn fremur fram í ályktun mið­stjórn­ar­innar að Alþýðu­sam­bandið hafi á und­an­förnum vikum unnið með stjórn­völdum og sam­tökum atvinnu­rek­enda að aðgerðum sem ætlað sé að minnka höggið af nið­ur­sveifl­unni á heimil og fyr­ir­tæki. En það þurfi að gera betur. Atvinnu­leys­is­bætur þurfi að hækka og það þurfi að tryggja fé til virkra vinnu­mark­aðs­að­gerða. Það þurfi að tryggja afkomu­ör­yggi hópa sem ekki falla undir lög um hluta­bætur eða um laun í sótt­kví. Þar eigi í hlut við­kvæmir hópar sem þurfi að verja betur. Það þurfi að tryggja hús­næð­is­ör­yggi. Það þurfi að nýta skatt­kerfið með mark­viss­ari hætti til tekju­jöfn­unar og verja grunn­stoðir vel­ferð­ar­kerf­is­ins. Þá verði að tryggja að verð­lag hald­ist stöðugt og kjör skerð­ist ekki vegna verð­bólgu. Styrkur og mik­il­vægi opin­bera heil­brigð­is­kerf­is­ins ætti jafn­framt að vera öllum ljós við þær aðstæður sem nú ríkja.

„Sterk verka­lýðs­hreyf­ing er mik­il­væg á öllum tímum en aldrei eins og í kreppu. Þá reynir á sam­stöðu og skýra sýn. Á slíkum stundum er mik­il­vægt að sjá heild­ar­mynd­ina. Verja rétt­indi og kjör og standa dyggan vörð um vel­ferð­ar­kerfið. Við erum sterk­ari saman,“ segir að lokum í ályktun mið­stjórnar ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár