Úr fangaklefa í forsetastól

Hann er tákn vinstr­is­ins í rómönsku Ameríku holdi klætt. Sonur fátækra bænda, síðar verka­lýðs­for­ingi og loks for­seti. Hnepptur í fang­elsi af póli­tískum and­stæð­ingum en nú hefur Luis Inácio Lula da Silva verið kos­inn for­seti Brasilíu í þriðja sinn.

Luis Inácio Lula da Silva.
Luis Inácio Lula da Silva. Mynd: EPA

Luis Inácio Lula da Silva var kos­inn for­seti Brasilíu í gær í kjöl­far hnífjafnrar bar­áttu milli hans og Jair Bol­son­aro, for­seta til síð­ustu fjög­urra ára. Það var sann­ar­lega mjótt á mun­unum. Er um 99,8 pró­sent atkvæða höfðu verið talin í morgun hafði Lula, eins og hann er oft­ast kall­aður, hlotið 50,89 pró­sent og Bol­son­aro 49,11.

Lula hefur áður gegnt emb­ætti for­seta í tvígang og tekur við því í þriðja sinn í byrjun næsta árs. Í kosn­inga­bar­áttu sinni lagði hann áherslu á lýð­ræð­is­leg gildi, að sam­eina og byggja upp að nýju brasil­ískt sam­fé­lag sem hann segir hafa verið brotið niður og sundrað í tíð hægri manns­ins Bol­son­aro.

[adspot]

Þetta er ekk­ert lítið verk­efni. Brasilía er eitt fjöl­menn­asta ríki heims og lang­fjöl­menn­asta ríki rómönsku Ameríku en þar búa um 217 millj­ónir manna. Um 100 millj­ónir þeirra búa við fátækt og um 33 millj­ónir við hung­ur­mörk í óða­verð­bólgu sem þar geisar. Slíkt ástand hefur ekki ríkt í Brasilíu í áraraðir.

Á alþjóða svið­inu verður stóra verk­efnið m.a. að end­ur­heimta traust umheims­ins á því að Amazon-frum­skóg­ur­inn verði vernd­aður. Í tíð Bol­son­aro hefur eyð­ing hans stór­auk­ist á tímum þegar jarð­ar­búar og heilu þjóð­irnar kepp­ast við að planta trjám og kolefn­is­jafna athafnir sínar til að reyna að verj­ast alvar­legum afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga sem vofa yfir.

Lula kom inn á þetta í sig­ur­ræðu sinni í gær en lagði áherslu á að efst á for­gangs­list­anum væri að bæta lífs­gæði fátæk­ustu landa sinna.

„Við getum ekki sætt okkur við að millj­ónir karla, kvenna og barna í þessu landi hafi ekki nóg að borða,“ sagði hann fyrir framan fagn­andi áhorf­enda­sk­ar­ann. „Við erum þriðji stærsti fram­leið­andi mat­væla og stærsti fram­leið­andi dýra­próteins í heim­inum. Okkur ber skylda til að tryggja að hver ein­asti Bras­il­íu­maður geti borðað morg­un­mat, hádeg­is­mat og kvöld­mat á hverjum degi.“

Mikill metnaður en mögulega óraunhæfur

Í kosn­inga­bar­átt­unni birti Lula stefnu­mál sín í ítar­legu bréfi til þjóð­ar­innar. Stefnu­skráin er metn­að­ar­full, það verður ekki af honum tekið, en ef til vill ekki raun­hæf að mati þeirra sem rýnt hafa í hana og lagt mat sitt á hana. Lula ætlar að jafna laun karla og kvenna, útrýma biðlistum eftir skurð­að­gerðum og lækn­is­rann­sóknum og tryggja pláss á vöggu­stofum og leik­skólum fyrir hvert ein­asta smá­barn.

Hann hefur heitið því að reist verði meira af íbúð­ar­hús­næði á við­ráð­an­legu verði og koma renn­andi vatni og raf­magni til ein­angr­uð­ustu byggða lands­ins. Hann ætlar auk þessa í ýmsa aðra inn­viða­upp­bygg­ingu.

Í frétta­skýr­ingu Washington Post er bent á að engin kostn­að­ar­á­ætlun hafi fylgt lof­orða­list­anum en Lula er sagður hafa treyst á að árangur hans frá fyrri tíð væri kjós­endum enn í fersku minni og að þegar hann stóð upp úr for­seta­stólnum fyrir tólf árum, er hann hafði gegnt emb­ætt­inu í átta ár, naut hann hylli um 80 pró­senta Bras­il­íu­manna sam­kvæmt könn­unum.

Bróð­ur­part­inn af for­seta­tíð Lula á árunum 2003-2010 var upp­sveifla í brasil­ísku hag­kerfi. Einka­neysla jókst og það reynd­ist auð­veld­ara en áður að fjár­magna mikla inn­viða­upp­bygg­ingu.

[adspot]

En staðan er allt önnur í dag. Að auki stendur Lula frammi fyrir því að stuðn­ings­menn Bol­son­aros eru í meiri­hluta í báðum deildum þings­ins. Það getur því reynst þrautin þyngri, ólíkt því sem var uppi á ten­ingnum í síð­ustu umferð, að koma alls konar málum í gegn.

Hann gæti líka mætt mik­illi and­stöðu í einu stærsta kosn­inga­lof­orði sínu: Að end­ur­heimta Amazon-skóg­inn og vernda hann til fram­tíðar. Bol­son­aro hvatti fólk og fyr­ir­tæki til að nýta skóg­inn, þessa miklu og ein­stöku auð­lind sem Brasilía geymir. Þetta gaf fyr­ir­tækjum í stór­tæku skóg­ar­höggi og námu­vinnslu byr í seglin. Þessi fyr­ir­tæki eru engin smælki heldur mörg hver risa­stór og ítök þeirra í stjórn­málum og efna­hags- og atvinnu­lífi lands­ins, sem og víðar í heim­inum, eru mikil. Þau eru ekki að fara að aka stór­virkum vinnu­vélum sínum út úr skóg­inum án þess að fá eitt­hvað í stað­inn.

Frá því að Bol­son­aro tók við emb­ætti í byrjun árs 2019 hefur skóg­areyð­ing í Amazon auk­ist ár frá ári. Lula vill ná jafn­vægi, að ekki verði gengið meira á skóg­inn en hann end­ur­nýjar sig. Hann seg­ist hins vegar sætta sig við að dregið verði úr eyð­ingu hans ár frá ári, líkt og gerð­ist í hans fyrri for­seta­tíð.

Bol­son­aro rak að mati Lula fleyg milli fólks af ættum frum­byggja í Brasilíu og ann­arra íbúa lands­ins. Hann fjársvelti sam­tök og stofn­anir sem ein­beittu sér að mál­efnum frum­byggja. Sömu sögu er að segja um stofn­anir og sam­tök tengdum umhverfis- og nátt­úru­vernd.

Leiðandi varðmenn loftslags

Lula ætlar að snúa þess­ari þróun við – end­ur­heimta traust sam­fé­laga frum­byggja, sam­fé­laga sem nýtt hafa auð­lindir Amazon með sjálf­bærum hætti í aldir og árþús­und og eru lyk­ill­inn að því að snúa hinni ógn­væn­legu skóg­areyð­ingu við.

„Í stað þess að vera leið­andi í skóg­areyð­ingu viljum við verða heims­meist­arar í því að fást við loft­lagskrís­una,“ segir Lula. Það verði ekki gert nema með því að treysta sam­fé­lög fólks sem búa í Amazon. „Þannig getum við ræktað heil­brigð mat­væli, andað að okkur hreinu lofti, drukkið hreint vatn og skapað fjöl­mörg störf með grænum fjár­fest­ingum.“

Ein­hverjir stjórn­mála­spek­ingar hafa viðrað þá skoðun sína að Lula sé gam­al­dags stjórn­mála­maður. Hann hugsi um að skapa verka­manna­störf og störf í opin­bera geir­anum þegar hug­vit og þekk­ing séu fram­tíðin. Að ríkið eigi að fjár­magna allt heila klabbið. Um sé að ræða vanda sem mörg ríki í rómönsku Ameríku glíma við. Beitt sé 20. aldar aðferða­fræði sem virki ekki lengur. Þessi hug­mynda­fræði hafi gert sitt gagn í fyrri tíð Lula en aðeins í skamman tíma. Aðeins fáum árum eftir að hann fór úr emb­ætti fór allt bein­ustu leið niður á við. Úr varð kreppa sem Bol­son­aro hlaut kosn­ingu út á. Hann lof­aði að koma Bras­il­íu­mönnum út úr henni. Það mistókst.

Maður fólksins

Lula hefur mikla per­sónu­töfra. Hann er alþýðu­maður, fæddur í norð­austur hluta Brasilíu árið 1945 og fagn­aði 77 ára afmæli sínu 27. októ­ber. Hann átti sjö systk­ini og for­eldrar hans voru fátækir bændur sem gátu ekki séð öllum börnum sínum fyrir mat. Er hann var sjö ára fór hann ásamt móður sinni og nokkrum systk­inum sínum til São Paulo-ríkis í leit að betra lífi. Þau end­uðu á því að setj­ast að í sam­nefndi borg, þeirri fjöl­menn­ustu í Brasilíu.

Hann flosn­aði upp úr námi og fór að vinna fyrir sér við að pússa skó á götum úti. Síðar fékk hann vinnu í verk­smiðju. Þar missti hann fingur í vinnu­slysi og ekki mörgum árum síðar, er hann var rétt skrið­inn yfir tví­tugt, fór hann að láta sig verka­lýðs­mál varða.

Lula varð fyrir því áfalli aðeins 25 ára gam­all að missa eig­in­konu sína, Lourdes, eftir að þau höfðu verið gift í tvö ár. Hún var gengin átta mán­uði með barn þeirra er hún sýkt­ist alvar­lega af lifr­ar­bólgu og lést.

Með hverju árinu sem leið sökkti hann sér meira í rétt­inda­bar­áttu fyrir bættum kjörum verka­lýðs­ins og árið 1975 var hann kjör­inn for­maður félaga­sam­taka málm­iðn­að­ar­manna. Á meðan hann gegndi for­mennsk­unni skipu­lagði hann nokkur verk­föll en á þeim tíma var ein­ræð­is­stjórn í Brasilíu. Vin­sældir hans juk­ust og ekki aðeins meðal verka­manna. Hann barð­ist fyrir auknu lýð­ræði og var oft og tíðum líkt við hinn pólska leið­toga Lech Walesa.

Hafði í fyrstu ekki erindi sem erfiði

Í upp­hafi níunda ára­tugar síð­ustu aldar stofn­aði Lula í félagi við verka­fólk og aðra verka­lýðs­leið­toga, lista­fólk, fræða­fólk og fleiri hópa, Verka­manna­flokk­inn, vinstri­s­innað afl til höf­uðs her­for­ingja­stjórn­inni.

Lula bauð sig þrisvar sinnum fram til for­seta áður en hann loks náði kjöri árið 2002. Þá gekk yfir rómönsku Ameríku það sem kallað var „bleika bylgjan“ sem ein­kennd­ist af efna­hags­legum og félags­legum umbótum við dögun nýrrar aldar. Sú efna­hags­upp­sveifla sem fylgdi Lula í emb­ætti for­seta var ekki aðeins rakin til hans verka. Hún átti sér ástæður í lífs­kjara­bótum sem voru að eiga sér stað víðar, auk­inni einka­neyslu og eft­ir­spurn á alþjóða vísu. Hjól hag­kerf­is­ins snér­ust sem aldrei fyrr.

[adspot]

Lula nýtti upp­sveifl­una til að byggja undir félags­legt kerfi sem varð til þess að millj­ónir landa hans komust út úr fátækt. Hann styrkti líka stoðir olíu­iðn­að­ar­ins. Sem átti eftir að reyn­ast vopn í höndum óvina hans nokkrum árum síðar.

Árið 2010 bauð hann sig ekki aftur fram. Arf­tak­inn var honum að skapi, fyrr­ver­andi hægri hönd hans á for­seta­skrif­stof­unni, hag­fræð­ing­ur­inn Dilma Rousseff. Henni var hins vegar bolað úr emb­ætti með ákæru fyrir emb­ætt­is­glöp árið 2016.

580 dagar

Tveimur árum síðar var Lula fang­els­aður fyrir spill­ingu. Málið tengd­ist rann­sókn dóm­ar­ans Sérgio Moro á meintum mútu­greiðslum rík­is­ol­íu­fyr­ir­tæk­is­ins Petr­obras. Málið teygði anga sína um alla rómönsku Ameríku.

Lula var sak­felldur, dæmur í 22 ára fang­elsi, og haldið einum í litlum klefa í 23 klukku­stundir á sól­ar­hring. Árið 2019 var hann hins vegar sýkn­aður í Hæsta­rétti þar sem sýnt þótti að Moro dóm­ari var hlut­drægur í máli for­set­ans fyrr­ver­andi.

„Hvernig reyndu þeir að kné­setja Lula? Ég eyddi 580 dögum í fang­elsi af því að þeir vildu koma í veg fyrir að ég byði mig fram,“ sagði hann á kosn­inga­fundi í síð­ustu viku. „Ég hélt ró minni í fang­els­inu, und­ir­bjó mig eins og Mandela und­ir­bjó sig,“ hélt hann áfram og vís­aði þar til Nelsons Mandela, leið­toga svartra í Suður-Afríku, sem var bak við lás og slá í 27 ár.

Líkt og hjá Mandela mun for­seta­stóll­inn taka við í kjöl­far fang­els­is­vistar fyrir Lula.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár